Strandblak

Dags: 03.07.2011

Guðrún og Svala tóku gullið á þriðja stigamóti sumarsins

Í gær laugardaginn 1. júlí fór fram 3. stigamót sumarsins í Fanta mótaröðinni. 8 kvennalið og 4 karlalið tóku þátt í mótinu sem fram fór á Þingeyri við Dýrafjörð. Veðrið lék við keppendur þó smá vindur hefði breytt leikjum liðanna inná milli. Fjöldi áhorfenda lagði leið sína að strandblakvöllunum og myndaðist skemmtileg stemning á mótinu.

Konurnar kepptu eftir tvöföldu útsláttarkerfi eins og tíðkast hefur á stigamótum hingað til.

Þar sem karlaliðin voru eingöngu fjögur þá spiluðu þeir allir við alla einfalda umferð, eftir það spiluðu efstu 2 liðin um fyrsta sætið og neðri tvö liðin um þriðja sætið.

Einar og Gummi spiluðu saman sem lið að þessu sinni þar sem þeirra liðsfélagar komust ekki vestur, en þeir hafa ekki spilað saman á móti áður. Þeir náðu að smella vel saman í gær og sigruðu alla sína leiki 2 – 0. Emil og Eiríkur sem hafa verið sterkir á undanförnum mótum náðu sér aldrei á strik í og höfðu því lítið í þá Einar og Gumma, en úrslitaleikurinn varð einmitt á milli þessara liða.

Einar og Gummi spiluðu nokkuð sannfærandi leiki með einföldu kerfi þar sem Einar sá um blokkina og Gummi vörnina. Eftir að þeir fóru að „setja“ boltann meira gekk þeim betur en það vill brenna við að leikmenn reyna um of að hamra boltann í sand andstæðinganna, sem er oft á tíðum ekki eins árangursríkt.

Röðin í karlaflokki varð því þessi:

1. sæti - Einar Sigurðsson og Guðmundur P Guðmundsson (HK / Þróttur R)
2. sæti - Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
3. sæti - Orri Þór Jónsson og Valgeir Valgeirsson (HK)

Fanta mótaröðin í strandblaki, sigurvegarar í karlaflokki
Á meðfylgjandi mynd eru Emil og Þorbjörg Rún, Eiríkur, Gummi, Einar, Valli og Orri Þór.

Sigurvegarar síðustu móta í kvennakeppninni voru ekki á staðnum og því öruggt að nýtt lið kæmi til með að sigra á þessu móti.

Ungstirnin Berglind og Elísabet byrjuðu mótið með látum og unnu alla sína andstæðinga allt fram að úrslitaleik. Þær sigruðu þær Hjördísi og Fjólu, og einnig Svölu og Gunnu í undanleikjunum og héldust því taplausar fram að úrslitaleik.

Svala og Gunna sendu Eyrúnu og Ute niður í neðri riðil en voru svo sjálfar sendar niður eftir tapleik á móti Berglindi og Elísabetu. „Hausinn var bara ekki að starfa rétt í þessum leik sem varð til þess að við töpuðum leiknum“ sagði Svala um leikinn.

Í neðri riðlinum mættu þær aftur þeim Eyrúnu og Ute sem höfðu sigrað Hjördísi og Fjólu um að komast í leikinn um þriðja sætið. Svala og Gunna sigruðu Eyrúnu og Ute 2 – 0 og voru því komnar í úrslitaleikinn á móti unglingunum Berglindi og Elísabetu.

Í þetta sinn ætluðu þær Svala og Gunna ekki að tapa „Við tókum til í hausnum fyrir leikinn og komum mjög ákveðnar til leiks, spiluðum miklu betur og unnum okkar fyrsta mót“ sagði Svala við greinarhöfund um leikinn en seinni hrinan var víst meira spennandi en sú fyrri.

Þetta telst samt frábær árangur hjá þeim Berglindi og Elísabetu sem eru án efa efnilegustu strandblakarar landsins í kvennaflokki og verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.

Árangur Svölu og Gunnu er einnig eftirtektarverður þar sem þær hófu að spila saman sem par nú fyrst í vor, og er greinilegt að þær eiga mjög vel saman sem lið. Þær hafa verið á uppleið með hverju mótinu í sumar, byrjuðu á því að taka brons í Fagralundi, silfur á Flúðum og nú gull á Þingeyri. Þær verða með þessu áframhaldi eitt af topp liðunum á íslandsmótinu í ágúst, en þær eru nú þegar komnar með nægan stigafjölda til að keppa í A deild á því móti. 3 bestu mót sumarsins hjá hverjum einstaklingi, hverju liði telja inní mótið.

Röðun efstu þriggja liða á mótinu á Þingeyri varð eftirfarandi:

1. sæti – Svala Guðmundsdóttir og Guðrún Sveinsdóttir (UMFA)
2. sæti – Berglind Gígja Jónsdóttir og Elísabet Einarsdóttir (HK)
3. sæti – Eyrún Harpa Hlynsdóttir og Ute Stenkewitz (HK)

Fanta mótaröðin í strandblaki, sigurvegarar í kvennaflokki
Á meðfylgjandi mynd eru þær Elísabet, Berglind, Svala, Gunna, Eyrún og Ute.

Næsta stigamót verður haldið á glænýjum strandblakvöllum í Neskaupstað helgina 15. – 17. júlí.

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta