Strandblak

Dags: 31.05.2011

Strandblaklandslið karla átti sinn fyrsta leik í dag

Strandblaklandsliðið á smáþjóðaleikunum / Beach Volley

Strandblaklandslið karla og kvenna eru nú stödd í Liechtenstein til þess að keppa á Ólympíuleikum smáþjóða.

Liðin komu til Liecthenstein seint á sunnudagskvöld og hafa síðan þá verið mest megnis í strætó, eða bíða eftir strætó, en það tók nokkuð langan tíma fyrir íþróttamenn frá Íslandi að átta sig á strætókerfi heimamanna.
Ekki bætir úr skák að íslendingarnir gista ekki einu sinni í Liechtenstein, heldur í Austurríki og þurfa því að krossa landamærin í hvert sinn sem þeir spila.

Bæði liðin tóku æfingar í sandinum bæði í gær og í dag, og hafa þær gengið mjög vel. Veðrið er að vísu mun betra en það sem liðin hafa verið að æfa við undanfarið, en mikill kuldi og vindur heima á fróni hafa einkennt þennan mánum eins og flestir vita, en liðin hafa eingöngu getað æft frá byrjun maí vegna snjóa.

Karlaliðið spilaði í dag
Strákarnir okkar, þeir Einar og Róbert, spiluðu sinn fyrsta leik í dag við ungt og sprækt lið heimamanna. Fastir skellir og flott spil sáust oft á tíðum hjá báðum liðum. Heimamenn höfðu þó nokkra yfirburði og sigruðu leikinn 2-0 (21-14 / 21-11).

Einar og Róbert voru þó alls ekki ósáttir við sinn leik þar sem þeir höfðu bætt sig í nokkrum leikatriðum og fannst þeim framhaldið lofa góðu.

Á morgun kl 18:00 á staðartíma spila stelpurnar okkar þær Laufey og Birna við lið heimamanna.

Á myndinni eru þeir Róbert og Einar á leið í hrinu 2.

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta