Strandblak

Dags: 21.06.2011

Óvænt úrslit á öðru stigamóti Fanta mótaraðarinnar

Annað stigamót Fanta mótaraðarinnar var haldið um helgina á Flúðum. Skráningin var mjög góð og eitthvað um ný lið sem voru að taka þátt í fyrsta sinn, eða leikmenn að skipta um lið, para sig saman öðruvísi en áður.

Fanta mótaröðin - Elísabet, Berglind, Hjördís og Steinunn10 kvennalið og 9 karlalið skráðu sig til leiks en einnig var í fyrsta sinn keppt í unglingaflokkunum U-17 og U-21.

Núverandi íslandsmeistarar Einar og Brynjar mættu þeim Eiríki og Emil í fjórða síðasta leik. Leikurinn fór í 3 hrinur og höfðu þeir Eiríkur og Emil betur. Við þetta duttu Einar og Brynjar í neðri riðilinn og mættu þar þeim Róbert og Birgi sem komu sem nýtt lið inní keppnina að þessu sinni. Leikurinn var góður en sveiflukenndur og endaði með sigri Einars og Brynjars.

Það voru því Einar og Brynjar sem mættu Emil og Eiríki í úrslitaleik en það er endurtekning frá síðasta móti. Þá höfðu þeir Einar og Brynjar betur. Í þetta sinn gáfu þeir Emil og Eiríkur ekkert eftir og sigruðu leikinn 2-1 (16-21 / 21 - 14 / 15 - 11). Það er greinilegt á þessu að karlaliðin eru að styrkjast, fleiri sterk lið komin inn og margir farnir að gera tilkall til íslandsmeistaratitilsins.

Efstu þrjú sætin í karlaflokki skipuðu:

1. sæti - Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
2. sæti - Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson (HK)
3. sæti - Róbert Karl Hlöðversson og Birgir Már Vigfússon (Stjarnan)

Í kvennakeppninni voru einnig nokkur ný lið. Sigurvegarar síðasta móts þær Laufey og Birta skiptu sér nú í önnur lið. Laufey spilaði með Hjördísi og Birta með Ingibjörgu.

Það var því á hreinu fyrir mótið að úrslitin í kvennaflokki yrði öðruvísi en á síðasta móti.

Í 12. leik mótsins mættu þær Laufey og Hjördís þeim Guðrúnu og Svölu í þriggja hrinu leik. Laufey og Hjördís unnu þann leik 2-1 (22-20 / 15 - 21 / 15 - 9). Við þetta detta þær Guðrún og Svala niður í neðri riðil. Laufey og Hjördís mæta næst þeim Ingibjörgu og Birtu og fer sá leikur 2-0 fyrir Ingibjörgu og Birtu sem eru þá komnar áfram í úrslitaleikinn.

Laufey og Hjördís fara þá í neðri riðil og mæta þar aftur þeim Guðrúnu og Svölu, sem í millitíðinni unnu bæði Eyrúnu og Ute sem og framtíðarstjörurnar þær Elísabetu og Berglindi. Leikur þessi milli Laufeyjar og Hjördísar, og Guðrúnar og Svölu varð hörku þriggja hrinu leikur þar sem ekkert var gefið eftir. Svo fór að Guðrún og Svala uppskáru sigur í leiknum 2-1 (21-19 / 16-21 / 16-14) og stóð leikurinn í 49 mínútur sem var næst lengsti leikur helgarinnar.

Úrslitaleikurinn varð því milli þeirra Guðrúnar og Svölu annars vegar og Ingibjargar og Birtu hinsvegar. Leikurinn var skemmtilegur á að horfa, mikil barátta beggja megin netsins og mikið um varnarbolta og langar skorpur. Svo fór þó að lokum að Ingibjörg og Birta sigruðu leikinn 2-0 (21-17 / 21-12).

Árangur Guðrúnar og Svölu má teljast mjög góður að enda í 3. sæti á síðasta móti og svo 2. sæti á þessu móti, en þær voru að etja þarna kappi við landsliðsmanneskjur með mikla keppnisreynslu. Einnig má nefna að ungstirnin þær Elísabet og Berglind enduðu í 4. sæti í fullorðins flokki, en þær eru einungis 13 og 16 ára.

Fyrstu þrjú sæti í kvennaflokki skipuðu:

1. sæti - Ingibjörg Gunnarsdóttir og Birta Björnsdóttir (HK)
2. sæti - Guðrún Sveinsdóttir og Svala Guðmundsdóttir (UMFA)
3. sæti - Laufey Sigmundsdóttir og Hjördís Eiríksdóttir (HK / Stjarnan)

Í unglingaflokki U-21 kvenna kepptu þær Elísabet og Berglind til úrslita við þær Steinunni og Hjördísi. Leikurinn endaði með sigri Elísabetar og Berglindar.

Í unglingaflokki U-17 kvenna kepptu þær Elísabet og Berglind einnig til úrslita á móti þeim Thelmu Dögg og Rósborgu. Elísabet og Berglind sigruðu einnig þann leik.

Í unglingaflokki U-21 karla urðu sigurvegarar þeir Orri Þór Jónsson og Lúðvík már Matthíasson

Í unglingaflokki U-17 karla urðu sigurvegarar þeir Lúðvík Már Matthíasson og Elías Rafn Ólafsson.

Það er greinilegt að liðum er að fjölga en einnig er deildin að styrkjast til muna, fleiri lið farin að láta finna fyrir sér. Fanta mótaröðin fer því frábærlega af stað og á eftir að verða enn stærri.

Næsta mót í Fanta mótaröðinni verður haldið á Þingeyri 1. - 3. júlí, og hefur greinarhöfundur heyrt á keppendum að þeir komi til með að fjölmenna á það mót. Heilu hóparnir ætla að taka sig saman og ferðast vestur á þennan frábæra stað þar sem vellirnir skarta sínu fegursta í vestfjarðarblíðunni. Ekki er hægt að minnast á vellina fyrir vestan nema taka fram gæði sandsins á völlunum sem er með því besta sem gerist hér á landi.

(Á meðfylgjandi mynd eru unglingameistararnir í kvennaflokki þær Elísabet og Berglind ásamt þeim Hjördísi og Steinunni. Ljósmynd fengin frá Hjördísi)

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta