Strandblak

Dags: 08.08.2011

Fyrstu unglingalandslið Íslands í strandblaki

Nú á dögunum valdi Karl Sigurðsson landsliðsþjálfari fyrstu unglingalandslið Íslands í strandblaki.

Landsliðsþjálfarinn valdi fjórar stúlkur, tvö landslið, til að keppa fyrir Íslands hönd á Norðurlandamóti (NEVZA) unglinga U19 sem fram fer í Drammen í Noregi, helgina 20. - 21. ágúst.

Landsliðin skipa þær Hjördís Eiríksdóttir (Stjarnan), Helena Kristín Gunnarsdóttir (Þróttur Nes), Berglind Gígja Jónsdóttir (HK) og Elísabet Einarsdóttir (HK).

Liðin voru í stífum æfingum um liðna helgi og var meðfylgjandi mynd tekin af hópnum á einni æfingunni.

Unglingalandslið Íslands í strandblaki
Unglingalandsliðin talið frá vinstri: Helena, Hjördís, Berglind og Elísabet

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta