Strandblak

Dags: 16.06.2011

Fyrstu leikirnir í Fanta stigamóti II hefjast á morgun 17. júní

Það er frábær skráning í þetta annað stigamót sumarsins en alls skráðu sig 24 lið til leiks. 10 kvennalið, 9 karlalið og 5 unglingalið.

Mótið er spilað á strandblakvöllunum á Flúðum, en þeir eru staðsettir í miðjum bænum, á tjaldsvæði þeirra flúðamanna. Frábær staður með heitum læk til að synda í eftir mótið, góðri sturtuaðstöðu og í fallegu umhverfi.

Fyrstu leikir mótsins hefjast á morgun föstudaginn 16. júní kl 19:00 í kvennadeildinni og svo kl 20:30 í karladeildinni. Unglingamótið á að hefjast kl 10:00 á sunnudag. Vinsamlegast hafið samband við Einar (einar @altis.is) fyrir nánari upplýsingar.

Búið er að skila inn nafnalista yfir keppendur í Tjaldmiðstöðina á Flúðum. Keppendur fá nóttina á 500 krónur og búið er að taka frá svæðið við völlinn undir tjöld, eitthvað pláss er líka fyrir vagna fjærst vellinum á þessu svæði.

Ætlast er til að lið mæti í það minnsta 30 mínútum fyrir leik, og athugið að leikir geta færst framar en tímatafla segir til um.

Hér má sjá uppröðun fyrstu leikja, en tekið skal fram að þegar raðað er í fyrstu leiki þá er farið eftir fyrirfram gefnu kerfi sem tekur mið af stigum leikmanna í síðustu tveim mótum:

Föstudagurinn 17. júní Föstudagurinn 17. júní
Völlur 1 Völlur 2
Nr. Timi Lið 1 Lið 2 Nr Tími Lið 1 Lið 2
1 19:00 Helga / Alla Oddný / Hera 2 19:00 Þórey / María Carlotta / Íris
3 19:30 Berglind / Elísabet Eyrún / Ute 4 19:30 Guðrún / Svala Susanne / Perla
5 20:00 Ingibjörg / Birta (Sigur úr leik 1) 6 20:00 Hjördís / Laufey (Sigur úr leik 2)
1 20:30 Ingó / Óli A Hörður / Rúnar 2 20:30 Valli / Óli J Orri / Lúlli
   
Laugardagurinn 18. júní Laugardagurinn 18. júní
Völlur 1 Völlur 2
Nr. Timi Lið 1 Lið 2 Nr Tími Lið 1 Lið 2
3 09:00 Einar / Brynjar Þór / Lalli 4 09:00 Óli H / Gummi Róbert / Biggi
7 09:30 kvk (tap úr leik 3) kvk (tap úr leik 2) 5 09:30 Emil / Eiki (Sigur úr leik 1)
8 10:00     6 10:00    
9 10:30     7 10:30    
10 11:00     8 11:00    
11 11:30     9 11:30    
12 12:00     10 12:00    
13 12:30     11 12:30    
14 13:00     12 13:00    
15 13:30     13 13:30    
16 14:00     14 14:00    
17 14:30     15 14:30    
18 15:30     16 15:30    

 

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta