Strandblak

Dags: 11.08.2011

Íslandsmótið í StrandblakiFantamótið / Íslandsmótið í strandblaki um helgina

Föstudaginn 12. ágúst hefst Fantamótið í strandblaki. Spilað verður í B flokki kvenna á föstudag, A flokki karla og kvenna ásamt B flokki karla á laugardag. Helgin endar síðan með leikjum í unglingaflokki á sunnudag.

Mótið fer að þessu sinni á strandblakvöllum HK í Fagralundi í Kópavogi (sjá kort)

Þetta er 8. árið í röð sem keppt er um íslandsmeistaratitilinn í strandblaki en að þessu sinni eru 38 lið sem mæta til leiks í þeim flokkum sem eru í boði.

Mótið hefst á föstudag kl 18:00 og verður spilað meðan birta leyfir. Mótið hefst aftur á laugardagsmorgni kl 8:30 og verður spilað fram á kvöld. Á sunnudag spila unglingarnir frá kl 10:00 - 13:00.

Úrslitaleikirnir í B flokki karla og kvenna eru áætlaðir kl 17:45 á laugardag, en úrslitaleikir í A flokki áætlaðir kl 18:20 í karla og 18:50 í kvennaflokki þann sama dag. Ekki er hægt að fastnegla tíma á leikina þar sem gríðarlegur fjöldi leikja er á dagskrá og þarf allt að ganga upp í tíma svo þetta geti gengið eftir. Leikir geta því bæði seinkað og flust fram í tíma.

Við hvetjum alla til að mæta í Fagralund og hvetja sitt lið, já eða bara til að horfa á skemmtilega íþrótt !

Hér má sjá tímasetningar fyrstu leikja í hverjum flokki, en leikirnir raðast upp eftir úrslitum hvers leiks þar sem keppt er eftir útsláttarfyrirkomulagi í flestum flokkum.

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta