Strandblak

Dags: 06.07.2011

Trimmót í strandblakiTrimmót laugardaginn 6. júlí í Fagralundi

Trimmót verður haldið næsta laugardag frá kl 10:00 - 15:00 í Fagralundi í Kópavogi.

Keppt verður í þriggja manna liðum bæði í karla og kvennaflokki. Leyfilegt verður að mæta með tveggja manna lið ef sá/sú þriðja finnst ekki.

Mótið verður með trimmótssniði eins og áður sagði en þá verður ekki eins hart tekið á reglum og meira gert til gamans, þó keppnin sé að sjálfsögðu alltaf númer eitt.

Keppt verður í riðlum.

Allir leikir verða tímasettir, þ.e. hver leikur er eingöngu í 12 mínútur og vinnur það lið sem hefur fleiri stig að loknum spiltíma. Ef jafnt er þegar tíminn er búinn, þá er leikinn einn auka bolti til að skera úr um sigurvegara.

Við hvetjum alla þá sem hafa verið að leika sér í sandinum til að mæta, þetta er einmitt mótið til að byrja að taka þátt.

Þátttökugjald í mótið er 3.000 kr á lið og greiðist það á staðnum. Ath engin posi.
Mótið er styrktarmót fyrir U-19 landsliðin í strandblaki, en þau taka þátt í einu verkefni í haust.

Nú er um að gera að skrá sig í mótið og mæta með bros á vör og hafa gaman.
Síðasti skráningardagur er föstudagurinn 8. júlí kl 12:00

Skráning er hér
 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta