![]() |
|||||
![]() |
Dags: 23.08.2011
Um liðna helgi fóru unglingalandslið kvenna U19 til Drammen í Noregi til að taka þátt í fyrsta norðurlandamóti (NEVZA) sem haldið hefur verið í strandblaki unglinga. 10 lið tóku þátt í mótinu í kvennaflokki, 4 frá Svíþjóð, 4 frá Noregi og svo 2 frá Íslandi. Íslensku liðin skipuðu stúlkur sem hafa verið mikið í sandinum undanfarin ár og náð langt hér innanlands í greininni, verið duglegar að taka þátt í fullorðinsflokkum sem og unglingaflokkum, og því voru þær valdar í þetta verkefni. Öll liðin frá Noregi og Svíþjóð æfa strandblak allt árið þar sem þau hafa hús með strandblakvöllum til að æfa í á veturna. Liðunum okkar gekk því ágætlega á mótinu miðað við þann tíma sem við getum verið í sandinum, eða þessa 3 mánuði á ári. Það má því segja að það sé sama uppá teningnum þegar unglingalið eru send út, eins og þegar keppt er í A-landsliðum, að leikmenn hafa getu til að ná mun lengra, og jafnvel sigra svona mót, ef eingöngu þeir hefðu betri aðstöðu (innivelli). Mótið var spilað á tveimur völlum í úthverfi Drammen í Noregi, en úrslitaleikirnir síðan spilaðir á velli sem búið var að setja upp í miðbæ Drammen. Íslensku liðin komust því miður ekki í úrslitaleikina þrátt fyrir fína leiki. Lið 2 hjá Íslandi skipuðu þær Berglind Gígja Jónsdóttir (HK) og Elísabet Einarsdóttir (HK), en lið 1 hjá Íslandi skipuðu þær Helena Kristín Gunnarsdóttir (Þróttur Nes) og Hjördís Eiríksdóttir (Stjarnan). Þjálfari var Karl Sigurðsson og fararstjóri Ásta Sigrún Gylfadóttir. Leikir íslensku liðanna fóru þannig:
Bæði liðin stóðu sig vel á mótinu. Þær Helena og Hjördís enduðu því í 5. sæti mótsins, en þær Berglind og Elísabet í því 8. - Flottur árangur hjá fyrsta unglingalandsliði Íslands í strandblaki. Það er greinilegt að íslendingar eru ekki langt undan hinum þjóðunum í þessari íþrótt og áttu bæði liðin heima á þessu móti. Það er því ekki spuring að Ísland á að taka þátt í þessu móti á komandi árum. Myndir frá mótinu má finna hér. |
![]() |
|||