Strandblak

Dags: 08.07.2011

Fjórða stigamót sumarsins haldið í Neskaupsstað - Skráning

Strandblakmót í NeskaupsstaðHelgina 15. - 17. júlí verður fjórða stigamót sumarsins í Fanta mótaröðinni haldið. Mótið fer fram í Neskaupsstað á nýjum völlum heimamanna.

Búast má við fjölda liða þar sem heimamenn hafa verið að æfa sig grimmt, en Neskaupsstaður er annálaður fyrir að vera einn mesti blakbær landsins.

Keppt verður í fullorðinsflokki karla og kvenna og hefst mótið á föstudagskvöldi kl 20:00. Mótinu lýkur hjá þeim flokki á laugardeginum, væntanlega um kl 16.00 en það fer eftir fjölda liða.

Þau lið sem ætla að taka þátt í mótinu skrá sig til leiks hér á strandblak.is, ekki verður tekið við skráningum á staðnum.

Unglingaflokkar
Unglingaflokkarnir U-21 og U-17 kvenna, sem og U-21 og U-17 karla verða spilaðir á sunnudeginum 17. júlí og hefst á sunnudagsmorgni, tímasetning auglýst síðar hér á vefnum.

Stigakeppnin
Þetta er fjórða og síðasta stigamót sumarsins í Fanta mótaröðinni og má vænta þess að nokkur ný lið nái sér í stig til að reyna að komast í A deildina á lokamótinu sem fram fer í Kópavogi um miðjan ágúst, en 8 stigahæstu liðin fara í A deild og restin í B.

Stöðu einstaklinga í stigakeppninni má finna á síðunni Stigastaða í hlekkjunum hér vinstra megin á skjánum.

Nú er um að gera að skrá sig og vera með til að eiga meiri möguleika á að komast í keppni meðal þeirra bestu á lokamótinu.

Þátttökugjald
Þátttökugjald er 3.000 kr á hvert lið í fullorðinsflokki en 2.000 kr í unglingaflokki. Ef lið spilar bæði í fullorðins og unglingaflokki þá greiðir það eingöngu þátttökugjald fyrir fullorðins flokkinn.

Greiðsla þarf að fara fram í síðasta lagi fyrir hádegi fimmtudaginn 14. júlí.
Greiðslu ber að leggja inná reikning 301-26-7571, kt. 450274-0629.

Lokað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 13. júlí kl 20:00.

Skráning í mótið er hér

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta