Strandblak

Dags: 21.06.2011

Sólsetursmót í Garðinum - Trimmót fyrir alla

Næstkomandi laugardag þann 25. júní verður haldið trimmót í Garðinum, nánar tiltekið á strandblakvellinum hjá Garðskagavita.

Strandblakvöllurinn Garðinum - Beach Volley IcelandGarðbúar fengu þennan flotta völl á síðasta sumri og er þetta fyrsta opna mótið sem haldið er á staðnum. Mótið er haldið að tilefni árlegrar Sólseturshátíðar sem haldin er í bænum.

Mótið verður haldið frá kl 10:00 - 14:00.
Keppt verður í 3ja manna blönduðum liðum en þó verður einnig leyfilegt að keppa í 2ja manna liðum og óblönduðum. Einnig mega lið vera með varamenn en þá má eingöngu skipta inná milli leikja.

Keppt verður eftir hraðmótakerfi þar sem hver leikur er ein hrina spiluð á tíma. Ef lið eru jöfn eftir leiktíma þá er spilaður úrslitabolti.

Reynt verður að keppa í riðlum nema þátttkökufjöldi verði það mikill að ekki verði hægt að koma því fyrir, þá verður spilað eftir tvöföldu útsláttarkerfi þar sem allavega tveir leikir eru tryggðir á lið.

Skráning í mótið fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið sveinn@hnh.is. Þátttökugjaldið er 1.000 kr á hvern leikmann og greiðist það annað hvort á staðnum, eða leggjast inná reikning Rnr. 0121-26-142 Kt. 050773-5829. Munið að prenta út kvittun til að hafa meðferðis á mótsstað ef þið millifærið.
Skráningu lýkur fimmtudagskvöldið 23. júní. Uppsetning mótsins ætti að vera komin í ljós á hádegi föstudagsins og verður bæði sett upp hér á strandblak.is.

Verðlaun verða stórglæsileg en verðlaunaafhending fer fram strax að móti loknu á stóra sviðinu á staðnum.

Allir þátttakendur fá frítt í sundmiðstöðina á staðnum, en einnig má geta þess að þetta er hátíðisdagur heimamanna og ýmislegt annað í gangi og það langt fram eftir kvöldi, en nánar má lesa um dagskrána á þessari slóð Sólsetursthátíđ

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta