Strandblak

Þjálfun í strandblaki

Ég býð uppá þjálfun/kennslu í strandblaki í sumar, vinsamlegast hafið samband í síma 693 3009 eða á netfangið strandblak@strandblak.is

Þjálfunin er fyrir byrjendur sem og lengra komna, hópa og pör. Tek einnig að mér að þjálfa keppnislið sem hafa hug á að ná lengra.

Karl Sigurðsson Strandblakþjálfari - Strandblak / Beach VolleyÞjálfunin samanstendur af:
- Kennslu í reglum strandblaksins
- Tækni við móttöku og uppspil
- Slagtækni
- Uppgjafir
- Hreyfingar í sandi
- Staðsetningar í leik
- Merkingar milli manna
- Þrekæfingar fyrir þá sem vilja
- Aukning á stökkkrafti fyrir þá sem vilja
- Og hreinlega allt sem viðkemur strandblaki og annari líkamsþjálfun.

Mín reynsla í strandblaki:
- 3. sæti Íslandsmóti 2010
- Íslandsmeistari 2009
- Landsmótsmeistari 2009
- Flokkstjóri landsliða Íslands á Ólympíuleikum smáþjóða á Kýpur 2009, og aðstoðarmaður liðanna á æfingum.
- Leikmaður með landsliði Íslands á Ólympíuleikum smáþjóða í Monaco 2007
- Aðstoðarmaður landsliðsins á Ólympíuleikum smáþjóða í Andorra 2005
- 2. sæti Íslandsmóti 2006, 2007 og 2008

Mín reynsla í þjálfun:
- FIVB þjálfararéttindi í strandblaki (FIVB Certified Beach Volleyball Coach) september 2011
- Landsliðsþjálfari í strandblaki kvenna U-19 fyrir NEVSA (Norðurlandamót) í Noregi 2011
- Landsliðþjálfari í strandblaki, bæði kvenna- og karlaliða 2011 fyrir Ólympíuleika smáþjóða í Liechtenstein
- Landliðsþjálfari í strandblaki, bæði kvenna- og karlaliða 2010 og fór með liðin til Las Palmas á undankeppni Ólympíuleikanna 2012
- Hélt fjölda námskeiða og þjálfaði hópa í strandblaki sumarið 2009 og 2010
- Aðstoðar landsliðsþjálfari karlalandsliðsins í blaki 2005, 2006 og 2007
- Þjálfari deildar-, bikar- og íslandsmeistara kvennaliðs Víkings 1994 - 1996
- Þjálfari kvennaliðs HK 1990-1991

Annað:
- Hef stundað blak og keppt í efstu deild í rúm 24 ár (17 - 41)
- Er formaður strandblaknefndar Blaksambands Íslands
- Rek vefsíðuna Strandblak.is
- Hef haldið utanum og skiplagt flest af þeim strandblakmótum sem hafa verið haldin undanfarin ár á Íslandi.

Ef þú hefur áhuga á að auka þekkingu þína í strandblaki, hvort sem þú ert byrjandi eða með einhverja reynslu, þá endilega hafðu samband. Nánari upplýsingar með tölvupósti eða í síma.

Karl Sigurðsson
E-mail: strandblak@strandblak.is
GSM: 693 3009

Share

<-- Til baka á forsíðu

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta