![]() |
|||||
![]() |
Dags: 09.08.2011 Fantamótið / Íslandsmótið - Upplýsingar fyrir keppendur
Á föstudaginn kemur hefst Fantamótið í strandblaki á leikjum í B flokki kvenna. Spilað verður frá kl 18:00 til u.þ.b. kl 22:00, en þá verður gert hlé þar til á laugardagsmorgun. Þá hefst mótið aftur í B - flokki kl 8:30 og flokkurinn kláraður að undanskildum úrslitaleiknum. B flokkur karla hefst svo á laugardagsmorgni kl 9:40. Hann verður einnig kláraður að undanskildum úrslitaleiknum, en úrslitaleikir í B flokkum karla og kvenna fara fram fyrir úrslitaleiki í A flokki. Áætlaður tími á úrslitaleiki í B flokki karla og kvenna er kl 17:45. A flokkur karla hefst kl 10:15 á laugardaginn og er áætlað að úrslitaleikur í þeim flokki verði spilaður kl 18:20. Samhliða A flokki karla verður A flokkur kvenna spilaður og hefjast leikir í þeim flokki kl 11:25 á laugardaginn. Áætlaður tími á úrslitaleik kvenna er 18:50.
Í pdf skjalinu hér að neðan má finna allar tímasetningar leikja. Fyrir þá sem vilja skoða mögulega þróun á mótinu geta skoðað þessi "bracket" hér að neðan. 7 liða tré (A kvenna) - 8 liða tré (A karla) - 11 liða tré (B kvenna) |
![]() |
|||