Strandblak

Dags: 14.08.2011

Fantamótaröð sumarsins lokið, nýir íslandsmeistarar krýndir

Um helgina fór fram Fantamótið / Íslandsmótið í strandblaki. Keppt var í frábæru veðri í Fagralundi þar sem gleðin ríkti í drengilegri keppni tæplega 40 liða.

Gillz og Auddi með unglingunum okkarMótið hófst á föstudag með keppni í B flokki karla og kvenna. Spilað var fram á kvöld á föstudegi og svo hafist handa aftur eld snemma laugardags, og spilað þar til ljóst var hvaða 2 lið spiluðu til úrslita. Úrslitaleikirnir í B flokki voru síðan spilaðir seinna um daginn en þá voru allir úrslitaleikir í fullorðinsflokki spilaðir hver á eftir öðrum.

Sýningarleikur var spilaður á laugardeginum þar sem unglingalandslið kvenna þær Berglind og Elísabet vægast sagt mokuðu sandi yfir þá félaga Egil Einarsson (Þykka) og Auðunn Blöndal. Leikurinn þótti mikil skemmtun og þá sérstaklega að þessir stóru hraustu menn skyldu bíða lægri hlut fyrir stúlkum sem eingöngu eru 15 og 12 ára gamlar.
Þeir Egill og Auðunn skemmtu sér ekki síður en höfðu að orði eftir leikinn að íþróttin væri mun erfiðari en þeir höfðu gert ráð fyrir, en ekki síður skemmtileg. Því má búast við því að þeir félagar mæti fljótlega í sandinn í skjóli nætur og æfi nokkra takta svo þeir þurfi ekki "lúta aftur í sand" fyrir unglingsstúlkum.

Eins og undanfarin ár var mikil skemmtun og afþreying fyrir áhorfendur. Hoppikastali var á staðnum fyrir yngstu áhorfendurnar. Áhorfendur gátu fengið sér Fanta að vild sem og Kjörís til að kæla sig í blíðunni. Einnig var farið í hinn sívinsæla "gullgrafaraleik" þar sem áhorfendur grófu eftir ýmsum vinningum sem grafnir höfðu verið í sandinn.

Fjöldi fyrirtækja gerði okkur mögulegt að halda þetta mót með svo veglegum hætti og má þar nefna Vífilfell (Fanta), Under Armour á Íslandi, S. Helgason, Ellingsen, Sambíóin, Kjörís, Toyota, Örninn, Vodafone, Litboltavöllur.is, River Rafting og fleiri.

B flokkur karla
Til úrslita í B flokki karla spiluðu þeir Óskar Þórðarsson og Arnar Björnson frá Hyrnunni Siglufirði á móti þeim Jóni Ólafi Valdemarssyni og Haraldi Björnssyni frá Hamri Hveragerði. Svo fór að Jón og Haraldur sigruðu leikinn 2 - 0 (21-17 / 21-14).

Í þriðja sæti í karlaflokki var lið frá Keflavík, en eini völlurinn í Keflavík er staðsettur í bakgarði á veitingastað þar í bæ. Þeir vöktu því mikla athygli þeir Eyþór og Axel sem komu vægast sagt fljúgandi inní mótið, sýndu frábæra takta og hraða í sandinum þrátt fyrir að hafa æft íþróttina í mjög stuttan tíma.

Úrslit í B flokki karla:

  1. Jón Ólafur Valdemarsson og Haraldur Björnsson (Hamri)
  2. Óskar Þórðarsson og Arnar Björnsson (Hyrnan)
  3. Eyþór Pétursson og Axel Þór Margeirssoon (Keflavík)

B flokkur kvenna
Til úrslita í B flokki kvenna spiluðu þær Hera Ármannsdóttir og Oddný Jökulsdóttir Hetti Egilsstöðum á móti Önnu Maríu Björnsdóttur og Rósu Dögg Ómarsdóttur Hyrnunni Siglufirði. Leikurinn endaði með sigri Heru og Oddnýjar 2-0 (21-19 / 21-13)

Það vakti athygli í B flokkunum að til úrslita bæði í karla og kvennaflokki voru lið frá Siglufirði, en siglfirðingar hafa eingöngu haft strandblakvöll síðan í sumar. Einnig er frábært að tvö efstu liðin skuli vera af landsbyggðinni og sýnir að íþróttin dreyfist hratt um landið.

Úrslit í B flokki kvenna:

  1. Hera Ármannsdóttir og Oddný Jökulsdóttir (Höttur)
  2. Anna M Björnsdóttir og Rósa Dögg Ómarsdóttir (Hyrnan)
  3. Lilja M Hreiðarsdóttir og Andrea Burgherr (Fylki)

A flokkur karla
A flokkur karla var spilaður á laugardaginn og voru 8 lið skráð til leiks. Mótið var jafnara en oft áður og mátti sjá marga hörku leiki.
Íslandsmeistarar síðasta árs þeir Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson fóru taplausir í úrslitaleikinn þar sem þeir mættu þeim Emil Gunnarssyni og Eiríki Eiríkssyni. Þessi lið áttust við fyrr í mótinu og þá sigruðu þeir Einar og Brynjar 2-0 (21-13 / 21-17).

Úrslitaleikurinn milli þessara liða varð hörku leikur og mikið um hörku skelli, kaf-blokkir og flottar varnir. Svo fór að lokum að þeir Emil og Eiríkur sigruðu leikinn 2-1 (13-21 / 22-20 / 15-13).

Þetta er í fyrsta sinn sem Eiríkur vinnur íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa stundað íþróttina grimmt síðan 2004, en í annað sinn sem Emil nær í titilinn.

Úrslit í A flokki karla:

  1. Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
  2. Einar Sigurðsson og Brynjar J Pétursson (HK)
  3. Ingólfur Guðjónsson og Alexander Stefánsson (HK)

A flokkur kvenna
A flokkur kvenna var einnig spilaður á laugardaginn og voru 7 lið skráð til leiks. Fyrir mótið mátti búast við hörku keppni efstu liða og varð sú raunin. Eins og í karlaflokki fóru þær Fríða Sigurðardóttir og Birta Björnsdóttir taplausar inní úrslitin eftir að hafa sigrað þær Birnu Baldursdóttur og Ingibjörgu Gunnarsdóttur í hörku leik 2-1 (21-18 / 15-21 / 16-14).

Fljúgandi strandblakBirna og Ingibjörg unnu sér rétt til að spila úrslitaleikinn með því að sigra þær Hjördísi Eiríksdóttur og Fjólu Svavarsdóttur í undanúrslitum 2-0 (21-17 / 21-9).

Úrslitaleikurinn var því á milli þeirra Fríðu og Birtu annarsvegar og Birnu og Ingibjargar hinsvegar. Leikurinn varð hörku leikur og þvílík skemmtun fyrir áhorfendur. Að öllum ólöstuðum var það Birta Björnsdóttir sem átti hvað besta leikinn, þeyttist um allan völl í flottum vörnum ásamt því að skila sínum sóknum eins og hún átti að gera.

Leikurinn endaði með sigri þeirra Fríðu og Birtu 2-0 (21-15 / 21-19).

Úrslit í A flokki kvenna:

  1. Birta Björnsdóttir og Fríða Sigurðardóttir (HK)
  2. Birna Baldursdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir (KA / HK)
  3. Hjördís Eiríksdóttir og Fjóla Svavarsdóttir (Stjarnan / Þróttur R)

Stigameistarar
Í allt sumar hafa einstaklingar verið að vinna sér inn stig í Fantamótaröðinni og var mót helgarinnar hluti af stigamótaröðinni. Eftir mótið um helgina varð því ljóst hvaða einstaklingar sigruðu stigakeppnina.

Í karlaflokki varð stigameistari 2011 Einar Sigursson (HK). Í kvennaflokki varð öllu erfiðara að finna sigurvegara þar sem fyrir lokamótið voru tvær jafnar, þær Svala Guðmundsdóttir og Guðrún Sveinsdóttir. Á hæla þeirra kom Hjördís Eiríksdóttir með tveimur stigum færra.
Hjördís endaði í þriðja sæti á mótinu um helgina en þær Svala og Guðrún í fimmta sæti og náði Hjördís sér því í tvö stig umfram þær Svölu og Guðrúnu og jafnaði þær þar með. Þær urðu því allar stigameistarar 2011 þær Hjördís Eiríksdóttir (Stjarnan, Svala Guðmundsdóttir (UMFA) og Guðrún Sveinsdóttir (UMFA).

Unglingaflokkar
Einnig var spilað í unglingaflokkum um helgina, bæði í U21 og U17 karla og kvenna og urðu úrslit eftirfarandi

U21 karla

  1. Ólafur J Júlíusson og Alexander Stefánsson (HK)
  2. Lúðvík Már Matthíasson og Stefán Þór Þorsteinsson (HK)
  3. Valgeir Þór Jakobsson og Viktor Emile C Gauvrit (UMFA)

U21 kvenna

  1. Birta Björnsdóttir og Helena Kristín Gunnarsdóttir (HK / Þróttur N)
  2. Hjördís Eiríksdóttir og Steinunn Helga Björgólfsdóttir (Stjarnan / HK)
  3. Elísabet Einarsdóttir og Berglind Gígja Jónsdóttir (HK)

U17 karla

  1. Lúðvík Már Matthíasson og Stefán Þór Þorsteinsson (HK)
  2. Valgeir Þór Jakobsson og Viktor Emile C Gauvrit (UMFA)

U17 kvenna

  1. Elísabet Einarsdóttir og Berglind Gígja Jónsdóttir (HK)

Stigameistarar unglinga
U21 Orri Þór Jónsson (HK) og Ólafur J Júlíusson (HK).
U21 kvenna Hjördís Eiríksdóttir (Stjarnan) og Steinunn Helga Björgólfsdóttir (HK)
U17 Karla Lúðvík Már Matthíasson (HK)
U17 kvenna Elísabet Einarsdóttir (HK) og Berglind Gígja Jónsdóttir (HK)

Unglingameistarar 2011
Fv. Elísabet, Berglind, Helena, Birta, Steinunn og Hjördís

Myndir frá mótinu má finna inná facebook síðu strandblaksins en hlekkur í síðuna er hér vinstra megin. Ef þið eigið myndir sem þið viljið deila með okkur strandblakfólki þá endilega setjið þar inn eða sendið okkur á strandblak@strandblak.is

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta