Strandblak

Dags: 12.06.2011

Úrslit fyrsta Fanta stigamóts sumarsins eftir bókinni

Laufey og Birta sigurvegarar í fyrsta Fantamóti sumarsins / Beach VolleyFyrsta mótinu í Fanta mótaröð sumarsins lauk í gær og urðu úrslit nánast eftir bókinni. Mikið var um langa, jafna og spennandi leiki og greinilegt að bilið milli liða í styrkleika er óðum að minnka.

Laugardagurinn byrjaði ekki vel, mótstjóri var nálægt því að fresta móti vegna hvassviðris en þetta er mesti vindur sem verið hefur á stigamóti frá því byrjað var að stunda þessa íþrótt hér á landi. Veðrið tók þó breytingum með íslenskum dýfum og máttu keppendur sætta sig við hvassviðri, rigningu, logn og sól.

Í úrslitaleik kvenna áttust við þær Laufey og Birta á móti Hjördísi og Fjólu. Leikurinn var skemmtilegur og spennandi og fór hann í 3 hrinur. Leikurinn endađi með 2 - 1 sigri þeirra Laufeyjar og Birtu (18-21 / 21-16 / 15-7).

Fyrstu þrjú sæti í kvennakeppninni urðu eftirfarandi:

1. sæti - Laufey Björk Sigmundsdóttir og Birta Björnsdóttir (HK)
2. sæti - Hjördís Eiríksdóttir og Fjóla Rut Svavarsdóttir (Stjarnan/Þróttur R)
3. sæti - Guðrún Elva Sveinsdóttir og Svala Guðmundsdóttir (UMFA)

Til úrslita í karlakeppninni spiluðu þeir Einar og Brynjar á móti Emil og Eiríki, en það er endurtekning frá úrslitamóti síðasta sumars. Þessi lið höfðu mæst fyrr um daginn í riðlinum en þá unnu þeir Emil og Eiríkur leikinn 2 - 1. Í úrslitaleiknum snérist þetta við sigruðu Einar og Brynjar leikinn 2 - 0 (21 - 14 / 23 - 21)

Fyrstu þrjú sæti í karlakeppninni urðu eftirfarandi:

1. sćti - Einar Sigurðsson og Brynjar J Pétursson (HK)
2. sćti - Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
3. sćti - Birgir Már Vigfússon og Guðmundur P Guðmundsson (Stjarnan/Þróttur R)

Næsta mót í Fanta mótaröðinni verðu haldið næstu helgi á Flúðum og hefst skráning í mótið nú strax í kvöld hér á strandblak.is

 

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta