Strandblak

Myndagetraun - 2. hluti og sigurvegari 1. hluta

25.07.2010
Það er þegar komið í ljós að á ljósmyndinni í myndagetraun 1 var Orri Þór Jónsson, en það var hún Birna Baldursdóttir sem varð fyrst til að giska á rétt svar. Hún fékk að launum eftisóttan strandblakbol og óskum við henni til hamingju með það.

Hér að neðan má sjá myndina af Orra, bæði litla og stóra, sem og mynd af sigurvegara/giskara getraunarinnar, Birnu Baldursdóttur ánægða með bolinn.

Getraun 1Giskarinn BirnaOrri handareigandi

Myndagetraun 2

Getraun 2Nú er komið að Myndagetraun 2 og felst hún í því að þekkja þessa fætur sem svífa ofar sandi.

Farið inná spjallið og sjáið myndina í fullri stærð, og giskið eins og þið getið.

Úrslit verða gerð kunn fljótlega í næstu viku. Verðlaunin koma á óvart.

 


Úrslit á 4. stigamóti sumarsins

25.07.2010
Um helgina var spilað í Fagralundi í Kópavogi 4. stigamót BLÍ í sumar. Karlarnir spiluðu sína deild í góðum austanvindi á föstudagskvöldið, en konurnar í rjómablíðu og sól á laugardeginum.

6 karlalið skráðu sig til leiks og var spilað allir við alla. Spila átti fyrstu 4 umferðirnar á föstudagskvöldi og svo síðustu umferðina á laugardeginum, en þegar leið á kvöldið voru liðin í miklu stuði og héldu bara áfram og kláruðu mótið. Síðasta leik lauk rétt uppúr kl 23.00.

Meistararnir frá því um síðustu helgi, þeir Orri og Ivo náðu sér ekki á strik og enduðu í 5. sæti, en mikil og jöfn barátta var í flestum leikjum.

Svo fór að Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson stóðu uppi sem sigurvegarar.

Efstu þrjú sætin urðu eftirfarandi:
1. Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson (Stjarnan)
2. Birgir Már Vigfússon og Guðmundur P Guðmundsson (HK)
3. Karl Sigurðsson og Ólafur H Guðmundsson (HK)

Kvennadeildin hófs kl 9.00 á laugardagsmorgni og voru spilaðir 26 leikir yfir daginn. Þó fleiri sterk lið séu komin fram, og jafnari leikir, þá tókst konunum að spila þessa 26 leiki án þess að það yrðu fleiri en 3 oddahrinu leikir, og eiga þær þakkir fyrir. Þetta varð til þess að mótið kláraðist rúmum hálftíma fyrir áætlaðan tíma, en það er frekar sjaldgæft í strandblaki.

Efstu 3 liðin á stigamóti 4 / Beach VolleyEinhverjir keppendur nýttu sér það að vera komin með næg stig til að komast inní lokamótið og hvíldu því á þessu móti. Hinir keppendurnir sáu sér þá leik á borði og pöruðu sig saman með keppendum úr öðrum liðum til að mynda sem sterkustu liðin, og þar á meðal liðið sem vann mótið um helgina.

Bæði Fríða Sigurðardóttir sem spilað hefur með Birnu Baldursdóttur, og Laufey Sigmundsdóttir sem spilað hefur með Lilju Jónsdóttur hvíldu um helgina. Þetta nýttu meðspilarar þeirra, þær Birna og Lilja sér, og settu saman lið fyrir mótið. Úr varð sterkasta lið keppninnar og unnu þær úrslitaleikinn við þær stöllur Ingibjörgu Gunnarsdóttur og Karen Björgu Gunnarsdóttur á sannfærandi hátt 2 - 0.

Efstu þrjú sætin í kvennadeildinni urðu því þannig:
1. Lilja Jónsdóttir og Birna Baldursdóttir (HK)
2. Karen Björg Gunnarsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir (HK)
3. Birta Björnsdóttir og Hjördís Eiríksdóttir (HK/Stjarnan)

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri:
Hjördís, Lilja, Birna, Karen og Ingibjörg.

Hér má sjá fleiri myndir frá mótinu


Smá breytingar

23.07.2010 kl 15:40
Búið er að bæta inní töfluna hjá stelpunum næstu leikjum svo öll lið séu sýnileg, en einnig voru tímasetningarnar á karlaleikjum laugardagsins færðar til.

20 lið skráð til leiks í 4. stigamóti sumarsins

23.07.2010
Það er greinilegt að topp liðin hafa skoðað stöðu sína og einhverjir leikmenn ákveðið að hvíla á þessu móti, þar sem þeir eru næsta öryggir inní lokamót sumarsins, eða meðal 8 efstu liðanna í stigakeppninni.

14 kvennalið og 6 karlalið skráðu sig til leiks í mótið. Karlarnir spila "allir við alla" og þá flesta leikina á föstudagskvöldi en konurnar spila eftir tvöföldu útsláttarkerfi og þá eingöngu á laugardegi.

Hér má sjá tímasetningar leikja í karladeildinni og síðan fyrstu leikina í kvennadeildinni á laugardaginn, en áætlað er að báðar deildir klárist milli kl 17:30 og 18:30 á laugardeginum.

Föstudagur - Karladeild Föstudagur - Karladeild
Leik Nr. Tími Lið 1 Lið 2 Leik Nr. Tími Lið 1 Lið 2
1 18:00 Gummi / Biggi Emil / Eiki 2 18:00 Orri / Ivo Óli / Ingó
3 18:35 Þór / Jón Kalli / Óli 4 18:35 Gummi / Biggi Orri / Ivo
5 19:10 Þór / Jón Emil / Eiki 6 19:10 Kalli / Óli Óli / Ingó
7 19:45 Gummi / Biggi Óli / Ingó 8 19:35 Emil / Eiki Kalli / Óli
9 20:20 Orri / Ivo Þór / Jón 10 20:20 Emil / Eiki Óli / Ingó
11 20:55 Gummi / Biggi Þór / Jón 12 20:55 Orri / Ivo Kalli / Óli
Laugardagur - Karladeild Laugardagur - Karladeild
13 16:00 Óli / Ingó Þór / Jón 14 15:25 Kalli / Óli Gummi / Biggi
15 16:35 Emil / Eiki Orri / Ivo        

 

Laugardagur - Kvennadeild Laugardagur - Kvennadeild
Leiknr. tími Lið 1 Lið 2 Leiknr. tími Lið 1 Lið 2
1 09:00 Heiða / Eyrún Olga / Lilja M 2 09:00 Ásta / Kolla Margaret / Renata
3 09:35 Ingibjörg / Karen Alissa / Heidi 4 09:35 Jóhanna / Valdís Andrea / Gyða
5 10:10 Berglind / Elísabet Suzana / Helga 6 10:10 Svala / Þórey Gunna S / Susanne
7 10:45 Lilja / Birna (Sigurlið leik 1) 8 10:45 (Sigurlið leik 2) (Sigurlið leik 3)
9 11:20 (Sigurlið leik 4) (Sigurlið leik 5) 10 11:20 (Sigurlið leik 6) Hjördís / Birta

Við viljum minna liðin á að ganga frá greiðslu í síðasta lagi fyrir hádegi föstudagsins 23. júlí, inná fyrrgreindan reikning.


Skráning hafin í Stigamót IV

Stigamót 4 / Beach Volley20.07.2010
Næstu helgi föstudaginn 23. og laugardaginn 24. júlí fer fram 4. stigamót sumarsins.
Mótið verður haldið í Fagralundi í Kópavogi, og ef fer sem horfir verður mjög góð þátttaka á mótinu, enda hvert mótið í sumar verið sprenging í þátttöku.

Skráning er hafin hér á vefnum og sem fyrr er þátttökugjaldið 1.500 kr pr/keppanda. Greiða skal inná reikning Blaksambandsins 301 - 26 - 7571 kt. 450274-0629. Greiða skal fyrir hádegið föstudagsins 23. júlí.

Farið inná Mótasíðuna til að skrá ykkur.

Skráningu lýkur fimmduagskvöldið 22. júlí kl 19.00


Getraun á Strandblak.is

20.07.2010
Nú ætlar Strandblak.is að bjóða uppá smá nýjung, en það er getraun í formi myndagetraunar.

Birt verður mynd af keppanda, eða hluta af keppanda og eiga þátttakendur í getrauninni að fara inná Netspjallið hér til vinstri á síðunni og giska á af hverjum myndin er.

Hver á höndina?Sá/sú sem fyrst kemur með rétt svar fær að launum einhver smávægileg verðlaun, en þetta er meira til gamans gert.

Í fyrstu getraun síðunnar er mynd sem tekin var á mótinu á Flúðum sem var síðastliðna helgi, og felst í því að giska á "Hver á höndina?"

Í verðlaun fyrir fyrstu getraun er Strandblak.is bolur.

Farið inná netspjallið og svarið getrauninni.


Lang stærsta strandblaksmótshelgi að baki

19.07.2010
Um helgina fór fram langstærsta strandblakmót sem haldið hefur verið hér á landi, frá því byrjað var að halda þessi mót fyrir sex árum síðan. Hér eru nokkrar tölur til gamans:

  • Orri Þór Jónsson / Beach VolleyFjöldi liða var 39, þar af 21 kvennalið, 9 karlalið, 6 lið i unglingaflokki stúlkna og 3 lið í unglingaflokki pilta.
  • Spilað var frá kl 18:00 - 22:56 á föstudegi, 8:30 - 23:25 á laugardegi og frá 9:00 - 13.54 á sunnudegi
  • Heildar spiltími var 41 klst og 13 mínútur (tími frá því leikur hefst þar til hann endar)
  • Meðaltími leikja var 35 mín í kvennadeild, 39 mín í karladeild, 26 mín í stúlkna flokki og 24 mín í pilta flokki
  • Spilaðir voru 77 leikir
  • Spilaðir voru 21 þriggja hrinu leikir, þar af 8 í karlaflokki, 13 í kvenna en engin í unglingaflokkum.
  • Spilaðar voru 173 hrinur
  • Tekin voru 26 leikhlé (sem er ekki nema 0,15 leikhlé á hrinu)
  • Alls voru skoruð 5717 stig
  • Mesta stigaskor í leik var 118 stig (24-22 / 20-22 / 15-13)
  • Hæsta stigaskor í hrinu var 26 - 24

Til allrar lukku var veðrið okkur hliðhollt en spilað var í vægast sagt brjálaðri blíðu og má búast við að stór hluti keppenda sé nú rauðari en vel þroskaður tómatur í dag, allavega má það segja um greinarhöfund.

Gaman var að sjá hve mörg unglingalið lögðu það á sig að fara austur. Einnig var gaman að sjá að yngri keppendur eru farnir að slá þeim eldri við í sandinum, en það er akkúrat það sem við viljum sjá gerast að þeir yngri þroskist og taki framförum, því þau eiga jú að taka við af hinum eldri.

Þess má geta að Altis ehf, innflytjanda Under Armour á Íslandi gaf öll verðlaun á mótinu.

Hér eru helstu úrslit en þau voru ekki alveg eftir bókinni, en þannig á það líka að vera.

Kvennaflokkur
1. sæti - Birna Baldursdóttir og Fríða Sigurðardóttir (HK)
2. sæti - þórey Haraldsdóttir og Laufey Björk Sigmundsdóttir (HK)
3. sæti - Fjóla Rut Svavarsdóttir og Birta Björnsdóttir (Þróttur/HK)

Karlaflokkur
1. sæti - Orri Þór Jónsson og Ivo Bartkevich (HK)
2. sæti - Einar Sigurðsson og Emil Gunnarsson (HK)
3. sæti - Ólafur J Júlíusson og Ingólfur Guðjónsson (HK)

Unglingaflokkur stúlkur
1. sæti - Birta Björnsdóttir og Steinunn Helga Björgólfsdóttir (HK)
2. sæti - Fjóla Rut Svavarsdóttir og Hjördís Eiríksdóttir (Þróttur/Stjarnan)
3. sæti - Auður Anna Jónsdóttir og Guðrún Margrét Jónsdóttir (KA)

Unglingaflokkur piltar
1. sæti - Ólafur J Júlíusson og Orri Þór Jónsson (HK)
2. sæti - Stefán Gunnar Þorsteinsson og Lúðvík Már Matthíasson (HK)
3. sæti - Gylfi Freyr Karlsson og Viktor Emile C Gauvrit (HK/UMFA)

Stigaskor verður fljótlega fært inn, sem og myndir settar á vefinn.

Athugið að hér til vinstri á síðunni er komið eitthvað sem heitir Net spjall, en það er hugsað fyrir keppendur sem og aðra til að koma á framfæri sínum skoðunum, hvort sem það viðkemur mótum, stigagjöf, leit að leikmanni eða hverju því sem tengist strandblakinu.

Hér á meðfylgjandi myndum má verðlaunahafa í unglingaflokkum.

Mynd 1, frá vinstri: Gylfi Freyr, Viktor, Óli J, Orri, Stefán og Lúðvík
Mynd 2, frá vinstri: Auður, Guðrún, Birta, Steinunn, Hjördís og Fjóla

Verðlaunahafa í piltaflokki / Beach VolleyVerðlaunahafa í stúlknaflokki / Beach Volley


Unglingamótið á sunnudag - Tímaplan

16.07.2010 kl 11:45
Munið að mæta ekki seinna en hálftíma fyrir leik. Tímasetningar leikja eru aðeins til viðmiðunar og geta breyst á mótinu sjálfu, og því ber að fylgjast vel með.

Sunnudagur - Völlur 1 Sunnudagur - Völlur 2
1 09:00 Birta/Steinunn Fjóla/Hjördís 2 09:00 Thelma/Viktor Auður/Guðrún
3 09:30 Fjóla/Hjördís Hrafnhildur/Hugrún 4 09:30 Auður/Guðrún Elísabet/Berglind
5 10:00 Hrafnhildur/Hugrún Birta/Steinunn 6 10:00 Thelma/Viktor Elísabet/Berglind
7 10:30 Birta/Steinunn Thelma/Viktor 8 10:30 Elísabet/Berglind Hrafnhildur/Hugrún
9 11:00 Fjóla/Hjördís Auður/Guðrún 1 11:00 Óli J / Orri Gylfi / Viktor
10 11:30 Auður/Guðrún Hrafnhildur/Hugrún 2 11:30 Gylfi / Viktor Lúðvík / Stefán
11 12:00 Thelma/Viktor Fjóla/Hjördís 3 12:00 Lúðvík / Stefán Óli J / Orri
12 12:30 Elísabet/Berglind Birta/Steinunn 4 12:30 Óli J / Orri Gylfi / Viktor
13 13:00 Hrafnhildur/Hugrún Thelma/Viktor 5 13:00 Gylfi / Viktor Lúðvík / Stefán
14 13:30 Fjóla/Hjördís Elísabet/Berglind 6 13:30 Lúðvík / Stefán Óli J / Orri
15 14:00 Birta/Steinunn Auður/Guðrún

Breyting

16.07.2010 kl 10:55
Ath. breyting á tímasetningu. Leikur nr. 2 verður kl 19:10 en leikur nr. 6 kl 18:00. Þetta er breyting frá því sem fyrst var sett á vefinn.

Enn einu sinni sláum við þátttökumet

16.07.2010
Það er greinilegt að strandblakið er á hraðri uppleið, en enn einu sinni sláum við þátttökumet á stigamóti.

Tæplega 80 manns taka þátt í móti helgarinnar. Þar af eru 21 kvennalið, 9 karlalið og 9 lið í unglingaflokki.
Leiknir verða því 77 leikir en það ætti að taka u.þ.b. 45 klst í stanslausu spili. Nú er bara spurningin hvort 2 vellir og ein helgi sé nóg fyrir svona stórt mót.

Við ætlum að reyna og með hjálp keppenda við að halda tímaplani, mæta ekki seinna en hálftíma fyrir leik, spila heiðarlega og fara í sem fæsta 3ja hrinu leiki... þá ætti það að hafast.

Keppnin hefst kl 18.00 föstudaginn 16. júlí í kvennadeildinni, og verður spilað fram eftir kvöldi. Mótið hefst svo aftur kl 8:30 á laugardagsmorgni. Karladeildin hefst ekki fyrr en kl 11:00 á laugardegi.

Búist er við því að úrslitaleikir í karla og kvennaflokki verði spilaðir um kl 20:30

Unglingaflokkur verður spilaður á sunnudegi og hefst mótið hjá stúlkunum kl 9:00, en drengjunum kl 10:30.

Ætlast er til að keppendur spili í eins búningum.

Vinsamlegast greiðið þátttökugjaldið fyrir hádegi föstudagsins, sendið staðfestingu á strandblak@strandblak.is, prentið svo út kvittun og takið með ykkur á mótið.
Þátttökugjald greiðist eins og áður segir, inná reikning 301-26-7571, kt. 450274-0629, og er það 1.500 kr pr/þátttakanda í fullorðinsflokki (3.000kr pr/lið), en 1.000 kr pr/þátttakanda í unglingaflokki. Unglingar sem keppa einnig í fullorðinsflokki greiða bara gjald fyrir fullorðinsflokkinn..

Hér má sjá leikjaniðurröðun á föstudagskvöldið og fyrstu 2 leikina á laugardeginum hjá konunum.

Föstudagur - Völlur 1 Föstudagur - Völlur 2
Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2 Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2
1 18:00 Aðalheiður / Helga Guðrún / Susanne 6 18:00 Ásta / Kolla Ingibjörg / Karen
3 18:35 Margaret / Suzana Guðrún / Thelma 4 18:35 Þórey / Svala Heidi / Lilja L
5 19:10 Eyrún / Ute Láretta / Guðrún Ó 2 19:10 Charlotta / Hjördís Hrafnhildur / Hugrún
7 19:45 Brynja / Hjördís Dögg / Lilja M 8 19:45 Elísabet / Berglind Hera / Oddný
9 20:20 (sigurlið leik 1) Birna / Friða 10 20:20 Fjóla / Birta (Sigurlið leik 2)
13 20:55 Þórey / Laufey (Sigurlið leik 5) 12 20:55 (Sigurlið leik 4) Jóhanna / Valdís
15 21:30 (Taplið leik 4) (Taplið leik 9) 16 21:30 (Taplið leik 5) (Taplið leik 7)
Laugardagur - Völlur 1 Laugardagur - Völlur 2
Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2 Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2
11 08:30 Auður / Guðrún (Sigurlið leik 3) 14 08:30 (Taplið leik 3) (Taplið leik 6)

Nánari upplýsingar um unglingamótið koma hér upp síðar í dag.

Birt með fyrirvara um breytingar


Stigamót III næstu helgi - Skráning hafin

Stigamót 3 í strandblaki / Beach Volley12.07.2010
Næstu helgi fer fram þriðja stigamót sumarsins, en það verður haldið á Flúðum föstudaginn 16. - 17. júlí. Sunnudaginn 18. júlí fer svo fram annað stigamót unglinga.

Eins og staðan er í dag þá er ein besta aðstaða á landinu á Flúðum, og hafa flúðamenn verið stöðugt að bæta aðstöðuna síðan þeir settu upp vellina.

Skráningu í mótið lýkur fimmtudaginn 15. júlí kl 19.00.

Þátttökugjald er sem fyrr 3.000 kr pr/lið og skal það greiðast fyrir hádegi föstudagsins 16. júlí, inná reikning Blaksambandsins, 301 - 26 - 7571, Kt. 450274-0629.

Þátttökugjald í unglingamótið er 2.000 kr pr/lið, en þeir sem keppa einnig í fullorðinsflokki greiða eingöngu fullorðinsgjaldið.

Farið inná Mótasíðuna til að skrá liðin. Athugið að unglingar geta bæði keppt í unglinga og fullorðinsflokki.


Strandblakvöllur á Hellissandi / Beach Volley CourtEnn bætast við nýir vellir á landinu

11.07.2010
Frábærar fréttir bárust í gær frá Snæfellsbæ en þá var tekin í notkun glænýr strandblakvöllur, sá vestasti á landinu.

Völlurinn er staðsettur á íþróttasvæði Umf. Reynis Hellissandi þar sem fyrir er stór grasvöllur sem var gerður árið 94 til 96, stuttur gangur er frá tjaldstæði sem er verið að byggja inn á vallarsvæðið, þar sem hægt verður að fara í hinar ýmsu boltaíþróttir, og þar á meðal að sjálfsögðu STRANDBLAK.

Við óskum Reyni Hellissandi innilega til hamingju með völlinn og hlökkum til að fá upprennandi strandblakara að vestan í mótin.


Strandblak / Beach VolleyBlautasta strandblakmót frá upphafi

11.07.2010
Í gær laugardag var haldið eitt blautasta strandblakmót frá upphafi, en það rigndi frá því mótið byrjaði um hádegið og alveg til kl 18.00 þegar búið var að ganga frá.
Það er samt ekki hægt að segja annað en keppendur hafi haft mjög gaman af mótinu og skemmt sér vel þrátt fyrir bleytuna.

Þetta var sannkallað hraðmót því spilaðir voru um 50 leikir á fjórum klukkutímum, en hver leikur var keyrður í 10 mínútur.

Svo fór að í karladeildinni sigraði liðið 3 Amigos, í öðru sæti varð Under Armour og í því þriðja varð Blake.

Í kvennadeildinni sigraði Þróttur R, í öðru sæti varð Stjarnan og í því þriðja Tres Locos.

Myndir af mótinu má sjá hér

 


Tæplega 60 manns keppa á Trimmóti HK

10.07.2010
12 kvennalið og 6 karlalið skráðu sig til leiks á Trimmóti HK sem fram fer í dag í Fagralundi, félagssvæði HK.

Þetta verður sannkallað hraðmót þar sem hver leikur er spilaður í 10 mínútur, og það lið sem hefur flreiri stig eftir þann tíma vinnur leikinn. Ef lið enda með jafna stigatölu er spiluð ein uppgjöf til viðbótar.
Keppt verður í 3ja manna liðum og hefst mótið kl 12:00.

Til þess að liðin fengju að spila við sem flesta, og einnig til þess að reyna að halda mótinu innan þess tímaramma sem gefin var í upphafi þá eru frekar spilaðir styttri leikir og örari skiptingar.

Spilað verður eftir innireglum í blaki. Undantekningar frá því ef einhverjar eru verða kynntar á staðnum.

Greiðsla þátttökugjalda sem er 4.500 kr pr/lið skal fara fram á staðnum fyrir 1. leik liðs.

Tekið skal fram að allar tímasetningar eru eingöngu til viðmiðunar, og því ber að vera á staðnum tímanlega. Einnig þarf að athuga það að ef lið þarf að draga sig úr keppni, þá riðlast allt tímaplan og því þurfa allir að vera viðbúnir.

Hér má svo sjá uppröðun leikja:

Kvennadeild Karladeild
Kvennadeild
Karladeild

Skráning hafin í Trimmót HK

06.07.2010
Laugardaginn kemur, þann 10. júlí verður haldið Trimmót HK og hefst það kl 12:00, en það verður haldið í Fagralundi í Kópavogi.

Trimmót í Fagralundi á laugardaginn / Beach VolleyÞetta er mót með þriggja manna liðum og verður mótið keyrt á tíma, þ.e. að hver leikur verður í ákveðin tíma og keppast liðin við að skora sem mest á gefnum tíma. Ef lið eru jöfn þegar tímamörkin eru komin þá er leikin ein auka uppgjöf til að skera úr um sigurliðið. Reynt verður að hafa nóg af leikjum á hvert lið svo leikmenn fái sem mest út úr deginum.

Áætlað er að mótinu ljúki um kl 16.00, en það er þó ekki alveg á hreinu fyrr en þátttökufjöldi liða er ljós.

Nú er um að gera að skrá liðið sitt og taka þátt í mótinu, en svona þriggja manna trimmót hafa alltaf verið mikil skemmtun.

Þátttökugjald er 1.500 kr pr/keppanda. Leyfilegt er að vera með skiptimann, en hægt er að skipta milli hrina, eða bara þegar skipt er um vallarhelming.

Lokað verður fyrir skráningu föstudaginn 9. júlí kl 19:00.

Skráðu liðið þitt hér.


Trimmót HK verður haldið næsta laugardag

06.07.2010
Laugardaginn 10. júlí verður haldið trimmót í Fagralundi í Kópavogi. Keppt verður í 3ja manna liðum og allir velkomnir sem einhverntíma hafa farið í strandblak.

Skráning í mótið verður opnuð hér á vefnum seinna í dag.


Óvænt úrslit í kvennaflokki á öðru stigamóti sumarsins

04.07.2010
Annað stigamót sumarsins var spilað á laugardaginn við frábærar vallaraðstæður á strandblakvöllunum á Þingeyri.

20 lið mættu til leiks en aldrei hafa svo mörg lið tekið þátt í stigamóti sem haldið hefur verið utan höfuðborgarsvæðisins og því greinilegt að íþróttin er að dreifa sér hratt og örugglega um landið.

Í karlaflokki spiluðu 7 lið og var fyrirfram búist við því að Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson sigruðu þann flokk, sem þeir og gerðu eftir úrslitaleik við þá Birgi Má Vigfússon og Guðmund Guðmundsson.

Flestir bjuggust við að úrslitaleikur kvenna yrði leikur Laufeyjar Bjarkar Sigmundsdóttur og Lilju Jónsdóttur við þær landsliðsstöllur Fríðu Sigurðardóttur og Birnu Baldursdóttur, þar sem Þórey Haraldsdóttir sem spilað hefur með Heiðbjörtu Gylfadóttur, með góðum árangri undanfarin ár, spilaði að þessu sinni með "unglingnum" Birtu Björnsdóttur.

Þórey og Birta komu hinsvegar á óvart og slógu Fríðu og Birnu út í undanúrslitum, og ekki nóg með það heldur gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Laufeyju og Lilju í úrslitaleik 2 - 0.

Strandblak á Þingeyri 2010 / Beach VolleyÞað má segja að þær Fríða og Birna koma mjög sterkar inn í stigamótin þetta sumarið og greinilegt að þær ætla sér stóra hluti. Þær vantar þó ennþá þá æfingu og reynslu í sandinum sem hin liðin hafa, en þegar það smellur þá verða þær til alls líklegar.

Efstu þrjú sætin í kvennaflokki urðu því eftirfarandi:
1. sæti - Þórey Haraldsdóttir og Birta Björnsdóttir (HK)
2. sæti - Laufey Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir (HK)
3. sæti - Fríða Sigurðardóttir og Birna Baldursdóttir (HK)

Efstu þrú sætin í Karlaflokki urðu eftirfarandi:
1. sæti - Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
2. sæti - Birgir Már Vigfússon og Guðmundur P Guðmundsson (HK)
3. sæti - Ólafur J Júlíusson og Ingólfur Guðjónsson (HK)

Á meðfylgjandi mynd má sjá úrslitasætin í karlaflokki, frá vinstri: Guðmundu, Birgir, Emil, Eiríkur, Ingólfur og Ólafur.


20 lið keppa á Þingeyri á morgun og er það met

02.07.2010
Nú er skráningu lokið fyrir mótið á Þingeyri en alls skráðu sig 20 lið til leiks, en aldrei hafa svo mörg lið keppt á mótinu á Þingeyri fram að þessu.

13 lið spila í kvennadeildinni og 7 lið í karladeildinni. Hér að neðan má sjá fyrstu leiki morgundagsins. Kvennadeildin keppir á báðum völlum fram yfir hádegið, en þá hefja strákarnir einnig leik.

Munið að mæta í síðasta lagi hálftíma fyrir auglýstan leiktíma. Leikur getur byrjað fyrr en auglýst er ef mótið gengur hratt fyrir sig.

Hér eru fyrstu leikirnir, en restin kemur í ljós eftir því sem mótið er spilað.

Tími Völlur 1 Tími Völlur 2
09:30 kvk 1 Jóhanna/Valdís Sólveig/Jamie 09:30 kvk 2 Brynja/Hjördís E
10:00 kvk 3 Fjóla/Guðrún Hjördís G/Berglind S 10:00 kvk 4 Auður/Guðrún Ásdís/Harpa G
10:30 kvk 5 Berglind G/Elísabet Eyrún/Guðrún S 10:30 kvk 6 Þórey/Birta (sigurlið leik 1)
11:00 kvk 7 (Sigurlið leik 2) Fríða/Birna 11:00 kvk 8 (Sigurlið leik 3) (Sigurlið leik 4)
11:30 kvk 9 (Sigurlið leik 5) Laufey/Lilja 11:30 kvk 10
12:00 kvk 11 12:00 kvk 12
12:30 Leiðréttingartími 12:30 Leiðréttingartími
13:00 kvk 13 13:00 kk 1 Valli/Reynir Óli J/Ingó
13:30 kvk 14 13:30 kk 2 Biggi/Gummi Ari/Jón
14:00 kvk 15 14:00 kk 3 Orri/Ivo Bjarki/Daníel
14:30 kvk 16 14:30 kk 4 (Tap 2) (Tap 3)
15:00 kvk 17 15:00 kk 5 Emil/Eiki (Sigur 1)
15:30 kvk 18 15:30 kk 6
16:00 Leiðréttingartími 16:00 Leiðréttingartími
16:30 kvk 19 16:30 kk 7
17:00 kvk 20 17:00 kk 8
17:30 kvk 21 17:30 kk 9
18:00 kvk 22 18:00 kk 10
18:30 kvk 23 18:30 kk 11
19:00 Frítími meðan KK spila úrslitaleikinn 19:00 kk 12 ÚRSLITALEIKUR KK
19:30 kvk 24 ÚRSLITALEIKUR KVK 19:30

Stigamót II 3. - 4. júlí - Skráning hafin

Stigamót II á Þþingeyri / Beach Volley28.06.2010
Skráning er hafin í stigamót II sem fram fer um næstu helgi.

Mótið fer fram á frábærum völlum Þingeyringa en það er orðin hefð fyrir því að spila stigamót á Þingeyri á hverju sumri. Strandblakmótið fer nú fram á Dýrafjarðardögum sem er sannkölluð gleðihátíð Þingeyringa.

Frábært tjaldsvæði er á staðnum, góð sundlaug og skemmtilegt fólk. Heyrst hefur að allir strandblakarar ætli á Þingeyri.

Mótið hefst kl 9.30 á laugardags morgni og verður reynt að keyra það í gegn á einum degi, en sunnudagurinn er hafður til vara ef það ekki næst.

Þátttökugjaldið er 3.000 kr á lið og á aða greiða ekki seinna en á föstudag inná reikning 301 - 26 - 7571 kt. 450274-0629, setjið "nafn+stigamót 2" sem skýringu. Kvittun þarf einnig að prenta út og taka með sér á mótsstað.

Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudagskvöldið 1. júlí.

Smellið hér til að komast á skáningingarformið


Framtíðin er björt í strandblakinu

27.06.2010
Um helgina fór fram fyrsta stigmót af fjórum í sumar og má með sanni segja að framtíðin sé björt í strandblakinu, en frábær þátttaka var á unglingamótinu sem fór fram samhliða stigamótinu.

Stigamótið var spilað frá kl 18-22:30 á föstudag, og svo frá kl 9-21:40 á laugardag, og því sannkallað maraþon mót fyrir þá sem lengst þurftu að spila.

Veðrið setti smá strik í reikninginn þó svo engum leik hafi verið frestað vegna mikillar úrkomu á föstudag, en boltarnir eru greinilega ekki gerðir fyrir íslenska úrkomu og urðu mun þyngri en venjulega. Sandurinn var líka þungur og erfiður og leikurinn eftir því.
Strandblakarar létu það þó ekki á sig fá og spiluðu af hörku, og sáust flott tilþrif bæði í smassi og björgunum.

Á sunnudeginum var svo fyrsta unglingamótið af þremur í sumar, en þetta er jafnframt fyrsta unglingamótið sem haldið hefur verið. Það er greinilegt að þetta hitti í mark því 10 lið skráðu sig til leiks og skemmtu allir sér vel á mótinu. Það má því búast við að á næsta unglingamóti, sem haldið verður á Flúðum 18. júlí, verði fjöldi unglingaliða jafnvel tvöfalt meiri.

Úrslitin á mótinu urðu eftirfarandi:

Efstu sætin í unglingaflokki stúlkna / Beach VolleyStigamót I - kvenmenn
1. sæti - Laufey Björk Sigmundsdótti og Lilja Jónsdóttir (HK)
2. sæti - Heiðbjört Gylfadóttir og Þórey Haraldsdóttir (HK)
3. sæti - Birna Baldursdóttir og Fríða Sigurðardóttir (HK)

Stigamót I - karlmenn
1. sæti - Einar Sigurðsson og Karl Sigurðsson (HK)
2. sæti - Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
3. sæti - Orri Þór Jónsson og Ivo Bartkevics (HK)

Unglingamót I - stúlkur
1. sæti - Birta Björnsdóttir og Steinunn Helga Björgólfsdóttir (HK)
2. sæti - Auður Anna Jónsdóttir og Guðrún Margrét Jónsdóttir (KA)
3. sæti - Hjördís Eiríksdóttir og Rósa Dögg Ægisdóttir (Stjarnan)
(myndin til hægri sýnir efstu þrjú sætin í unglingaflokki kvenna, talið frá vinstri: Hjördís, Steinunn, Birta, Guðrún og Auður. Á myndina vantar Rósu.)

Unglingamót I - piltar
1. sæti - Ólafur J Júlíusson og Ingólfur Guðjónsson (HK)
2. sæti - Alexander Sævar Guðbjörnsson og Geomar M. Orbon (Stjarnan)
3. sæti - Magnús Ingvi Kristjánsson og Ólafur Arason (HK)

Efstu sætin í unglingaflokki pilta / Beach Volley
Á myndinni eru 3 efstu sætin í unglingaflokki pilta, talið frá vinstri:
Ólafur Arason, Magnús, Ingólfur, Ólafur J, Alexander og Geomar.

Endilega ef þið eigið einhverjar skemmtilegar myndir frá mótinu, sendið þær þá á strandblak@strandblak.is


Unglingamótið á sunnudaginn - Leikjaniðurröðun

26.06.2010 kl 11:00
6 stúlknalið og 4 piltalið skráðu sig til leiks í Unglingamótið, en það hefst kl 10:00 sunnudaginn 27. júní.

Keppt verður einföld umferð "allir við alla". Hér má sjá leikjaniðurröðun:
Mæting er 30 mín fyrir leik.

Kl Nr. Völlur 1   Kl Nr. Völlur 2  
10:00 1 Auður/Guðrún Fjóla/Jórunn 10:00 2 Hrafnhildur/Hugrún Birta/Steinunn
10:30 3 Fjóla/Jórunn Hjördís/Rósa 10:30 4 Birta/Steinunn Berglind/Elísabet
11:00 5 Hjördís/Rósa Auður/Guðrún 11:00 6 Hrafnhildur/Hugrún Berglind/Elísabet
11:30 7 Fjóla/Jórunn Birta/Steinunn 11:30 8 Berglind/Elísabet Hjördís/Rósa
12:00 9 Auður/Guðrún Hrafnhildur/Hugrún 12:00 1 Alexander/Geomar Maggi/Óli A
12:30 10 Birta/Steinunn Hjördís/Rósa 12:30 2 Óli J/Ingó Alexander/Guðmundur
13:00 11 Hrafnhildur/Hugrún Fjóla/Jórunn 13:00 3 Alexander/Geomar Óli J/Ingó
13:30 12 Berglind/Elísabet Auður/Guðrún 13:30 4 Maggi/Óli A Alexander/Guðmundur
14:00 13 Hjördís/Rósa Hrafnhildur/Hugrún 14:00 5 Alexander/Guðmundur Alexander/Geomar
14:30 14 Fjóla/Jórunn Berglind/Elísabet 14:30 6 Maggi/Óli A Óli J/Ingó
15:00 15 Auður/Guðrún Birta/Steinunn 15:00      

 


Blautur en flottur dagur að baki - Næstu leikir

26.06.2010 kl 01:00
Eftir frábæra daga undanfarið þurfti aðeins að vökva í Fagralundi, en það var gert svo um munaði í byrjun móts í dag. Keppendur létu votviðrið ekki á sig fá og spiluðu 16 leiki. Sem betur fer var blanka logn þó það rigndi aðeins svo þetta var bara ekki svo slæmt, þó svo boltarnir minntu meira á körfubolta vegna þyngdar í votviðrinu.

Mótið hefst kl 9:00 í fyrramálið og verður spilað í kvennadeildinni á báðum völlum til kl 12:30, þá hefst karladeildin og verður þá spilað í báðum deildum á sitthvorum vellinum.

Hér má sjá þá leiki sem þegar eru tímasettir:

Konur - Laugardagsleikir
 
Konur - Laugardagsleikir
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
09:00 (7) Heiða/Þórey Auður/Guðrún   09:00 (8) Lilja/Laufey Hera/Oddný
09:30 (9) Birta/Steinunn Ásta/Kolla   09:30 (10) Birna/Fríða Karen B/Inga Rut
10:00 (11) Olga/Lilja M (Sigurlið úr leik 7)   10:00 (12) Brynja/Hjördís Fjóla/Guðrún K
10:30 (13) Berglind/Elísabet (Taplið úr leik 7)   10:30 (14) Kristbjörg/Karen R Eva/Valdís
11:00 (15) Þórey/Svala (Taplið úr leik 10)        
Karlar - Laugardagsleikir
 
Karlar - Laugardagsleikir
12:30 (11) Þór/Valgeir Maggi/Óli A   13:00 (12) Ingó/Óli J Orri/Ivo
13:30 (13) Reynir/Valli Einar/Kalli   14:00 (14) Emil/Eiki Birgir/Gummi
Karlar - AUKALEIKIR
 
Karlar - AUKALEIKIR
17:00 (21) Halldór/Þór V Arnar/Hafsteinn   17:30 (22) Alexander/Geomar (sigurlið úr leik 21)

Athugið að aðrir leikir raðast eftir því sem mótinu fram gengur og ekki hægt að tímasetja næstu leiki. Eingöngu verður hægt að sjá það á staðnum á morgun.

Áætlað er þó að úrslitaleikirnir verða spilaðir á morgun. Karlaleikurinn á að hefjast kl 18:00 og kvennaleikurinn strax á eftir, eða 18:30.

Þeir sem ekki hafa enn greitt þátttökugjald eru beðnir að gera það fyrir þeirra leik á morgun. Best er að leggja inná reikninginn sem tekin er fram hér að neðan.



Yfir 70 strandblakleikir verða spilaðir um helgina

25.06.2010 kl 02:30
31 leikur verður spilaður í kvennadeildinni og 22 leikir hjá körlunum. 21 leikur verður spilaður í unglingaflokki sem fram fer á sunnudaginn. Þetta gera ca 37 klukkustundir í spili, en gert er ráð fyrir að meðal strandblakleikur sé um 30 mínútur.
Það segir sig því sjálft að ekki er lengur hægt að halda svona mót á þeim stöðum þar sem eingöngu er boðið uppá 1 strandblakvöll.

Kvenna- og karla deildirnar hefjast í kvöld kl 18:00 og verða spilaðir 6 leikir í kvennadeild en 10 leikir í karladeild.

Með smá púslispili tókst að raða mótinu þannig að liðin sem koma lengst að ættu að hafa nægan tíma til að jafna sig eftir langt ferðalag áður en þau spila, en 2 lið koma frá Akueyri og 2 lið frá Egilsstöðum, og fögnum við þeim innilega.

Mótið hefst sem fyrr segir kl 18.00 og spilað til rúmlega 22:00 (mæting 17:30 hjá fyrstu liðum). Mótið hefst svo aftur í fyrramálið kl 9:00 (mæting 8:30 hjá fyrstu liðum).

Þar sem tímasetning leikja er mjög þétt eru liðin beðin um að vera á staðnum ekki seinna en 30 mín fyrir auglýstan leiktíma. Einnig geta tímasetningar skorðast og er það á ábyrgð liða að fylgjast með, hvort sem um seinkanir er að ræða eða leikjum flýtt.

Greiðsla skal fara fram fyrir fyrsta leik liðs og er gjaldið 3.000 kr pr/lið. Bæði er hægt að greiða á staðnum með peningum, eða sem er betri kostur, að leggja inná reikning Blaksambandsins.
Reikningsnúmerið er: 301 - 26 - 7571 kt: 450274-0629.
Þá er ætlast til að liðin komi með útprentaða kvittun á staðinn til staðfestingar. Vinsamlegast setjið nafn + stigamót 1 sem skýringu.

Hér er svo uppröðun á fyrstu leikjum dagsins.

Konur - Föstudagsleikir
 
Karlar - Föstudagsleikir
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
18:00 (3) Ásta/Kolla Eva/Valdís   18:00 (1) Maggi/Óli A Alexander/Geomar
18:30 (1) Þórey/Svala Hera/Oddný   18:30 (2) Orri/Ivo Halldór/Þór V
19:00 (2) Birta/Steinunn Kristbjörg/Karen R   19:00 (3) Birgir/Gummi Arnar/Hafsteinn
19:30 (5) Fjóla/Guðrún K Karen B/Inga Rut   19:30 (4) Reynir/Valli Þór B/Valgeir
20:00 (6) Olga/Lilja M Berglind/Elísabet   20:00 (5) Einar/Kalli (Sigurlið úr leik 1)
20:30 (4) Birna/Fríða Brynja/Hjördís   20:30 (6) Emil/Eiki (Sigurlið úr leik 2)
        21:00 (7) Ingó/Óli J (Sigurlið úr leik 3)
Konur - Laugardagur
  21:00 (8) (Taplið úr leik 2) (Taplið úr leik 4)
09:00 Heiða/Þórey Auður/Guðrún   21:30 (9) (Taplið úr leik 3) (Taplið úr leik 5)
09:00 Lilja/Laufey (Sigurlið úr leik(1))   21:30 (10) (Taplið úr leik 1) (Taplið úr leik 6)

Karlarnir hefja ekki leik fyrr en um hádegið á laugardag en nánari upplýsingar um það verða gefnar á staðnum eftir leiki dagsins í kvöld, en þá kemur líka í ljós hvernig næstu leikir raðast.

Gert er ráð fyrir að mótinu ljúki með úrslitaleikjum kl 18:00 og 18:30 á laugardag. ATHUGIÐ að ef mikil seinkunn verður á mótinu, mun mótsstjórn taka ákvörðun um miðjan dag á laugardag hvort flytja þurfi úrslitaleiki til sunnudags.

Tímasetning unglingamóts verður gefin út á föstudagskvöld.


Met skráning í strandblakmót

24.06.2010 kl 15:00
Nýtt met hefur verið slegið í þátttökufjölda liða á strandblakmóti, en 26 lið hafa skráð sig í mótið sem hefst annað kvöld. 15 kvennalið og 11 karlalið mæta til leiks.
Einnig eru 8 lið skráð í unglingaflokki, þar af 3 pilta og 5 stúlkna, en unglingaflokkurinn verður spilaður á sunnudag.

Við biðjum keppendur að fylgjast vel með vefsíðunni en tímasetningar fyrstu leikja verða settir hér inná síðuna í kvöld.

Búast má við að keppnin komi til með að dragast á langinn og má vel búast við því að úrslitaleikir verði jafnvel spilaðir á sunnudegi, en reynt verður eftir fremsta megni að klára mótið á laugardag, þó seint verði.


Frábær skráning í fyrsta stigamótið

24.06.2010 kl 1:43
Strandblak / Beach VolleyÞegar þetta er skrifað hafa 18 lið skráð sig til leiks, þar af 11 kvennalið og 7 karlalið, en skráningu lýkur á hádegi í dag.

Það er næsta víst að einhverjir leikir verða spilaðir á föstudagskvöldið til að létta aðeins á álagi laugardagsins, en stefnt er að því að spila úrslitaleikina um kl 16.00 á laugardaginn. Eins og áður verða úrslitaleikir karla og kvenna ekki settir á á sama tíma, heldur spilaðir eftir hvorum öðrum.

Fingurslag verður leyft í sumar og má lesa nánar um þá reglu undir síðunni Strandblakreglur hér til hliðar, en samt sem áður verður tekið mjög strangt á fingurslagi.

Strandblakráð kom saman og ákvað að 8 stigahæstu liðin eftir þau fjögur stigamót sem verða í sumar, komist inná lokamótið/Íslandsmótið sem haldið er í ágúst. Athugið að einstaklingar fá stig á hverju móti og þarf sama lið ekki að spila saman allt sumarið, heldur er samtala þeirra leikmanna sem spila saman tekin inní útreikninginn.

Einnig var ákveðið að 3 bestu mót af 4 gildi þegar reiknuð eru út stig liða/einstaklinga. Þetta þýðir í raun að ef lið kemst ekki í 1 mót, þá á það samt möguleika á að komast í lokamótið, þar sem stig 3ja móta eru eingöngu talin.

Spilað verður eftir svokölluðu tvöföldu útsláttarfyrirkomulagi. Þó er ein nýjung sem verður kynnt, en það er að öllum liðum verða tryggðir 3 leikir í mótinu, í stað tveggja áður.

Annað kvöld verður svo komin upp tímasetning fyrstu leikja hér á vefinn.



Enn fjölgar strandblakvöllunum á landinu og Trimmót á nýjum velli um helgina

24.06.2010
Strandblakvöllur Garðinum / Beach Volley courtÞað má með sanni segja að strandblakíþróttin dreifi sér hratt um landið, en nýjasti völlur landsins leit dagsins ljós í gær þegar Einar og Kalli tóku land undir fót til að aðstoða heimamenn við uppsetningu.

Það voru snillingarnir í Garðinum á Reykjanesinu sem ákváðu fyrir 2 vikum að það gæti verið skemmtilegt að hafa strandblak á Sólstöðuhátíðinni hjá sér sem fram fer 24. - 27. júní. Á innan við tveim vikum frá ákvörðun var komin upp þessi líka flotti strandblakvöllur á glæsilegum stað, rétt við Garðskagavita. Það er ekki ólíklegt að þetta sé Íslandsmet í uppsetningu því ef skoðaður er tíminn sem tekur að setja upp svona völl á höfuðborgarsvæðinu, þá er meðaltíminn líklega 2 ár og það bara vegna skrifræðis hjá þeim sem stjórna.

Að tilefni uppsetningu þessa vallar og Sólstöðuhátíðar ætla Garðbúar að slá til trimmóts í strandblaki, þar sem keppt er í 3ja manna liðum. Þeir sem ætla að taka þátt eiga að senda póst á netfangið gardur@svgardur.is. Ekkert þátttökugjald er í mótið.

Við óskum Garðbúum innilega til hamingju með þennan frábæra völl og hlökkum til að sjá strandblakara framtíðarinnar koma frá Garðinum.

Hér má sjá myndir af vellinum.


Skráning hafin á Stigamót I sem verður helgina 25. - 27. júní

21.06.2010
Næstu helgi verður fyrsta stigamót sumarsins haldið í Fagralundi í Kópavogi.

Skráning er hafin hér á vefnum en að þessu sinni verður bæði keppt í fullorðins og svo í fyrsta skipti í unglingaflokki.

Unglingaflokkur miðast við fæðingarárið 1989 eða seinna. Unglingar geta skráð sig í bæði mótin en þurfa þá eingöngu að greiða fyrir eldri flokkinn.

Nánari upplýsingar koma á vefinn í kvöld. Smelltu hér á Mótasíðuna til að skrá þig.

Skráningu lýkur á hádegi fimmtudaginn 24. júní


Snilldarmóti á Flúðum lokið

21.06.2010
Strandblak / Beach VolleyÁ laugardaginn var haldið Gröfutæknimót Hrunamanna á strandblakvöllunum á Flúðum.

Skráð til leiks voru 8 kvennalið og 4 karlalið í keppni 2ja manna liða, og svo 3 karla- og 5 kvennalið í keppni 3ja manna liða.

Dagurinn hófst í smá úða en svo stytti upp uppúr hádegi og sólin þerraði alla á staðnum og gerði daginn eftirminnilegan.

Svo fór að í kvennaflokki 2ja manna sigraði HK (Heiða og Þórey) og í karlaflokki sigraði einnig HK (Einar og Kalli).

Í flokki 3ja manna liða sigraði lið Þróttar en í karlaflokki liðið Blake.

Eftir móti var að sjálfsögðu skellt sér í ána eins og árið áður þó hitastigið hafi verið nokkrum gráðum minna en þá.

Skemmtilegt mót að baki og eiga Hrunamenn þakkir fyrir.

Hér má sjá myndir frá mótinu.


Gröfutæknimót Hrunamanna næstu helgi - Skráning

15.06.2010
Næstu helgi, nánar tiltekið laugardaginn 19. júní fer fram Gröfutæknimót Hrunamanna í strandblaki. Mótið verður haldið á einum af bestu strandblakvöllum landsins á Flúðum.

Mynd tekin á mótinu 2009Keppt verður í 2 manna og 3 manna mótum, bæði í karla og kvennadeildum.

Mótið hefst kl 10.00 í keppni 2 manna liða. Keppt verður eftir strandblakreglum að því undanskildu að hver leikur er í ákveðin tíma, í staðin fyrir ákveðin skor. Það lið vinnur sem skorar flest stig þegar tími er útrunnin. Ef lið eru jöfn að tíma liðnum skal taka eina uppgjöf til viðbótar til að skera úr um sigurvegara.
Áætlað er að 2 manna mótinu ljúki kl 14:00

3 manna mótið hefst svo kl 14:00 en það er með léttara sniði og ekki eftir ströngustu reglum, meira hugsað til skemmtunar þó svo búast megi við harðri keppni eins og alltaf. Einnig er keppt á tíma í þessu móti. Nethæðin er lægri í þessu móti.

Leyfilegt er að taka þátt bæði í 2ja og 3ja manna mótunum, en þá verður að skrá sig í bæði mót. Eingöngu þarf þó að greiða þátttökugjald einu sinni.
Þátttökugjaldið er 1.500 kr pr/þátttakanda og greiðist það á staðnum fyrir fyrsta leik.

Vinningar eru fyrir sigurvegara í báðum keppnunum og eru þeir ekki af verri endanum, gistingar á hótelum, medalíur o.fl.

Þátttakendur á mótinu fá gistingu á tjaldsvæðinu um helgina á 50% afslætti fyrir sig og maka, frítt er fyrir 12 ára og yngri.

Skráning í mótin fara fram hér á vefnum, en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum, en það verður þá að gerast klukkutíma áður en mótið hefst.


Ísland með Ítalíu í riðli

14.06.2010
Síðastliðin laugardag þann 12. júní var dregið í riðla fyrir undankeppni Ólympíuleikanna 2012, en Ísland sendir 2 karla- og 2 kvennalið til þessarar undankeppni.

Liðadrátturinn fór þannig að með Íslandi í riðli verða Spánn, Ítalía og Svíþjóð, en riðlarnir urðu eftirfarandi:
A: Sviss, Bretland, Danmörk, Malta (keppt á Möltu)
B: Þýskaland, Noregur, Slóvenía, Portúgal (keppt í Slóveníu)
C: Spánn, Ítalía, Svíþjóð, Ísland (keppt á Spáni/Kanaríeyjum)
D: Holland, Frakkland, Serbía, Liechtenstein/Ísrael (keppt í Frakklandi)
E: Tékkland, Pólland, Úkrína, Króatía (keppt í Úkraínu)
F: Rússland, Latvía, Búlgaría, Litháen (keppt í Rússlandi)
G: Eistland, Grikkland, Kýpur, Rúmenía (keppt í Grikklandi)
H: Austurríki, Slóvakía, Finnland, Tyrkland (keppt í Tyrklandi)

Á vefsíðu alþóða blaksambandsins kemur fram að ekki er búið að fastsetja dagsetningar, en líklega verði riðillinn sem Ísland leikur í, spilaður 10. - 12. september í Las Palmas á Kanaríeyjum.

Nánar á vefsíðu alþjóða blaksambandsins.


Frábæru námskeiði lokið

Peter Lyø Þjálfari06.06.2010
Nú um helgina var haldið námskeið með landsliðsþjálfara Danmerkur Peter Lyø. Alls mættu 30 manns á fyrirlestur sem hann hélt á föstudagskvöldið og svo 16 manns á námskeiðið sjálft sem keyrt var í þéttri dagskrá á laugardeginum, en eingöngu voru 16 sæti í boði.

Peter fór yfir reglur leiksins, sýndi tækni í slögum, fór yfir leikkerfi, taktik, varnar og sóknarleiki í bland við skemmtilega leiki sem hægt er að gera í sandinum. Einnig sagði hann frá nýjum reglum sem verið er að taka upp, en þar á meðal má nefna smá slökun á fingurslagsreglum í strandblaki.

Mikið var farið í fingurslagsæfingar því það er jú erfiðasta tæknin í leiknum og þarf að æfa mjög vel til að fullkomna Í framhaldi af því má geta þess að á mótum sumarsins hér heima verður fingurslag leyft að nýju, en þar sem reglurnar hafa verið svo strangar hingað til þá hafa þær sér reglur gilt hér á landi að fingurslag hefur ekki verið leyft.

Frábæru námskeiði hjá frábærum þjálfara lokið, og miðað við aðsókn, ánægju og jákvæð viðbrögn þátttakenda, þá verður þetta án efa endurtekið. Einnig kom upp hugmynd um að fara í hópferð í maí á næsta ári í strandblakskóla sem er rekin af Peter, en sá skóli er rekin bæði í Tyrklandi og á Majorca. Á vefsíðu skólans http://lyobeachcamp.dk/ má fá nánari upplýsingar um skólann, tímasetningar og verð.

Þó nokkrir nýir strandblakarar litu dagsins ljós á námskeiðinu og miðað við viðbrögð annarra og áhuga, þá má bóka Æfingahópurinnað þetta sumar verður sprengja í þátttöku móta.

Á myndinn hér að ofan má sjá Peter í íslenskri landsliðstreyju sem hann fékk þegar hann keppti hér á landi með landsliði Danmerkur árið 1986.

Myndin hér til hliðar er af hluta hópsins sem var á fyrirlestrinum á föstudag.

Fleiri myndir af námskeiðinu má sjá hér.


Breyting á tímaplani námskeiðsins með Peter Lyø

03.06.2010 - 18:20
Þar sem Iceland Express felldi niður hádegisflug til Danmerkur á sunnudeginum þarf að gera breytingar á dagskrá námskeiðsins sem hér segir:

  • Föstudagur 20:00 - 22:00 (Styttra námskeið/fyrirlestur) (óbreytt)
  • Laugardagur 11:00 - 13:00 (óbreytt)
  • Laugardagur 16:30 - 18:30 (óbreytt)
  • Laugardagur 19:00 - 21:00 BREYTING

Í staðin fyrir morguntímann á sunnudegi verður kvöld æfing á laugardegi.

Sendur hefur verið póstur til allra þátttakenda á lengra námskeiðinu.


4 lið frá Íslandi á leiðinni í undankeppni Ólympíuleikanna

FIVB30.05.20
Ísland er skráð með fjögur lið, 2 karla- og 2 kvennalið, sem koma til með að keppa í FIVB Beach Volleyball World Cup, en það er hluti af undankeppninni fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í London 2012.
Ekki er komin nákvæm tímasetning á þessari undankeppni en leikið verður í sumar (júní - ágúst).

Ekki er búið að velja landslið sem fara út enda sumarið rétt að fara af stað hér hjá okkur, en samkvæmt þeirri reglu sem farið hefur verið eftir hingað til þá eru þær stöllur Lilja og Laufey með rétt til að fara út sem annað af kvennaliðunum þar sem þær eru núverandi Íslandsmeistarar í greininni.

Nánar má lesa um þessa keppni hér.

Hér er svo listi yfir þátttökuþjóðir
Karlar
Konur


Tímasetningar á námskeiðinu hjá Peter

30.05.2010
Þar sem landsliðsæfingar verða í fullum gangi næstu helgi höfum við ákveðið að sníða tímann á námskeiðinu í kringum æfingarnar, þannig að landsliðfólkið okkar hafi færi á að mæta á námskeiðið.

Námskeiðið fer því fram á þessum tímum í Fagralundi Kópavogi:

  • Föstudagur 20:00 - 22:00 (Styttra námskeið/fyrirlestur)
  • Laugardagur 11:00 - 13:00
  • Laugardagur 16:30 - 18:30
  • Sunnudagur 09:00 - 10:00

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á strandblak@strandblak.is ef einhverjar eru.


Skráning á námskeiðið hjá Peter Lyø, landsliðsþjálfara Dana

26.05.2010
Eins og fram hefur komið verður Peter með námskeið fyrir íslenska strandblakara helgina 4. - 6. júní.
Námskeiðið verður haldið í Fagralundi Kópavogi og verður það tvískipt.

  • Lengra námskeið - Verklegt:
    6 klst. verklegt námskeið + 2 klst fyrirlestur, þar sem farið er yfir tækni, boltameðferð, leikskipulag og fleira sem nýtist keppendum.
    Kennt verður í 2 x 2 klst. laugard. 5. júní og svo 2 klst sunnud. 6. júní.
    Ath að innifalið í lengra námskeiði er einnig 2 klst. fyrirlestur/námskeið sem haldið er á föstudagskvöldið.
    Takmarkaður fjöldi kemst á þetta námskeið eða aðeins 16 manns. Því fyrr sem þú skráir þig því meiri möguleika hefurðu á að komast að.
    Verð 15.000 kr

  • Styttra námskeið/fyrirlestur:
    2 klst. námskeið/fyrirlestur.
    Haldið í fyrirlestrar/kennsluformi að kvöldi föstudagsins 4. júní
    Byrjað er á fyrirlestri inní Fagralundi og síðan farið út á strandblakvöll þar sem farið er yfir leikinn sjálfan, helstu reglur, boltatækni sýnd og fleira. Nauðsynlegt fyrir alla sem hafa áhuga á að vita meira um leikinn og vilja komast á næsta stig.
    Verð 3.000 kr

Nú er bara að skrá sig sem allra fyrst til að eiga möguleika á að komast að.
Athugið að þeir sem skrá sig fá fljótlega tölvupóst til staðfestingar á hvort námskeiðið þeir komast á.

Skráðu þig hér: SKRÁNING


Landsliðsþjálfari Dana með námskeið í byrjun júní

12.05.2010
Stórviðburður verður í strandblaki á Íslandi helgina 4. - 6. júní, en þá kemur hingað til lands Peter Lyø en hann er landsliðsþjálfari Dana í strandblaki.

Takmarkað pláss verður á námskeiðið. Nánari upplýsingar og skráning verða hér á vefnum innan skamms, fylgist með.


Sumarið er komið - Allir í strandblakBreyting á dagskrá sumarsins

09.05.2010
þar sem kvennalandslið Íslands verður að spila á Möltu helgina 11. - 13. júní hefur verið ákvðið að færa fyrsta stigamót sumarsins til 25. - 26. júní, og fyrsta unglingamótið til 27. júní.

 


Stærsta strandblaksumar frá upphafi að hefjast

02.05.2010
Nú er strandblaknefnd Blaksambandsins á fullu að undirbúa sumarið, eitt stærsta strandblaksumar frá upphafi.

Hér er smá upptalning á því sem verður í gangi:

  • Fjöldi stigamóta verður á sumrinu
  • Íslandsmót unglinga
  • Parakeppnir
  • Trimmmót (3ja manna)
  • Fleiri landslið verða send erlendis en áður
  • Unglingalandslið verða að öllum líkindum send út í æfingabúðir og mót
  • Landsliðsþjálfari Dana kemur í heimsókn í byrjun júní til að kenna okkur undirstöðuatriðin í strandblaki
  • Hugmynd er að fá hingað alþjóðlegan strandblakdómara til að kenna okkur meira í reglum íþróttarinnar
  • Fleiri vellir eru í smíðum um allt land og allt að gerast

Hér gefur að líta fyrsta uppkast af mótum sumarsins: (athugið að þetta er ekki allt staðfest. Fylgist með á vefnum ef breytingar verða.)

  • 25. - 26. júní - Stigamót I í Fagralundi Kópavogi (Ath breyting)
  • 27. júní - Unglingamót í Fagralundi Kópavogi (Ath breyting)
  • 19. - 20. júní - Gröfutæknimót Hrunamanna á Flúðum (Trimmót 3ja manna)
  • 26. júní - Parakeppni (karl/kona) í Fagralundi Kópavogi
  • 3. - 4. júlí - Stigamót II á Þingeyri
  • 10. júlí - Trimmót HK í Fagralundi (3ja manna)
  • 16. - 17. júlí - Stigamót III á Flúðum
  • 18. júlí - Unglingamót á Flúðum
  • 23. - 24. júlí - Stigamót IIII í Fagralundi Kópavogi
  • 31. júlí - 1. ágúst - Trimmót um Verslunarmannahelgina í Neskaupsstað
  • 13. - 14. ágúst - Íslandsmótið í Fagralundi Kópavogi
  • 15. ágúst - Íslandsmót unglinga í Fagralundi Kópavogi

Nú er um að gera að setja sig í gírinn, koma upp netunum, taka fram strandblaksokkana, pumpa í strandblakboltann og byrja að æfa.


Móti aflýst

21.08.2009
Það er greinilegt að það er komin smá hauststemning í blakfólk og það farið að hugsa inní hús, því ekki náðist nægileg þátttaka til að halda Opna Gröfutæknimótið sem vera átti um helgina. Því hefur mótinu því miður verið aflýst.

Allir sem vilja spila á Flúðum á morgun ættu samt að drífa sig, því vellirnir voru tættir upp í dag og sandurinn því eins mjúkur og hann getur orðið. Flúðamenn ætla sjálfir að vera á staðnum og tilbúnir að spila.


Opna Gröfutæknimótið verður haldið á laugardaginn

18.08.2009
Á laugardaginn kemur þann 22. ágúst verður haldið strandblakmót á Flúðum, og kallast það Opna Gröfutæknimótið.
Flúðamenn eru með tvo mjög svo góða velli, í frábæru umhverfi á tjaldsvæðinu þar í bæ.

Opna Gröfutæknimótið á Flúðum / Beach VolleyKeppt verður bæði í karla og kvennaflokki í tveggja manna liðum og er skráning þegar hafin hér á strandblak.is.
Þátttökugjald er 3.000 kr, og greiðist það á staðnum.

Vinningarnir eru ekki af verri endanum, en þeir hljóða uppá gistingu á Hótel Flúðum, gistingu á gistiheimilinu Grund og svo pizzuveisla ásamt einhverju fleiru.

Allir þátttakendur fá frítt á tjaldsvæðið þessa helgina.

Nú er um að gera að skrá sig og vera með á þessu síðasta strandblakmóti sumarsins.
Mótið hefst kl 10.00 á laugardaginn.

Skráning er hér Skráningarform Ath að síðasti skráningardagur er föstudagurinn 21. ágúst kl 19.00


Nýir íslandsmeistarar í karlaflokki í strandblaki en konurnar vörðu sinn titil.

15.08.2009
íslandsmótið í strandblaki var spilað í föstudag og laugardag í blíðskapar strandblak-veðri.

Þetta er stærsta íslandsmót sem haldið hefur verið en 22 lið mættu til leiks.
Aldrei hafa áhorfendur heldur verið jafn margir og á þessu móti, og var stöðugur straumur fólks á staðinn.

Styrktaraðilar okkar ( Altis ehf, Kjörís, Marko Merki, Sporthúsið, Ellingsen, Ikea, World Class, Hátækni, Hreyfing, Sambíóin, Dominos, Opin Kerfi, Byko, Örninn, og Útilíf) sáu til þess að mótið varð hið glæsilegasta og tóku þátttakendur undir það.
Kjörísbíllinn var í miklu uppáhaldi hjá öllum viðstöddum sem og hoppikastalinn fyrir börnin. Einnig var gaman að fylgjast með áhorfendum þegar þeir grófu hvað mest þeir máttu eftir fjársjóðum sem faldir voru í sandinum.

Íslandsmótið um helgina var jafnframt síðasta stigamót sumarsins og voru því krýndir stigameistarar ársins 2009.
Í kvennaflokki varð Laufey Björk Sigmundsdóttir (HK) stigameistari, en í karlaflokki urðu það félagarnir Einar Sigurðsson (HK) og Bynjar Pétursson (HK).

Unglingameistarar í strandblaki 2009 / Beach VolleyUnglingarnir okkar hafa verið duglegir að taka þátt í mótum sumarsins og voru krýndir í fyrsta sinn Íslandsmeistarar í flokki unglinga. Í stúlknaflokki varð þar Birta Björnsdóttir (HK) sem varð stigameistari, og þar með Íslandsmeistari, en í drengjaflokki urðu það Ólafur J Júlíusson (HK) og Ingólfur Guðjónsson (HK) sem urðu stiga- og Íslandsmeistarar.

Til úrslita í kvennaflokki lentu liðin sem eru búin að kljást í allt sumar, en það voru titilverjendurnir Lilja og Laufey sem spiluðu á móti Heiðbjörtu og Þóreyju.

Ekki þarf að fara mörgum orðum um þennan leik því þær Lilja og Laufey hreinlega kaffærðu andstæðingana með mjög svo þéttum og góðum uppgjöfum, ásamt því að setja boltann oftar á þá staði sem andstæðingarnir voru ekki fyrir.

Þær Lilja og Laufey urðu því Íslandsmeistarar 2009 með því að sigra úrslitaleikinn 2-0, en hrinurnar fóru 21-11 og 21-9.

Í karlaflokki spiluðu í undanúrslitum þeir Einar Sigurðsson (HK) og Brynjar Pétursson (HK) á móti Michael Overhage (Þrótti) og Vali Guðjóni Valssyni (Þrótti). Áður höfðu þessi lið mæst í mótinu og sigruðu þeir Michael og Valur Guðjón 2-0.

Michael og Valur Guðjón lentu á móti þeim Karli Sigurðssyni (HK) og Emil Gunnarssyni (HK) í 3. leik. Þetta var hörku leikur og mikil spenna og hiti í mönnum. Michael og Valur Guðjón sigruðu 1. hrinuna sannfærandi 21-11. Þeir Karl og Emil neituðu að gefast upp svo auðveldlega og sigruðu aðra hrinu 21-18. í úrslitahrinunni voru það svo Karl og Emil sem voru alltaf skrefi á undan og sigruðu hana eftir 53 mínútna leik 15-12, og voru þar með komnir í úrslitaleikinn.

Þetta varð til þess að Michael og Valur Guðjón þurftu að spila undanúrslitaleik við þá Einar og Brynjar.

Sá leikur varð ekki síður spennandi. Einar og Brynjar sigruðu fyrstu hrinuna 15-21. Michael og Valur Guðjón þá næstu 21-19. Í oddahrinunni voru það svo þeir Micahel og Valur Guðjón sem höfðu taugarnar í lagi og sigruðu hana 15-10, og þar með leikinn 2-1.

Liðin sem áttu því að spila til úrslita voru Karl og Emil gegn Michael og Vali Guðjóni. Þá kom upp hið furðulegasta mál. Valur Guðjón tók þá ákvörðun að gefa úrslitaleikinn þar sem hann var á leið í brúðkaup og varð því ekki um neinn hreinan úrslitaleik að ræða. Karli og Emil varð því dæmdur sigur í úrslitaleiknum 2-0, og hrinurnar 21-0 og 21-0.

Karl og Emil eru því Íslandsmeistarar karla 2009.

Úrslit helgarinnar urðu því eftirfarandi.

Íslandsmeistarar kvenna 2009.

1. sæti Laufey Björk Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir (HK)
2. sæti Heiðbjört Gylfadóttir og Þórey Haraldsdóttir (HK)
3. sæti Fríða Sigurðardóttir og Birna Baldursdóttir

Verðlaunahafar á Íslandsmótinu 2009 / Beach Volley

Íslandsmeistarar karla 2009.

1. sæti Karl Sigurðsson og Emil Gunnarsson (HK)
2. sæti Michael Overhage og Valur Guðjón Valsson (Þrótti)
3. sæti Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson (HK)

Verðlaunahafar á Íslandsmótinu 2009 / Beach Volley

Íslandsmeistari kvenna 2009 (unglingaflokkur) er Birta Björnsdóttir (HK)
Íslandsmeistarar karla 2009 (unglingaflokkur) eru þeir Ólafur J Júlíusson (HK) og Ingólfur Guðjónsson (HK)


Fyrstu leikirnir búnir og næstu leikir í fyrramálið

14.08.2009 kl. 22:15
Í dag voru spilaðir fyrstu leikirnir í Íslandsmótinu.

Karlariðillinn byrjaði með látum þar sem tvö af sterkustu liðum keppninnar mættust, þeir Einar og Brynjar á móti Micha og Gauja.
Eftir mjög svo jafna baráttu í fyrstu hrinu endaði hún með minnsta mun, 19-21 fyrir Micha og Gauja. Önnur hrinan var jöfn uppað 12 stigum, þá datt botninn úr leik Einars og Brynjars og töpuðu þeir hrinunni 14-21 og þar með leiknum 0-2.

Þetta er nokkuð óvenjuleg staða fyrir þá félaga þar sem þeir hafa verið á toppnum í íþróttinni undanfarin ár, og verður fróðlegt að sjá hvort þessi lið endi á móti hvort öðru í úrslitum, það gæti orðið hörku rimma.

Í kvennadeildina mættu tvö lið sem ekki hafa spilað í sumar en eru gamlir reynsluboltar. Þær Ingibjörg og Birna Halls annars vegar, og svo Fríða og Birna Baldurs hinsvegar. Bæði liðin sigruðu sína leiki í dag.

Á morgun heldur mótið áfram og eru fyrstu leikirnir settir inn hér að neðan. Ekki er hægt að setja inn alla leiki dagsins þar sem mótið raðast alveg eftir því hvort lið sigrar eða tapar, en hvert lið má tapa einu sinni áður en það fellur úr leik.

Konur - Laugardagsleikir
 
Karlar - Laugardagsleikir
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
09:30 (7) Heiða / Þórey Fjóla / Villý   12:00 (5) Einar / Brynjar Reynir / Jón Óli
10:00 (8) Birta / María Fríða / Birna B   12:30 (6) Jón / Valgeir Þór / Valgeir B
10:00 (9) Kolla / Ásta Ingibjörg / Birna H   13:00 (7) Micha / Gaui Arnar / Eiki
10:30 (10) Gunnhildur / Þórný Laufey / Lilja   13:30 (8) Óli / Ingó Kalli / Emil
10:30 (11) Hildur / Hrefna Andrea / Lilja M        
11:00 (12) Hera / Hjördís Ásthildur / Jóhanna        
11:00 (13) Svala / Gunna Stína (taplið úr leik 8)        
11:30 (14) Þórey E / Gunna Sv (taplið úr leik 9)        

Athygli skal vakin á því fyrir keppendur að eftir mótið er keppendum boðið uppá grill á staðnum. Einnig verður dregið í happadrætti keppenda þar sem veglegir vinningar eru í boði. Eingöngu verður þó dregið úr nöfnum þeirra keppenda sem verða á staðnum eftir úrslitaleikina.

Áhorfendur ættu heldur ekki að víkja af staðnum fyrr en eftir úrslitaleiki því að fjársjóðsleitin ógurlega fer fram milli úrslitaleikja. Þar eiga áhorfendur möguleika á að grafa upp úr sandinum GSM síma, heilsuræktarkort og markt fleira.


Fyrstu leikirnir spilaðir föstudag

14.08.2009 kl. 00:22
Nú er búið að raða þeim leikjum sem verða spilaðir á föstudagskvöldi, og eru þeir eftirfarandi:

Konur - Föstudagsleikir
 
Karlar - Föstudagsleikir
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
17:00 (4) Kolla / Ásta Hildur / Hrefna   18:30 (1) Einar / Brynjar Micha / Gaui
18:00 (2) Birta / María Hera / Hjördís   19:00 (2) Reynir / Valli Arnar / Eiki
18:30 (3) Ásthildur / Jóhanna Fríða / Birna B   19:30 (3) Óli J / Ingó Jón / Valgeir H
19:00 (1) Þórey E / Guðrún s Fjóla / Villý   20:00 (4) Kalli / Emil Þór Bæring / Valgeir B
19:30 (6) Gunnhildur / Þórný Svala / Gunna Stína        
20:00 (5) Andrea / Lilja M Ingibjörg / Birna H        

Mótið heldur síðan áfram á laugardagsmorgni og raðast liðin á móti hvert öðru eftir frammistöðu þeirra frá föstudeginum, hvort þau hafi unnið þá eða tapað. Spilað er eftir tvöföldu útsláttarkerfi þannig að allir eiga í það minnsta 1 leik á laugardeginum.

Reiknað er með að úrslitaleikirnir verði spilaðir kl 17:30 karlaleikurinn og 18:00 kvennaleikurinn, en mótið stendur allan daginn fram að því.

Konur - Laugardagur
 
Karlar - Laugardagur
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
09:30 (7) Heiða / Þórey (sigurvegari úr leik 1)   12:00 (5) (taplið úr leik 1) (taplið úr leik 2)
10:00 (8) (sigurvegari úr leik 2) (sigurvegari úr leik 3)   12:30 (6) (taplið úr leik 3) (taplið úr leik 4)
10:00 (9) (sigurvegari úr leik 4) (sigurvegari úr leik 5)   13:00 (7) (sigurlið úr leik 1) (sigurlið úr leik 2)
10:30 (10) (sigurvegari úr leik 6) Lilja / Laufey   13:30 (8) (sigurlið úr leik 3) (sigurlið úr leik 4)

Mesti fjöldi liða til þessa

13.08.2009 kl. 20:30
Aldrei hafa jafn mörg lið tekið þátt í Íslandsmóti, en 22 lið hafa skráð sig til leiks.

Eins og fyrr eru konur þar í meirihluta eða 14 lið, karlaliðin eru 8.

í þessum töluðu orðum er verið að raða niður leikjunum og verður það komið á vefinn í kvöld. Einhver lið koma til með að leika annað kvöld (föstudagskvöld) og verður hringt í þau lið í kvöld og þau látin vita.


Frábær skráning

12.08.2009
Nú er einn dagur eftir til að skrá liðið sitt en það stefnir allt í að þetta verði allra stærsta Íslandsmót til þessa.

Þar sem svo mörg lið eru þegar búin að skrá sig til leiks þurfum við að spila einhverja leiki á föstudagskvöldinu.
Það kemur í ljós annað kvöld, þegar skráningu lýkur, hvaða lið gætu þurft að mæta á föstudagskvöldið, en haft verður samband við þau lið símleiðis annað kvöld.

Áætlað er að mótið sjálft ljúki kl 18:30 á laugardaginn en úrslitaleikirnir eru settir á kl 17:30 (karlar) og 18:00 (konur).

Meðan á úrslitaleikjunum stendur verður fjársjóðsleit fyrir áhorfendur, þar sem ýmis gull verða grafin í sandinn og áhorfendur leita. Einnig verður happadrætti fyrir keppendur, en eingöngu er dregið úr nöfnum þeirra keppenda sem verða á staðnum þegar úrslitaleikirnir fara fram.

Veitingasala verður á staðnum en einnig verður keppendum boðið uppá grillaða borgara í lok móts.


Íslandsmótið næsta laugardag - Skráning hafin

10.08.2009
Íslandsmótið í strandblaki 2009 / Beach VolleyNæsta laugardag þann 15. ágúst verður Íslandsmótið í strandblaki haldið. Mótið verður haldið á strandblakvöllum HK í Fagralundi og hefst það stundvíslega kl 9.00.

Eftir mótið verða krýndir Íslandsmeistarar karla og kvenna, Íslandsmeistarar unglinga og svo stigameistarar karla og kvenna, en þrjú stigamót hafa verið haldin í sumar og er þetta mót það síðasta á sumrinu sem gefur stig til stigameistara.

Búist er við að þetta verði stærsta Íslandsmót til þessa þar sem fjölmargir hafa verið að sækja strandblakvelli landsins undanfarið til æfinga.

Margt skemmtilegt verður gert meðan úrslitaleikirnir fara fram, Kjörísbíllinn verður á staðnum, fjársjóðsleit fyrir áhorfendur, happdrætti keppenda, grill fyrir keppendur eftir mót og eitthvað fleira.

Tímasetning leikja verður sett hér inn á fimmtudagskvöldið, eftir að skráningu lýkur.
Þátttökugjald á mótinu eru 4.000 kr pr/lið og greiðast þær á staðnum fyrir fyrsta leik.

Skráning er hafin en henni lýkur fimmtudaginn 13. ágúst kl 20.00

Skráðu þitt lið hér Skráningarform


Staðan í stigakeppninni

27.07.2009
Nú þegar hafa 3 mót verið haldin í sumar sem gefa stig til stigameistara. Eitt mót er eftir og er það Íslandsmótið sem haldið verður þann 15. ágúst, en þá kemur í ljós hver verður stigameistari karla og kvenna 2009.

Íslandsmeistarar unglinga verða einnig krýndir á Íslandsmótinu í ágúst og eru það heildar stigin úr stigamótum sumarsins ásamt þeim stigum sem fást á Íslandsmótinu sem skera úr um það hver eða hverjir hljóta þann titil.

Hægt er að skoða stigin hjá hverjum og einum á síðunni "Stigastaða" hér vinstra megin á síðunni.


Úrslit eftir bókinni

26.07.2009
Formaður og framkvæmdastjóriÞriðja stigamót BLÍ sumarið 2009 var spilað í frábæru veðri eins og önnur mót, en við höfum verið sérlega heppin með veður á þeim mótum sem spiluð hafa verið í sumar.

Dagurinn var frábær í alla staði, mótið gekk mjög vel fyrir sig og virtust allir þátttakendur sem og áhorfendur, sem voru mun fleiri en áður, vera mjög ánægð eftir daginn.
Kjörísbíllinn mætti á svæðið og fengu áhorfendur ís að vild. Eftir mótið voru grillin tekin fram og keppendur sem og áhorfendur borðuðu saman, og myndaðist frábær stemning á mótsstað og er óhætt að segja að þessi háttur verður hafður á í komandi mótum.
Ekki voru þeir síður ánægðir Jason Ívarson formaður Blaksambands Íslands og Sævar Guðmundsson framkvæmdarstjóri Blaksambandsins, en þeir kíktu við til að leggja blessun sína á mótið. Myndin hér til hægri er einmit af þeim herramönnum.

Einar Sig í smassi / Beach VolleyÚrslit mótsins voru eftir bókinni ef svo má segja þar sem landsliðin, bæði karla og kvenna, unnu sína flokka.

Í úrslitum í kvennaflokki spiluðu núverandi Íslandsmeistarar Lilja og Laufey á móti Landsmótsmeisturunum Heiðu og Þóreyju. Lilja og Laufey komu mun ákveðnari til leiks eftir að hafa tapað fyrir þeim Heiðu og Þóreyju fyrr um daginn. Fyrri hrinan var allan tíman þeirra Lilju og Laufeyjar og unnu þær hana 21-15. Seinni hrinan var mun jafnari en fór þó svo að lokum að þær Lilja og Laufey sigruðu þá hrinu einnig 21-18, og þar með leikinn 2-0.

Í karlaflokki mættust núverandi Íslandsmeistarar Einar og Brynjar á móti Landsmótsmeisturunum Karli og Emil. Þessi lið höfðu mæst fyrr um daginn í leik sem fór í oddahrinu, en í úrslitaleiknum var aldrei spurning hver færi með sigur af hólmi. Einar og Brynjar sigruðu fyrri hrinuna 21-16 en þá seinni 21-12, og þar með leikinn 2-0.

Efstu þrjú sætin urðu því þannig:

Karlar:
1. sæti Einar Sigurðsson og Brynjar Júlíus Pétursson (HK)
2. sæti Karl Sigurðsson og Emil Gunnarsson (HK)
3. sæti Ingólfur Hilmar Guðjónsson og Ólafur Jóhann Júlíusson (HK)

Úrslit karlar / Beach Volley
Frá vinstri: Emil, Kalli, Brynjar, Einar, Óli J og Ingó.

Konur:
1. sæti Laufey Björk Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir (HK)
2. sæti Heiðbjört Gylfadóttir og Þórey Haraldsdóttir (HK)
3. sæti Kolbrún Júlía Erlendsdóttir og Ásta Sigrún Gylfadóttir (HK)

Urslit kvenna / Beach Volley
Frá vinstri: Heiða, Þórey, Laufey, Lilja, Kolla og Ásta

Eins og sjá má ber HK ennþá höfuð og herðar yfir önnur íþróttafélög í strandblaki, en því má einna helst þakka að HK var fyrsta liðið sem fékk strandblakvelli til umráða.
Ekki er þó víst að HK verði lengi eitt á toppnum þar sem fleiri félög hafa verið að fá velli að undanförnu, eins og Hrunamenn á Flúðum, Egilsstaðabúar, Mosfellingar og fleiri.
Einnig hafa þó nokkur lið víða um landið fengið til sín þjálfara frá HK til að kenna þeim íþróttina og verður þess ekki langt að bíða að önnur félög komist í verðlaunasæti.

Næsta stórmót er svo Íslandsmótið sem haldið verður þann 15. ágúst í Fagralundi, en búast má við að þá verði slegin öll met í fjölda þátttakenda, þar sem mikil vakning hefur orðið í íþróttinni í sumar.

Önnur mót á dagskrá eru trimmót í Neskaupsstað um verslunarmannahelgina og svo Opna Gröfutæknimótið á Flúðum þann 22. ágúst. Nánar um mótin má lesa inná síðunni Mót, þar sem talin eru upp strandblakmót sumarsins.

Strandblak.is þakkar keppendum og áhorfendum fyrir skemmtilegan og vel heppnaðan dag.


Bætt aðstaða - grill og kökur eftir mót

24.07.2009
Aðstaðan í Fagralundi hefur verið bætt frá síðasta móti, en girðing er komin í kringum mest allan völlinn til að varna því að boltarnir þjóti yfir í Strandblak / Beach Volleyballannað póstnúmer.

Tjald verður á staðnum fyrir veitingar og keppendur ef það byrjar að dropa á mannskapinn.

Veitingar, samlokur, kaffi, Trópí og eitthvað slíkt verða til sölu á staðnum.

Grill og kökur eftir mót!
Við ætlum svo að gera okkur glaðan dag eftir mótið. Við hjá Strandblak.is ætlum að mæta á staðinn með tvö gasgrill og geta keppendur sem og aðrir fengið að setja eigin góðgæti á grillið eftir mót. Einnig hefur heyrst að einhverjar myndar konur ætli að mæta með kökur í eftirrétt, en það er að sjálfsögðu allt frjálst. Ef þú vilt mæta með köku líka þá væri það bara gaman.

Nú er bara að mæta með útilegustólana, teppin, grillmatinn, drykkina og frábæra strandblakskapið, og hafa fjör og gaman allan daginn í góðum félagsskap.


Uppröðun fyrstu leikja fyrir mótið á morgun (25. júlí)

24.07.2009
Það er sérlega ánægjulegt að segja frá því að skráning í 3. stigamót sumarsins slær fyrri met, en 21 lið eru skráð til leiks, 9 karlalið og 12 kvennalið. Það er því ljóst að þetta verður langur laugardagur hjá sumum.

Fyrstu leikir hefjast kl 9.00 hjá konum en kl 10.30 hjá körlum. Öll lið eru minnt á að mæta ekki seinna en hálftíma fyrir auglýstan leiktíma þar sem tímaplan á svona mótum getur breyst hratt.

Hér má sjá uppröðun fyrstu leikja:

Konur   Karlar
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
09:00 (1) Gabriela / Lilja M Heidi / Svala   10:30 (1) Reynir / Orri Hafsteinn / Kristján
09:00 (2) Elísabet / Berglind Þórey E / Guðrún   11:00 (2) Óli J / Ingó Halldór / Þór
09:30 (3) Ásthildur / Jóhanna Sunna / Valdís   11:30 (3) Eiríkur / Róbert Óli A / Kolbeinn
09:30 (4) Auður / Guðrún Susana / Brynja   12:00 (4) Kalli / Emil Sveinn / Steinþór
10:00 (5) Heiða / Þórey (Sigurlið úr leik 1)   12:30 (5) Einar / Brynjar (Sigurlið úr leik 1)
10:00 (6) Ninja / Gunnhildur (Sigurlið úr leik 2)        
10:30 (7) Kolla / Ásta G (Sigurlið úr leik 3)        
11:00 (8) Laufey / Lilja (Sigurlið úr leik 4)        

Greiðsla keppnisgjalda skal fara fram fyrir fyrsta leik hjá liði.


Stigamót III á laugardaginn - skráning hafin

20.07.2009
Á laugardaginn kemur þann 25. júlí verður III. Stigamót BLÍ haldið í Fagralundi í Kópavogi. Mótið hefst kl 9.00 stundvíslega og eru liðin beðin um að vera mætt tímanlega.

Stigamót á laugardaginn / Beac VolleyMikil spenna er meðal strandblakara því ljóst er að ekkert lið er öruggt í efsta sæti, ef miðað er við úrslit Landsmótsins sem fram fór á dögunum.

Mörg ný lið litu dagsins ljós á Landsmótinu og ætla þau sér sér að koma sterk inní mótið á laugardaginn.

Skráning er hafin en lokað verður fyrir skráningu föstudaginn 24. júlí kl 19.00.

Nú er um að gera að vera með, og hvetja þau lið sem ekki hafa enn tekið þátt í sumar að ná sér í smá reynslu fyrir Íslandsmótið sem haldið verður í ágúst.

Þátttökugjald er 3.000 kr pr/lið og greiðist það á staðnum fyrir fyrsta leik.

Skráðu þitt lið hér Skráningarform


Vantar þig strandblakbolta eða sandsokka ?

SandsokkarWilson strandblakbolti15.07.2009
Hefur þú áhuga á að eignast alvöru strandblakbolta?
Langar þig að spila strandblak án þess að vera að frjósa á tánum?

Við hjá Strandblak.is höfum ákveðið að taka saman pantanir fyrir boltum og sandsokkum, smelltu þá hér til að fá nánanri upplýsingar.


Úrslit Landsmótsins

13.07.2009
Ásthildur Gunnarsdóttir / Beach VolleyÞá er Landsmóti UMFÍ lokið en það var haldið í vægast sagt frábæru veðri norður á Akureyri frá miðvikudeginum 9. júlí fram á sunnudaginn 12. júlí.

Þótt strandblakið hafi verið sýningargrein á mótinu þá tóku fjölmörg lið þátt í greininni og keppnin alls ekki minni en í öðrum greinum. 16 lið tóku þátt í mótinu, 11 kvennalið og 5 karlalið.

Konurnar spiluðu eftir tvöföldu útsláttarkerfi og fór það svo að í úrslitum mættu þær Laufey Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir núverandi Íslandsmeistarar og landslið Íslands í greininni, þeim Heiðbjörtu Gylfadóttur og Þóreyju Haraldsdóttur, en þær mættu til að verja Landsmótsmeistaratitilin síðan 2007.

Fyrr um morguninn höfðu þessi lið mæst, en þar fóru þær Laufey og Lilja með öll völd í leiknum og sigruðu 2-0. Þær Heiða og Þórey fengu eingöngu 15 og 14 stig í hrinunum.

Úrslitaleikurinn var mun jafnari og mikil barátta í gangi. Þær Heiða og Þórey komu ákveðnar til leiks, og eftir mikla baráttu, flottar sóknir og varnir beggja liða fór svo að þær Heiða og Þórey unnu leikinn 2 - 1, og urðu því Landsmótsmeistarar í annað sinn.

Úrslit kvenna urðu þannig:
1. sæti Heiðbjört Gylfadóttir og Þórey Haraldsdóttir (UMSK)
2. sæti Laufey Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir (UMSK)
3. sæti Auður Anna Jónsdóttir og Harpa Björnsdóttir (ÍBA)

Karlarnir kepptu aftur á móti í einum 5 liða riðli þar sem allir kepptu við alla. Í úrslitum þar mættu núverandi Íslandsmeistarar og landslið Íslands í greininni, þeir Einar Sigurðsson og Brynjar Péturson, þeim Emil Gunnarssyni og Karli Sigurðssyni sem hafa vermt annað sætið í greininni á síðustu mótum eftir þeim Einari og Brynjari.

Það var greinilegt að þeir Emil og Karl komu mun einbeittari til leiks og sáu þeir Einar og Brynjar aldrei til sólar í leiknum sem lauk með sigri Emils og Karls, 2 - 0.

Úrslitin karla urðu eftirfarandi:
1. sæti Emil Gunnarsson og Karl Sigurðsson (UMSK)
2. sæti Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson (UMSK)
3. sæti Hafsteinn Valdimarsson og Kristján Valdimarsson (HSK)

Frábært var að sjá hve mörg lið tóku þátt og fögnum við sérstaklega þeim liðum af landsbyggðinni sem mættu í mótið, þrátt fyrir litla þekkingu og æfingar í greininni. Það er augljóst að greinin eignast fleiri og fleiri aðdáendur með hverju mótinu og ekki langt að bíða þess að sterk lið komi annarsstaðar frá en Kópavogi, sem hefur verið uppeldisstöð þeirra fremstu í dag.

Hér má sjá myndir af verðlaunahöfum í strandblakinu.

Landsmót 2009 / Beach Volley
Frá vinstri:
Brynjar, Einar, Emil, Karl, Kristján og Valdimar
Landsmót 2009 / Beach Volley
Frá vinstri:
Lilja, Laufey, Þórey, Heiða, Harpa og Auður

Úrslit strandblaksins á Landsmótinu koma í ljós á morgun sunnudag

11.07.2009 kl 23:59
Úrslit karla verða spiluð kl 12:00 á sunnudag en kvenna kl 12:30.

Þeir leikir sem eftir eru í mótinu verða spilaðir á eftirfarandi tíma:

Landsmót UMFÍ Kl. 10:00 konur (1) Heiða & Þórey (UMSK) - Lilja & Laufey (UMSK)
Kl. 10:30 konur (2) Ásthildur & Jóhanna (ÍBR) - Harpa & Auður (ÍBA)
Kl. 11:00 konur (3) Taplið úr leik 1 - Sigurlið úr leik 2
Kl. 11.30 karlar Valli & Óli A (UMSK) - Hafsteinn & Kristján (HSK), úrslitaleikur um 3. sæti karla.

Kl. 12.00 karlar Emil & Kalli (UMSK) - Einar & Brynjar (UMSK), úrslitaleikur um 1. sæti karla.
Kl. 12.30 konur úrslitaleikur um 1. sæti kvenna, en alveg er óráðið hverjar lenda í úrslitaleiknum, en það kemur í ljós með fystu leikjum í fyrramálið.

Landsmótsmeistarar 2009 kvenna og karla í strandblaki verða því krýndir kl 13.00 við strandblakvöllinn.


Niðurröðun leikja og mótsskipulag

10.07.2009 kl 20:00
Nú er loks búið að raða niður strandblakmótinu. 18 lið skráðu sig til leiks, 11 kvennalið og 7 karlalið.

Spilað verður allan laugardaginn og fram yfir hádegi á sunnudag.

Þar sem við höfum eingöngu 1 völl þá þarf að raða karla og kvennakeppninni til skiptis. Röðunin verður eftirfarandi:

Laugardagur:
Konur frá 10:30 - 15:30
Karlar frá 15:30 - 19:30
Konur frá 19:30 - 22:30 (leik lokið)

Sunnudagur:
Karlar frá 9:00 - 10:30
Konur frá 10:30 - 12:00
Karlar frá 12:00 - 12:30 (Úrslitaleikur karla)
Konur frá 12:30 - 13:00 (Úrslitaleikur kvenna)

Keppt verður eftir tvöföldu útsláttarkerfi og því eingöngu hægt að raða upp liðunum í fyrstu leikina á laugardeginum, en liðin spila á eftirfarandi tímum:
ATH! að tímasetningar eru til viðmiðunar. Sumir leikir eru mun styttri en 30 mín og því gætu leikir hafist fyrr en auglýst er. Fylgist því vel með á völlunum.

Konur   Karlar
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
10:30 (1) Hulda / Margrét Eyrún / Sólveig   15:30 (1) Óli J / Ingólfur Hafsteinn / Kristján
11:00 (2) Lilja M / Ásta Hera / Hjördís   16:00 (2) Emil / Kalli Árni / Harald
11:30 (3) Harpa / Auður Aðalheiður / Margrét   16:30 (3) Valgeir / Reynir Kolbeinn / Óli A
12:00 (4) Birta / Stefanía Brynja / Svala   17:00 (4) Taplið úr leik 2 Taplið úr leik 3
12:30 (5) Heiða / Þórey Sigurlið úr leik 1   17:30 (5) Einar / Brynjar Sigurlið úr leik 1
13:00 (6) Laufey / Lilja Sigurlið úr leik 2        
13:30 (7) Ásthildur / Jóhanna Sigurlið úr leik 3        

 


Leikjaniðurröðun tilbúin kl 20.00

10.07.2009 kl 19.07
Vegna fjölgunar liða fram á síðustu stundu þá þurfum við örlítið meiri tíma til að raða upp mótinu.

Upplýsingar verða komnar í loftið kl 20.00

Góð skráning í strandblakið á Landsmótinu

10.07.2009
Nú er skráningu í Landsmótið lokið en 9 kvennalið og 7 karlalið skráðu sig til leiks, en þetta þýðir að spila verður bæði laugardag og sunnudag.

Mótið hefst fyrir hádegi á laugardaginn og verður niðurröðun leikja og tímasetningar komnar hér á vefinn fyrir kl 19.00 föstudag.


Landsmót ATH! - Breyting á tímasetningum

Landsmót UMFÍ08.07.2009
Þar sem fjölmargir hafa beðið okkur um að færa til leiktíma og taka tillit til inniblaksins höfum við ákveðið að verða við þeirri ósk.

Strandblakmótið hefst því ekki fyrr en á laugardagsmorgni, og allir leikir spilaðir á laugardegi og jafnvel einhverjir á sunnudagsmorgni ef skráningin verður meiri en nú er orðið.

Það er slæmt að þurfa að gera þessar breytingar á auglýstum tíma, en við viljum endilega taka tillit til þeirra sem vilja spila bæði inni og úti.

Skráningartíminn hefur því verið lengdur og er síðasti skráningartími fimmtudagskvöldið.

Skráning fer fram hér Skráningarform


Landsmótið nánar - Síðasti skráningardagur

07.07.2009
Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir um það hvort hægt sé að spila bæði í inniblakinu og í strandblakinu.
Hugmyndin er að reyna eftir fremsta megni að raða strandblakinu eftir inniblakinu, en þegar er komin leikjaniðurröðun fyrir inniblakið.
Við viljum þó ekki ábyrgjast það 100% að einhverjir leikir rekist ekki á, því biðjum við alla þá sem eru í inniblakinu og ætla að skrá sig í strandblakið um að senda póst á strandblak(hjá)strandblak.is og láta vita með hvaða liði einstaklingarnir spila í inniblakinu.

Nú er um að gera að skrá sig sem allra fyrst, því skráningu lýkur kl 19.00 í kvöld.

Skráðu þig hér.


Skráning í Landsmótið

Landsmót UMFÍLandsmótið á Akureyri / Beach Volley05.07.2009
Eftir frábært mót á Þingeyri um helgina er komið að Landsmóti UMFÍ á Akureyri en það verður í gangi dagana 9. - 12. júlí. Strandblakið sjálft verður spilað á föstudegi og laugardegi.

Völlurinn á Akureyri er ný uppgerður, komin meiri sandur og fleira, meira en tilbúin fyrir mótið. Strandblakið hefst föstudagsmorguninn 10. júlí kl 9.00.

Skráning er í fullum gangi og er búist við mjög góðri þátttöku því veðurspá helgarinnar er eins og hún er sem best fyrir strandblak, sól og steikjandi hiti.

Síðasti möguleiki að skrá sig er fyrir kl 19.00 þann 7. júlí.

Skráning fer fram hér Skráningarform


Flott þátttaka á Þingeyri í dag

04.07.2009
Í dag verður II Stigmót BLÍ þetta sumarið og er það haldið á Þingeyri við Dýrafjörð. Mjög góð skráning er í mótið en 15 lið skráðu sig til leiks.

Það er greinilegt að íþróttin er að slá í gegn hjá kvennfólkinu því 11 kvennalið verða að spila á mótinu en eingöngu 4 karlalið.

Mótið hefst á slaginu 9.00


Magnað mót á Flúðum

04.07.2009
Laugardaginn fyrir viku fór fram fyrsta mótið á nýjum völlum Flúðamanna. Það er skemmst frá því að segja að þetta mót sló gjörsamlega í gegn því yfir 70 þátttakendur tóku þátt í mótinu í 22 liðum.

Brakandi sól og hiti bökuðu keppendur allan daginn og þurftu leikmenn að kæla sig í nærliggjandi á.

Keppendur sammæltust um það að þessir nýju vellir séu í hæsta gæðaflokki og verða þeir því notaðir í mótaröðina næsta sumar.

Sigurvegarar í karlaflokkiSigurvegarar í kvennaflokki
Sigurvegarar í karla og kvennaflokki í mótinu á Flúðum.


Landsmót UMFÍ á Akureyri

Landsmót UMFÍ29.06.2009
Strandblak verður að þessu sinni sýningargrein á Landsmóti UMFÍ á Akureyri, sem fer fram dagana 9. - 12. júlí.

Strandblakmótið sjálft fer fram föstudaginn 10. og laugardaginn 11. júlí, þó með fyrirvara um að það lengist fram á sunnudag vegna fjölda liða. Mótið hefst kl 9.00 á föstudeginum með tæknifundi, þar sem skerpt verður á reglum í strandblaki.

Þátttökugjald á Landsmótið eru 6.000 kr á lið en innifalið í því er aðgangur að tjaldsvæðum keppenda, aðgangur að öllum íþróttagreinum, bolur og drykkur. Ætlast er til að þátttökugjöld séu greidd á staðnum fyrir fyrsta leik.

Síðasti möguleiki að skrá sig er fyrir kl 19.00 þann 7. júlí.

Skráning fer fram hér


Skráning í Stigamót II á Þingeyri

Þingeyri 2009 / Beach Volley28.06.2009
Næsta mót á dagskrá er II. Stigamót BLÍ sem haldið verður á Þingeyri, en þetta er fjórða sumarið sem slíkt mót er haldið á þessum frábæra stað.

Mótið verður haldið laugardaginn 4. júlí og hefst það kl 9.00, mæting í síðasta lagi 8:45.

Þátttökugjald er 3.000 kr á lið og er það greitt á staðnum fyrir fyrsta leik.

Síðasti skráningardagur er fyrir kl 19.00 föstudaginn 3. júlí og fer skráning eingöngu fram hér á Strandblak.is.

Nú er um að gera að vera með í þessu móti til að missa ekki af stigum sem gilda fyrir lokamótið í ágúst.

Smellið hér til að skrá liðið. Skráningarform

Þess má geta að alltaf hefur verið frábær stemning á mótunum á Þingeyri og verður mótið í ár engin undantekning á því. Snilldar tjaldsvæði eru alveg við vellina sem og mjög góð sundlaug, en frítt er í sund fyrir alla keppendur á keppnisdag.


Strandblakið á hraðri uppleið

Strandblak / Beach Volley27.06.2009
Það er greinilega gróska í strandblakinu á Íslandi.
Þessa helgi fer fram eitt stærsta strandblakmót sumarsins á Flúðum, á nýjum völlum Hrunamanna.

Á meðan Hrunamenn og sveitungar nær og miklu fjær skemmta sér á Flúðum eru heimamenn á Þingeyri við Dýrafjörð á námskeiði í strandblaki alla helgina. Kalli Sig og Heiða sem bæði hafa verið viðriðin strandblakið frá því það byrjaði á Íslandi, halda námskeið um helgina fyrir Höfrunga og önnur lið í kring.

Næstu helgi verður svo haldið stigamót BLÍ á Þingeyri og hefst skráning í það nú strax eftir helgi. Einnig hefst skráning í Landsmótið fljótlega eftir helgi þannig að strandblakarar þurfa að hafa sig alla við til að geta tekið þátt í öllum mótum.

Þetta stefnir í stærsta strandblaksumar frá upphafi og fögnum við því innilega.

"Life is a beach" :-)


Frábær skráning í Flúðamótið

26.06.2009
Það er aldeilis frábær skráning í skemmtimótið sem verður á Flúðum á morgun laugardag, en 7 karlalið og 12 kvennalið hafa skráð sig til leiks.

Skráningu lýkur ekki fyrr en kl 11.00 á morgun en eingöngu er skráð á staðnum hér eftir.

Þetta er ein mesta skráning sem við höfum fengið í eitt mót, en það skal tekið fram að þetta er þriggja manna mót og því um eða yfir 60 manns sem verða að hamast í sandinum á morgun.

Við viljum óska Flúðamönnum innilega til hamingju með þessa nýju strandblakvelli og þetta frábæra mót. Áfram Flúðir!


Strandblak á Landsmótinu á Akureyri

24.06.2009
Rétt í þessu vorum við að fá þær frábæru fréttir að keppt verður í Strandblaki á Landsmóti UMFÍ, sem haldið verður á Akureyri dagana 9. - 12. júlí. En nýr sandur var settur í völlinn hjá Akureyringum nú í vikunni.

Skráning í mótið verður opnuð mjög fljótlega, en nánari upplýsingar verður að finna hér á síðunni um leið og þær berast.

Það lítur því út fyrir frábært sumar fyrir strandblakara, skemmtimót á Flúðum núna á laugardaginn, stigamót BLÍ á Þingeyri þann 4. júlí og svo Landsmótið strax í vikunni á eftir. Það er bara allt að gerast.


Opnunarmót á Flúðum - Skemmtimót

Opnunarmót á Flúðum / Beach Volley19.06.2009
Snillingarnir á Flúðum eru á fullu að setja upp nýja strandblakvelli.
Að því tilefni verður haldið mót á nýju völlunum laugardaginn 27. júní, og hefst það kl 12.00 (á staðartíma).

Mótið verður 3ja manna skemmtimót og keppt bæði í karla og kvennaflokki. Grillin verða á staðnum og gleði- og sumarstemning allan daginn.

Skráning í mótið er hér á Strandblak.is Skráningarform

Við hvetjum alla sem eitthvað hafa komið nálægt strandblaki, sem og aðra að taka þátt í mótinu og sýna Flúðamönnum þannig stuðning við þessar frábæru framkvæmdir.

Þátttökugjald er ekkert í þessu móti sem verður í umsjón Flúðamanna.


Úrslit fyrsta stigamótsins

13.06.2009
Fyrsta stigamót sumarsins var spilað í ekta íslensku veðri, logni, gjólu, rigningu, sól, úrhelli og svo aftur logni og blíðviðri.

Sigurvegarar í kvennaflokki / Beach VolleyMjög góð þátttaka var í mótinu og sáust margir mjög góðir leikir. Unga fólkið kom sterkt inní mótið þó svo þau hafi ekki náð að vinna þá bestu.

Í kvennaflokki sigruðu þær Laufey Björk Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir HK, þær Heiðbjörtu Gylfadóttur og Þóreyju Haraldsdóttur HK í úrslitaleik, 2 - 0.

Í karlaflokki sigruðu þeir Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson HK, þá Karl Sigurðsson og Emil Gunnarsson HK 2 - 0 í úrlitaleiknum.

Sætaskipan í kvennaflokki varð eftirfarandi:

1. Sæti - Laufey Björk Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir (HK)
2. Sæti - Heiðbjört Gylfadóttir og Þórey Haraldsdóttir (HK)
3. Sæti - Inga Lilly Brynjólfsdóttir og Dögg Mósesdóttir (HK)
4. Sæti - Birta Björnsdóttir og María Gunnarsdóttir (HK)
5-6. Sæti - Fjóla Rut Svavarsdóttir og Guðrún Kristín Einarsdóttir (Þrótti)
5-6. Sæti - Kolbrún Júlía Erlendsdóttir og Lilja Margtét (HK)
7-9. Sæti - Jóhanna Jakobsdóttir og Svala Guðmundsdóttir (Afturelding)
7-9. Sæti - Guðrún Margrét Jónsdóttir og Auður Anna Jónsdóttir (KA)
7-9. Sæti - Berglind Gígja Jónsdóttir og Særún Erla Baldursdóttir

Sætaskipan í karlaflokki varð eftirfarandi:

1. Sæti - Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson (HK)
2. Sæti - Karl Sigurðsson og Emil Gunnarsson (HK)
3. Sæti - Eiríkur R Eiríksson og Arnar Halldórsson (Stjarnan)
4. Sæti - Ingólfur Guðjónsson og Ólafur J Júlíusson (HK)
5-6. Sæti - Reynir Árnason og Valgeir Valgeirsson (HK)
5-6. Sæti - Jón H Haraldsson og Haukur Garðarsson (Afturelding)
7. Sæti - Alexander Sævar Guðbjörnsson og Hafþór Breki Bergsson (Stjarnan)

Sigurvegarar í karlaflokki / Beach VolleyFyrir fyrsta sæti í kvenna keppninni fengust 9 stig fyrir fyrsta sæti, 8 fyrir annað og svo koll af kolli. Í karlaflokki fengust 8 stig fyrir fyrsta sætið, 7 fyrir annað og svo framvegis.

Stigakeppni unglinga
Í stigakeppni unglinga til Íslandsmeistara er staðan því þannig eftir fyrsta mót:
Birta 6 stig, María 6 stig, Fjóla 5 stig, Guðrún Kristín 5 stig, Guðrún Margrét 3 stig, Auður 3 stig, Berglind 3 stig og Særún 3 stig.

Drengjamegin er staðan þessi:
Ingólfur 5 stig, Ólafur 5 stig, Reynir 4 stig, Valgeir 4 stig, Alexander 2 stig og Hafþór 2 stig.

Næsta mót
Næsta mót verður haldið á Flúðum þann 27. júní og verður það skemmtimót spilað í 3ja manna liðum, en næsta stigamót verður haldið á Þingeyri þann 4. júlí.

Á efri myndinni eru frá vinstri: Þórey, Heiða, Laufey, Lilja, Inga Lilly og Dögg.
Á þeirri neðri eru frá vinstri: Kalli, Emil, Einar, Brynjar, Eiríkur og Arnar ásamt dóttur sinni.


Frábær þátttaka á fyrsta stgamóti sumarsins

12.06.2009
Frábær þátttaka er á fyrsta stigamóti sumarsins, en 7 karlalið og 9 kvennalið skráðu sig til leiks.

Hér má sjá uppröðun fyrstu leikja. (ath að lekir geta hafist á undan skráðum tíma, ef leikurinn á undan er stuttur).

Konur
 
Karlar
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
10:00 Fjóla / Guðrún Inga Lilly / Dögg   10:00 Ingólfur / Óli J Jón / Haukur
10:30 Heiða / Þórey Berglind / Særún   10:30 Emil / Kalli Guðmundur / Alexander
11:00 Kolla / Lilja M Jóhanna / Svala   11:00 Reynir / Valli Eiríkur / Arnar
11:30 Birta / María Guðrún / Auður        
12:00 Lilja / Laufey          

Spilað verður eftir svokölluðu "Tvöföldu útsláttarkerfi" sem virkar þannig að öll lið eiga tryggða tvo leiki. Ef lið tapar leik þá á það samt möguleika á að spila til úrslita. Við annað tap liðs dettur það úr keppni.

Miðað við þennan fjölda má búast við því að úrslitaleikur karla verði spilaður um kl 16.00, en úrslit kvenna um kl 18.00.

Mikilvægt er að öll lið séu tímanlega á staðnum og séu heit þegar kemur að þeirra leik, því engin tími fæst í upphitun á sandinum sjálfum. Athugið að leikjum getur verið flýtt um nokkrar mínútur ef leikurinn á undan er stuttur.


Íslandsmeistari unglinga - Nýjung

10.06.2009
Í sumar verður í fyrsta sinn keppni milli leikmanna 21 árs og yngri um titilinn Íslandsmeistari unglinga 2009.

Keppnin fer þannig fram að á stigamótum sumarsins sem og Íslandsmótinu í ágúst, fá allir leikmenn stig eftir því hvar þeir lenda í hverju móti fyrir sig.

Þessi stig safnast saman eftir hvert mót og í lok sumars er einhver einstaklingur, eða einstaklingar hæstir að stigum. Sá einstaklingur sem verður hæstur verður krýndur Íslandsmeistari unglinga 2009.

Að sjálfsögðu verður krýndur bæði Íslandsmeistari karla og kvenna.

Nú er um að gera fyrir ykkur sem eigið möguleika á þessum titli að vera með á sem flestum mótum til að eiga möguleika.

Fyrsta mótið sem gefur stig er núna á laugardaginn. Ertu búin að skrá þig ?


Strandblakmót á laugardaginn

Laufey blokkar09.06.2009
Laugardaginn 13. júní verður fyrsta mót sumarsins sem gefur stig til stigameistara ársins 2009.

Keppt verður í 2ja manna liðum eftir strandblakreglum.

Mikill áhugi er fyrir þessu móti og miðað við aðsóknina á vellina undanfarið má búast við fjölda liða. Ef svo fer að skráning verður mjög mikil, gæti þurft að lengja mótið fram á sunnudag, en það kemur allt í ljós síðar.

Vinsamlegast skráið liðin ykkar inn sem fyrst svo auðveldara verði að gera tímaáætlun fyrir mótið.

Skráningu lýkur föstudaginn 12. júní kl 20.00.

Skráning fer fram hér Skráning í mót

Þátttökugjald er 3.000 kr pr/lið og greiðist það á staðnum fyrir fyrsta leik.

Uppröðun leikja má svo sjá hér á þessari síðu seinna á föstudagskvöldið.


Dagur 5 á Kýpur - Blað brotið í sögu strandblaks karla á Íslandi

04.06.2009
Laufey Björk Sigmundsdóttir / Beach Volley CyprusÍsland - Andorra (kvk)
Stelpurnar okkar áttu bæði góðan dag og góðan reynsludag. Þær byrjuðu á því að spila við lið Andorra kl 10.15 í morgun.

Eftir leik gærdagsins var farið í naflaskoðun til að sjá hvað mætti bæta. Þær stimpluðu það vel inn hvað mætti laga og ákváðu að einbeita sér að þeim atriðum í leiknum.

Þær byrjuðu leikinn mjög vel og voru með yfirhöndina allan tímann. Andorra kom engum vörnum við góðum uppgjöfum, flottum sóknum og skipulögðum leik stúlknanna. Svo fór að lokum að Ísland vann leikinn 2-0 og hrinurnar 21-11 og 21-12. Mjög vel spilaður leikur og flott að sjá hvernig þær nýttu sér það sem um var talað fyrir leik.

Ísland - Liechtenstein (kvk)
Stelpurnar voru í þvílíku fanta stuði þegar þær mættu Liechtenstein í dag. Þetta var leikur um að komast í fjögurra liða úrslit. Lilja fór á kostum í uppgjöfum og átti líklega um 10 ása í fyrstu hrinu. Hún fékk 4 ása úr fyrstu 5 uppgjöfunum og komu mótherjarnir engum vörnum við.

Ísland gjörsamlega mokaði sandi yfir mótherjana og sigruðu þær hrinuna 21-8, eitthvað sem sést sjaldan í strandblaki.

Lilja og Laufey virtust ekki hafa misst taktinn í annarri hrinu og byrjuðu hana mjög vel, voru yfir alla hrinuna eða þar til staðan var 19-13 fyrir Ísland.

Þá gerðist eitthvað sem engin skilur...
Liechtenstein fengu þá 3 stig í röð og staðan orðin 19-16. Ísland fékk þá 1 stig og sendiréttinn og staðan því 20-16 eða bara eitt stig í fjögurra liða úrslitin.

Þessi staða er bara þannig að það á ekki að vera hægt að tapa, og það vita allir blakarar... en það er nákvæmlega það sem er svo hættulegt, að vita að það á ekki að vera hægt að tapa í þessari stöðu, og þá sérstaklega í strandblaki þar sem allar aðstæður geta spilað inní eins og vindur, sandur og annað.
Þótt ótrúlegt megi virðast þá náðu mótherjarnir að jafna leikinn, og vinna hrinuna 22-20.

Lilja Jónsdóttir / Beach Volley CyprusÞarna virtist helst sem reynsluleysi hafi valdið því að þær töpuðu hrinunni, en þær nýttu meðal annars ekki leikhléið sem þeir áttu fyrr en í stöðunni 20-20 þegar allt var komið í óefni.

Úrslitahrinan var nánast einstefna því mótherjarnir höfðu tvíeflst við sigurinn í annarri hrinu. Þær sigruðu úrslitahrinuna 15-9, og þar með leikinn 2-1.

Ótrúlega svekkjandi niðurstaða en samt staðreynd.
Dýrmæt reynsla sem fór í bankann hjá þeim Lilju og Laufeyju sem þær hafa væntanlega með sér í komandi mót, bæði heima og heiman.

Stelpurnar enduðu því í 5. sæti á mótinu en miðað við hvernig þær léku gegn Kýpur, sem er eitt sterkasta liðið á leikunum, þá ættum við með réttu að vera meðal 3ja efstu þjóðanna. En því miður varð ekki svo í þetta skiptið.

Við getum verið stolt af stelpunum okkar sem spiluðu mjög svo vel á þessu móti og voru stígandi með hverjum leik. Ef við höfum færi á að fara erlendis og spila við þessar aðstæður nokkur skipti, þó ekki væri nema viku fyrir svona mót, þá erum við til alls líkleg.

Frábært hjá ykkur stelpur!

Ísland - Malta (kk)
Brynjar Pétursson / Beach Volley CyprusDagurinn í dag komst í sögubækurnar fyrir íslenskt strandblak karla. Karlaliðið okkar spilaði úrslitaleik um 7. sætið í keppninni og er skemmst frá því að segja að þeir unnu ekki eingöngu sína fyrstu hrinu í landsleik, heldur unnu þeir sinn fyrsta landsleik og það 2-0.

Þeir Einar og Brynjar komu vel undirbúnir til leiks og voru staðráðnir í því að gera betur en áður.
Einar er búin að kenna sér meins í baki undanfarna daga og má þar meðal annars kenna um slæmum rúmum sem hótelið býður uppá, en ekki síður því álagi sem fylgir að spila þessa erfiðu en skemmtilegu íþrótt.
Eftir baknudd og góða upphitun var hann tilbúinn í leikinn.

Liðin voru mjög jöfn og jafnt á öllum tölum. Strákarnir okkar höfðu þó alltaf frumkvæðið í fyrri hrinunni, voru einu til tveim stigum á undan og endaði hrinan með okkar sigri 21-18.

Seinni hrinan fór af stað svipað og sú fyrri og leiddu strákarnir hrinuna allt fram að síðustu stigunum, en þá komust Maltverjar upp fyrir okkar menn og leiddu síðustu stigin.
Þeir Einar og Brynjar voru þó ekki á því að gefast upp og héldu í Maltverja, voru aldrei lengra en stigi frá þeim, komust svo yfir 20-19. Eftir þetta skiptust liðin á að vera með forskot er fór svo að lokum að Ísland vann hrinuna 24-22, og þar með leikinn 2-0.

Frábærlega vel spilaður leikur hjá okkar mönnum, móttakan var mjög góð, sem og uppspil og sóknir.

Strandblakíþróttin er spiluð þannig á svona mótum að liðin taka yfirleitt annan leikmanninn fyrir hjá hinu liðinu og gefa upp á sama leikmanninn allt mótið, og það gera öll liðin. Í þessu móti var Einar fórnarlambið og tók hann á móti 90% af öllum uppgjöfum sem liðið fékk á sig. Brynjar var þá mest í hlutverki uppspilara og fórst það vel úr hendi.

Strákarnir okkar geta verið sáttir við mótið í heild, þó svo þeir hefðu að sjálfsögðu viljað komast lengra. En miðað við hin liðin þá stöndum við okkur bærilega, og ættum með réttu að vera að berjast um 5. sætið.

Ef og þegar strandblakið á Íslandi hefur fengið hús til að æfa í og keppa, þá verðum við fljót að ná upp í þann standard að sigra hvaða lið sem er af þessum þjóðum... það kemur vonandi fljótlega að því.


Dagur 4 á Kýpur - Þrír leikir í dag

03.06.2009
Ísland - Andorra (kk)
Leikurinn við Andorra hófst kl 10:15 og áttu strákarnir okkar mjög góða byrjun og virtust koma vel undir búnir gegn mjög svo sterku liði Andorra. Frábærar varnir og flottar sóknir sáust og voru liðin samstíga fyrstu stigin. Þá datt Andorra í gírinn og spiluðu gjörsamlega óaðfinnanlegan leik. Hver einasti bolti lenti á línunni og flugu Andorra menn framúr jafnt og þétt. Leikurinn endaði með sigri Andorra 2-0 eða 21-13 / 21-10.

Einar og Brynjar / Beach Volley CyprusÍsland - Monaco (kk)
Monaco liðið er samsett af ungum strákum sem eru mjög svo vel spilandi, snöggir og liprir. Annar þeirra er atvinnumaður hjá Nice í Frakklandi og hinn er strandblakari. Landsliðið okkar náði að halda út fyrri hlutann í báðum hrinum en misstu svo flugið. Einhver þreyta virtist vera í okkar mönnum síðan um morguninn og sást það best að þeir virtust ekki vera að spila sinn rétta leik, og bara úr fókus.
Leikurinn endaði með sigri Monaco 2-0 eða 21-11 / 21-12.

Strákarnir okkar eiga einn leik eftir á mótinu og er það leikurinn um 7. sætið gegn Möltu í fyrrmálið kl 10.30.

Ísland - Luxemborg (kvk)
Stelpurnar okkar voru mjög vel stemdar fyrir leikinn og ætluðu að þjarma ærlega að Luxemborg sem eru núverandi smáþjóðameistarar. Eitthvað virtust þær samt ekki hafa stillt strengina alveg rétt því samskiptaleysi og fát varð til þess að Lux náði strax forustunni og hélt henni til loka hrinunnar. Stelpurnar okkar náðu þó að klóra í bakkann og söxuðu vel á forskotið og fengu 15 stig í þeirri hrinu.

Stelpurnar okkar komu öllu ákveðnari inní aðra hrinuna. Þær höfðu frumkvæðið mest alla tímann. Um miðbik hrinunnar náðu Luxarar að saxa á forskotið og var jafnt í öllum tölum uppí 17. Þá gerðu stelpurnar nokkur mistök í staðsetningum og vörn sem varð til þess að Lux náðu að síga framúr og vinna leikinn 2-0. Hrinurnar fóru 21-15 / 21-20 fyrir Lux.

Í heildina var leikurinn mjög góður hjá okkar stelpum og greinilegt að þær eru bara á uppleið, og verður gaman að sjá hvað þær gera gegn Andorra kl 10.15 í fyrramálið. Þær eiga einnig leik kl 16.00 við Liechtenstein og er það leikur sem við eigum möguleika á að vinna. (krossum fingur :-)

 


Dagur 3 á Kýpur - Fyrsti landsleikurinn

02.06.2009
Ísland - Monaco (kvk)
Dagurinn í dag var sérstakur fyrir þær Laufey og Lilju en þær eru nýliðar í landsliðinu í strandblaki og voru að spila sinn fyrsta landsleik í þeirri íþrótt. Þær spiluðu sinn fyrsta leik á móti Monaco, en það lið spilaði til úrslita á síðustu smjáþjóðaleikum.

Lilja í hörku baráttu / Beach VolleyballEkki voru þær alveg lausar við stressið, sem er kannski skiljanlegt því þær voru að fara í sinn fyrsta landsleik, í íþrótt sem æfð er 3 mánuði á ári heima á fróni.

Stelpurnar spiluðu bara nokkuð vel en það helsta sem hrjáði þær í leiknum voru einmitt taugarnar. Þegar taugarnar bila, þá eiga grunn atriðin oft til með að gleymast og það var það sem gerðist. Monaco stjórnaði ferðinni algjörlega og gleymdu stelpurnar okkar staðsetningum, fóru ekki í hávörn og bökkuðu ekki nógu langt frá neti til að verjast sóknum sem ekki voru blokkaðar. Mistök sem koma sjaldan fyrir ef leikmenn eru yfirvegaðir.

Fyrir þá sem ekki vita þá er þjálfara ekki heimilt að vera með innáköll og leiðbeina leikmönnum í strandblaki, þannig að þegar leikmenn byrja að klikka, þá þurfa þeir sjálfir að peppa hvorn annan til að komast í gegnum þrautirnar, en það er eitt af því sem vantaði í leik liðsins, var að þær segðu hver annari meira til.

Stelpurnar náðu þó að halda út fyrripartinn í báðum hrinunum og sýndu það að þær eiga alveg heima hér á meðal þeirra bestu á smáþjóðaleikum. Ísland tapaði þessum leik 2 - 0 eða 21-16 / 21-14.

Eftir leikinn var Lilja svo dregin út í lyfjatest ásamt annari Monaco stúlkunni. Lilja hafði orð á því að þegar einhverstaðar er tekið lyfjapróf, og þótt sé dregið um hver eigi að fara, þá lendi hún nánast alltaf í þeim prófunum.

Ísland - Liechtenstein (kk)
Brynjar á æfingu / Beach VolleyballStrákarnir okkar, þeir Einar og Brynjar, áttu sinn fyrsta leik í mótinu við lið Liecthenstein (Lie), en Lie spiluðu einnig til úrslita á mótinu fyrir tveim árum í Monaco.

Leikurinn var mjög jafn og spennandi allan tímann, þar sem liðin skiptust á föstum og góðum sóknum, sem og frábærum varnarleik. Brynjar átti góðar blokkir beint í sand og Einar hamraði tuðruna eins og hann kann best. Ekki dugði þó að spila sinn besta leik til að vinna þetta sterka lið og fór svo að Ísland tapaði leiknum 2 - 0 með skorinu 21 - 17 / 21 - 18.

Strákarnir voru mjög ánægðir með sinn leik þótt þeir hafi þurft að "lúta í sand" í dag og hlakka mikið til morgundagsins, en þá eiga þeir tvo leiki, annan við Andorra kl 10.15 en hinn við Monaco kl 17.15 (Kýpverskir tímar +3).

Greinilegt er að Einar og Brynjar eru komnir í sitt gamla góða strandblakform og verða væntanlega erfiðir á mótum sumarsins.

Ísland - Kýpur (kvk)
Kvennalandsliðið okkar átti tvo leiki í dag, en sá seinni var við sterkt lið Kýpverja, en Kýpverjur unnu lið Andorra í morgun 21-5 og 21-8.

Stelpurnar voru ákveðnar að taka þennan leik föstum tökum, áttu mjög fína upphitun og voru til í slaginn, enda var tíminn frá síðasta leik notaður til að byggja sig upp aftur, bæði af orku og svo jákvæðum hugsunum.

Það var greinilegt að þær voru mjög vel undirbúnar því þær héldu vel í Kýpverjurnar allan leikinn, og misstu þær aldrei of langt frammúr sér. Stressið fór greinilega mest allt í fyrri leikinn og spiluðu þær eins og ætlast var til af þeim, börðust allan tímann, settu boltann í auðu svæðin og stóðu sig mjög vel.
Leikurinn endaði þó með sigri Kýpur stúlkna 21 - 14 og 21 - 18 eða 2-0.

Stelpurnar voru mjög ánægðar með sinn leik og fengu lof frá áhorfendum, en stór hluti af íslenskum keppendum í öðrum greinum sem keppt er í hér í Limasol fjölmenntu á leikinn og studdu stelpurnar. Takk fyrir það.

Á morgun eiga stúlkurnar svo bara einn leik og er hann kl 17.15 við Luxemborg, en þær eru meistarar frá síðustu leikum.

Á efri myndinni má sjá Lilju í hörku baráttu, en á þeirri neðri er Brynjar í upphitun.


Dagur 2 á Kýpur - Hitinn á uppleið

01.06.2009
Brennandi hiti á Kýpur / Beach Voley CyprusÍ dag tóku strákarnir og stelpurnar okkar æfingu um hádegisbilið í steikjandi hita, en mælar sýndu tæpar 40°c við strandblakvellina. Ekki var það til að kæla sandinn og héldu iljarnar áfram að brenna frá því í gær. Þetta lagaðist þó aðeins þegar við fengum vatnsslöngu til að vökva völlinn og kæla, og dugði það í einhverjar mínútur.

Hitinn var nánast óbærilegur og hafði Laufey á orði að hún ætti á tímabili erfitt með andardrátt, en það lagaðist þegar leið á æfinguna. Lilju virtist aftur á móti betur henta þetta hitastig og var hún hin sprækasta.

Um kl 19.00 fóru liðin svo í klukkustunda rútuferð til Nicosíu til að taka þátt í opnunarhátíðinni, en það er venjan að íþróttamenn geri það þó svo það dragi úr þeirri hvíld sem íþróttamennirnir þurfa í undirbúningi fyrir átökin.

Hátíðin var frekar látlaus en stemningin í íslenska hópnum var frábær, og skemmtu þau sér hið besta, enda var þetta eina stundin sem við komum til með að hitta hina íþróttamennina frá Íslandi, sökum vegalengdar milli borga.

Bæði strandblakliðin eiga leik á morgun. Kvennaliðið á tvo leiki og er sá fyrri kl 10.15 við Monaco en sá síðari kl 18.30 við gestgjafana Kýpur. Strákarnir eiga aftur á móti leik þegar sólin er í grillstuði og spila kl 11.30 við Liechtenstein.

Nú er bara spurning hvort æfingarnar í hitanum síðustu tvo daga hafi náð að venja liðin okkar við þær erfiðu aðstæður sem hér eru, steikjandi hitann og brennandi sandinn.

Á meðfylgjandi mynd má sjá þjálfara Monaco standa á handklæði í sandinum, en þó þeir séu vanari hita en liðin okkar þá gat hann engan vegin staðið í sandinum meðan hann gaf upp á liðið sitt. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig okkur íslendingunum líður sem æfum við 5° heitan sand.


Dagur 1 á Kýpur - Fótabruni og hveitihlaup

31.05.2009
Brynjar og Einar strandblakarar / Beach Volley CyprusStrandblaklandsliðin tóku fyrstu æfinguna á völlunum í dag. Æfingatíminn var ekki sá besti, eða kl 14.00 á heitasta tíma. Þetta er þó kannski besti tíminn til þess að klára sjokkið sem fylgir því að prufa andstæðar aðstæður við það sem liðið hefur æft við undanfarin mánuð, en hitinn í dag var um 35°c.

Sandurinn á völlunum hér sem er sér innfluttur frá Egyptalandi, hvítur og léttur eins og hveiti, var svo heitur að til að byrja með var ekki hægt að ganga á honum. Hópurinn þurfti að stinga fótunum niður í sandinn til að finna smá kælingu því yfirborð sandsins var líklega um 60°c heitt. þetta var svona eins og að reyna að spila strandblak á glóðum, nánast ógerlegt. Óspart var notað aftersun til kælingar undir yljar fram eftir degi.

Eftir 45 mín æfingu var ákveðið að komið væri gott, enda liðin búin að taka vel á því í bræðandi hitanum og glóandi sandi.

Önnur æfing var tekin um kl 19.00 en þá voru aðstæður allt aðrar. Hitastigið á sandinum fínt og tilfinningin öll önnur.

Lilja og Laufeyr strandblakarar / Beach Volley CyprusStrákarnir tóku léttan æfingaleik við Monaoo meðan stelpurnar tóku spretti, smöss og móttökur á vellinum við hliðina.
Allir voru sammála því að þessi æfing hefði verið fín og gaf hópnum aukið sjálfstraust, og allt annað en sjokkið eftir fyrri æfinguna.

Dagurinn í heild var mjög góður, hótelið þokkalegt fyrir utan það að reykingar eru leyfðar í andyrinu/salnum við móttökuna og maður því alltaf reyktur bæði út og inn. Maturinn er aftur mjög fínn, allavega svona á fyrsta degi.

Á efri myndinni má sjá Brynjar og Einar eftir góða æfingu, en á þeirri neðri þær Lilja og Laufey, en þeim finnst ekkert leiðinlegt að hafa tekið þá ákvörðun að velja strandblakslandsliðið í stað inniblaks.

Á morgun verður tekin ein æfing og svo hvíld fyrir átökin sem hefjast á þriðjudag.


Landsliðin í strandblaki til Kýpur á morgun

29.05.2009
Á morgun laugardag halda strandblaklandslið karla og kvenna, ásamt á annað hundrað íslenskra íþróttamanna á Ólympíuleika smáþjóða á Kýpur.

Laufey og Lilja strandblaklandslið Íslands / Beach VolleyStrandblaklandsliðin verða ásamt hluta af íslenska íþróttahópnum á ströndinni í Limassol meðan aðrir íþróttamenn keppast í Nicosiu.

Strandblaklandsliðin hafa æft mjög vel að undanförnu og eru í toppformi, en sólardagar undanfarnar vikur hafa hitað sandinn örlítið og þannig auðveldað æfingar.

Landslið kvenna að þessu sinni skipa þær Laufey Björk Sigmundsdóttir (HK) og Lilja Jónsdóttir (Þrótti), en þær eru núverandi íslandsmeistarar í greininni.

Einar og Brynjar strandblaklandslið Íslands / Beach VolleyLandslið karla er líklega reyndasta strandblakpar á Íslandi, en þeir hafa unnið íslandsmeistaratitilinn alls fjórum sinnum á síðustu fimm árum, ásamt því að hafa áður spilað á Ólympíuleikum smáþjóða. Þetta eru þeir Einar Sigurðsson (HK) og Brynjar Pétursson (HK).

Flokkstjóri strandblaksins verður Karl Sigurðsson (HK), en hann keppti einmitt ásamt Brynjari á leikunum í Monaco fyrir tveimur árum.

Hér á síðunni verða sagðar fréttir af ferðinni á hverju kvöldi og úrslit tíunduð.

Skráðu þig á póstlistann til að fá fréttirnar beint í æð.

Við óskum þeim öllum góðs gengis, sem og öllu íþróttafólki frá Íslandi.


Þjálfun í strandblaki

Þjálfun í strandblaki24.05.2009
Í sumar mun verða í boði þjálfun fyrir byrjendur og lengra komna. Einnig fyrir keppnislið sem hafa hug á að ná lengra í íþróttinni og ætla að taka þátt í mótum sumarsins.

Þjálfunin samanstendur af:
- Kennslu í reglum strandblaksins
- Tækni við móttöku og uppspil
- Slagtækni
- Uppgjafir
- Hreyfingar í sandi
- Staðsetningar í leik
- Merkingar milli manna

Meira...


Úrslit fyrsta trimmóts sumarsins

24.05.2009
Það leit ekki út fyrir gott veður samkvæmt veðurspám fyrir fyrsta mót sumarsins, en spáin hljóðaði uppá úrhellis rigningu og blástur.

Þau strandblaklið sem skráðu sig til leiks létu það nú ekki á sig fá og Sigurvegararnir kátirmættu bara í regnslám, með regnhlífarnar með sér til að hlífa sér gegn veðrinu milli leikja.
En það er svo ótrúlegt að þegar strandblakmót eru haldin, þá rætist alltaf úr veðrinu fyrir rest og voru úrslitaleikirnir spilaðir í glampandi sól og blíðu.

7 lið mættu í mótið sem var hið skemmtilegasta. Þarna voru nokkrir trimmarar í bland við landsliðsfólk og skemmtu sér allir vel.
Eingöngu skráði sig eitt karlalið en þeir fengu þá bara undanþágu og spiluðu í kvennadeildinni og fór svo að lokum að þeir sigruðu mótið eftir spennandi leik við landslið kvenna í strandblaki.

Spilað var eftir inniblakreglum og því ekki tekið hart á reglunum og þrír í hverju liði, en þó voru tvö lið sem spiluðu eftir settum strandblakreglum, núverandi- og fyrrverandi landslið og eingöngu 2 í liði. Enn eitt kvennaliðið spilaði eingöngu með tvo leikmenn, þær Ásta og Kolla, og stóðu þær sig alveg glimrandi vel.

Annar af undanúrslitaleikjunum fór fram á milli núverandi og fyrrverandi landsliða í kvennastrandblaki, og fór svo að lokum að núverandi landslið, þær Lilja og Laufey sigruðu þann hörku spennandi leik með tveimur hrinum gegn einni (21-17 / 17-21 / 15-11). Það er því greinilegt að þær eru að verða tilbúnar fyrir næsta landsliðsverkefni, en það er einmitt um næstu helgi þegar liðið fer á Ólympíuleika smáþjóða í Kýpur.

Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:
1. sæti - Austri (Jón, Haukur og Steinn)
2. sæti - Lína (Laufey og Lilja)
3. sæti - HK (Heiða og Þórey)

Myndir eru komnar inná myndasíðuna


Strandblakmót laugardaginn 23. maí

19.05.2009
Laugardaginn kemur, þann 23. maí ætla strandblaklandsliðin að halda trimmmót í Fagralundi í Kópavogi.

Landsliðin á æfingu í FagralundiKeppt verður í 3ja manna liðum karla og kvenna og er skráning þegar hafin, en henni lýkur kl 19.00 föstudaginn 22. maí.

Þátttökugjald í mótinu er 3.000 kr á lið og greiðist það á staðnum.

Mótið er hugsað sem styrktarmót fyrir strandblakliðin en þau eru á leið til Kýpur um mánaðarmótin til að keppa á Ólympíuleikum smáþjóða. Þátttökugjaldinu er stillt í hóf, aðeins 3.000 kr, ekki verður neitað að taka við hærri greiðslu :-)

Mótið hefst stundvíslega kl 10.00 á laugardeginum og verður eitthvað fram eftir degi, en fer að sjálfsögðu eftir fjölda liða.

Smelltu hér til að skrá liðið þitt


Sumarið 2009 er komið !

Strandblakið byrjað29.04.2009
Sumarið er komið þó svo veðrið sé ekki alveg á sama máli. Búið er að setja upp netin í Fagralundi en aðeins eftir að fara yfir sandinn, moka hann upp og gera mýkri.

Strandblaklandsliðin eru komin á fullt í æfingar og hafa þau meðal annars fengið að fara inní frjálsíþróttahöllina í Laugardalnum til að hreyfa sig í sandinum þar, því stutt er í Smáþjóðaleikana og því ekki seinna vænna að fara að æfa.

Strandblaknefnd blaksambandsins er á fullu þessa dagana að raða upp mótum sumarsins og verður dagskráin gefin út næstu daga.

Ef einhver lið hafa áhuga á að halda strandblakmót, 2ja, 3ja eða 4ra manna í sumar og auglýsa hér á síðunni, þá vinsamlegast hafið samband við Kalla (S. 693 3009).

Endilega skráið ykkur á póstlistann og fáið fyrstu fréttir af mótum sumarsins.

Koma svo, allir í strandblak :-)




Eldri fréttir >>>
 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour