![]() |
|||||
![]() |
Dags: 28.07.2011
Helgina 12. - 14. ágúst verður íslandsmótið í strandblaki. Mótið verður haldið í Fagralundi í Kópavogi. Keppt verður í A og B flokki kvenna, A og B flokki karla, U-21 og U-17 unglingaflokkum. Þátttökugjald er 5.000 kr pr/lið í fullorðinsflokki en 3.000 kr pr/lið í unglingaflokki. Ef lið keppir bæði í unglinga og fullorðinsflokki þá greiðir það eingöngu fyrir fullorðinsflokkinn. Skráningu lýkur sunnudaginn 7. ágúst kl 24:00. Að þessu sinni verður boðið uppá keppni í B flokki í fullorðinsflokki, en það er gert til þess að fá þau lið sem hafa lítið eða ekkert verið að taka þátt í mótum sumarsins til þess að taka þátt, og fá að spila við sína jafnoka. Þegar liðin skrá sig til leiks á skráningarforminu, þá ber að taka fram í hvaða flokki (A eða B) viðkomandi lið ætlar að vera í. Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst svo hægt sé að fara yfir þau lið sem skrá sig í A flokk, hvaða lið hafa þátttökurétt inní þann flokk, en þrjú stigahæstu mót hvers einstaklings telja. Stigaskor einstklinga má finna hér. |
![]() |
|||