Strandblak

Dags: 23.05.2011

Strandblaklandsliðin að verða tilbúin í verkefnið

Landsliðin í strandblaki 2011 -  Strandblak / Beach VolleyNú eru strandblaklandslið karla og kvenna óðum að verða tilbúin í næsta verkefni, en það eru Ólympíuleikar smáþjóða sem fram fara í Liechtenstein vikuna 31. maí - 4. júní.
Liðin hafa notað næstum hvern einasta dag síðastliðnar 3 vikur til að venjast sandinum og slípa sig saman. Þrátt fyrir mikinn vind og þó nokkurn kulda hafa engar æfingar fallið niður, enda íslenskir strandblakarar ýmsu vanir.

Landslið kvenna að þessu sinni er skipað mágkonunum Birnu Baldursdóttur (KA) og Laufey Björku Sigmundsdóttur (HK), en Birna er einmitt kvænt bróður Laufeyjar. Þær stöllur hafa ekki spilað saman áður og en miðað við æfingar undanfarið koma þær til með að smella vel saman.
Karlaliðið samanstendur af þeim Einari Sigurðssyni (HK) og Róberti Karli Hlöðverssyni (Stjarnan), en þeir spiluðu einmitt saman sem lið á Continental Cup á Kanaríeyjum síðastliðinn október.
Þjálfari liðanna er Karl Sigurðsson.

Fyrstu leikir hefjast þann 31. maí en þá spilar karlaliðið við heimamenn kl 16.00 að staðartíma. Kvennaliðið okkar á fyrsta leik þann 1. júní kl 18.00 að staðartíma, en þær spila einnig við heimamenn í fyrsta leik.

Kvennaliðið á harma að hefna frá síðustu smáþjóðaleikum en þá voru það einmitt Liechtenstein stúlkur sem slógu okkar lið út í keppni um sæti í fjögurra liða úrslitum.

Fréttir og myndir af ferðinni verða setta hér á vefinn jafn óðum og þær berast.

Á störu myndinni með þessari frétt má sjá landsliðið í strandblaki. Frá vinstri: Einar, Róbert, Laufey og Birna.
Á minni myndunum eru frá vinstri: Róbert, Laufey, Einar og Birna.

Róbert Karl Hlöðversson - Strandblak / Beach Volley Laufey Björk Sigmundsdóttir - Strandblak / Beach Volley Einar Sigurðsson - Strandblak / Beach Volley Birna Baldursdóttir - Strandblak / Landslið

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta