Strandblak

Boltapöntun

28.08.2010
Nú er hugmynd að panta nokkra strandblakbolta og viljum við ath. hvort einhverjir hafi áhuga á að eignast fyrsta flokks bolta á fínu verði eða 8.500 kr stk.

Wilson pro Beach VolleyballVið ætlum að panta Wilson bolta, þessa sem notaðir voru meðal annars í úrslitaleikjum íslandsmótsins, og þurfa pantanir að berast okkur ekki seinna en 31. ágúst, en þeir ættu að koma til landsins í lok september.

Ef þú ert að spá í bolta, 1 eða jafnvel 15 stk, þá endilega hafðu samband með því að senda póst á strandblak@strandblak.is fyrir 31. ágúst.

Ath. að ekki verða pantaðir boltar aftur fyrir næsta sumar.


Skemmtunin var í fyrirrúmi á Skemmtiblakmóti Þróttar sem fram fór um helgina.

22.08.2010
Skemmtimót Þróttar 2010 / Beach VolleyAllir sem vildu gátu skráð sig á mótið og mættu alls 12 lið til leiks, fjögur karlalið og átta kvennalið.

Spilað var í ca. 4 tíma í flottu veðri á laugardeginum. Vindurinn setti þó strik í reikninginn við og við, en inn á milli var frábært strandblakveður.

Í flokki byrjenda kvenna voru 4 lið. Í fyrsta sæti urðu Grýlurnar með fullt hús stiga, í öðru sæti urðu Skvetturnar og Kjúklingarnir voru í því þriðja, en "kjúklingarnir" eru 3 ungar stúlkur úr yngri flokkum Þróttar Reykjavíkur.

Í kvennaflokki voru einnig 4 lið. Þar varð liðið Hootey hlutskarpast og vann alla sína leiki. Á eftir komu Sykurpúðarnir og Kormákur varð í því þriðja.

Í karlaflokki voru þrjú byrjendalið og eitt lið vanra blakara. Liðin spiluðu í einum flokki og höfðu allir gaman af. Leikirnir voru mikil skemmtun á að horfa og frábært að sjá unga stráka sem lítinn blakgrunn hafa spila sín á milli - með góðum árangri!
Liðið "Æsir" vann alla sína leiki enda reynslumesta liðið í blaki. Meðal byrjenda varð liðið Two and a half men í fyrsta sæti, 3 of a Snap í öðru og Kærleiksbirnirnir urðu í 3. sæti.

Kosnir voru "efnilegustu byrjendurnir" í kvenna og karlaflokki. Í karlaflokki varð Þórhallur Siggeirsson fyrir valinu og í kvennaflokki var Thelma Dögg Grétarsdóttir efnilegust. Thelma er ung og efnileg og hefur verið dugleg að mæta í sandinn með mömmu sinni í sumar.

Blakdeild Þróttar þakkar eftirtöldum fyrirtækjum fyrir þeirra stuðning í kringum mótið.
Mecca Spa, Krúska, Saffran, Nings, Subway, Vífilfell, Sporthúsið, Ölgerðin og Myllan.

Skemmtilegur strandblakdagur að baki sem verður pottþétt endurtekinn að ári.


Skemmtimót Þróttar Reykjavík næsta laugardag - Skráning

16.08.2010
Næstkomandi laugardag, þann 21. ágúst ætla Þróttarar að halda skemmtimót sem opið er öllum sem gaman hafa af strandblaki, hvort sem þeir hafa stundað það í stuttan tíma eða lengur. Mótið hefst kl 12:00 og er spilað í 3ja manna liðum.

Skemmtimót Þróttar Reykjavík / Beach VolleyÞróttarar hafa farið víða í að safna verðlaunum fyrir mótið, og ekki af verri endanum.

Mótinu verður skipt upp í 4 flokka. Annars vegar í byrjendaflokka karla og kvenna, og hins vegar blakaraflokka karla og kvenna. Taka skal fram á skráningarforminu í hvaða flokki liðið ætlar að keppa, byrjendur eða vanir.

Spilað verður eftir hefðbundnum blakreglum en undantekningar frá þeim verða kynntar á staðnum.

Þátttökugjald er 1.500 kr pr/keppanda og eru þátttakendur beðnir um að greiða eigi síðar en fimmtudaginn 19. ágúst. Þeir sem greiða síðar þurfa að mæta með útprentaða kvittun á staðinn til staðfestingar. Einnig verður hægt að greiða á staðnum en best er ef þetta er gert í gegnum heimabanka.

Greiða skal inná reikning 338 - 26 - 5507 Kt. 550783-0379. Setjið nafn á liði eða forráðamanns sem skýringu.

Mót: Skemmtimót Þróttar Reykjavík
Dags: Laugardaginn 21. ágúst
Tími: Hefst kl 12:00
Staðsetning: Strandblakvellirnir Gufunesbæ, Grafarvogi
Flokkar: 4 flokkar (kvenna byrjendur, kvenna blakarar, karla byrjendur og karla blakarar).
Liðsform: 3ja manna lið
Skráningu lýkur: Föstudaginn 20. ágúst kl 19:00

Nú er um að gera að vera með, hvort sem þú ert byrjandi eða búin að vera með bakteríuna lengi - Strandblak er svo ótrúlega skemmtilegt :-)

Skráðu þig hér Skráning


Nýir íslandsmeistarar í strandblaki í kvennaflokki en "gamlir" í karlaflokki

Íslandsmót 2010 strandblak / Beach Volley Iceland15.08.2010
í dag lauk Fantamótinu/íslandsmótinu í strandblaki en þetta er 7. íslandsmót Blaksambands Íslands á jafnmörgum árum.

Keppendur fengu að kenna á fjölbreytilegu veðri, allt frá strekkings vindi og rigningu yfir í sól og steikjandi hita.

Krýndir voru nýir íslandsmeistarar í kvennaflokki, unglingaflokki pilta, unglingaflokki stúlkna en "gamlir" íslandsmeistarar í karlaflokki.

B-flokkur kvenna
Keppni hófst á fimmdudagskvöldi með leikjum í B-flokki kvenna. B-flokkurinn hélt svo áfram á föstudagskvöldi og endaði á leikjum í undanúrslitum þegar komið var fram í rökkur.

Úrslitaleikirnir í B-flokki fóru svo fram á laugardaginn og voru það þær Ásta Sigrún Gylfadóttir og Ásthildur Gunnarsdóttir úr HK sem stóðu uppi sem sigurvegarar í B-flokki, eftir úrslitaleik við þær Þóreyju Einarsdóttur og Svölu Guðmundsdóttur úr UMFA.

Íslandsmót 2010 strandblak / Beach Volley IcelandA-flokkur karla
A-flokkur karla var spilaður á laugardeginum en þar til úrslita spiluðu þeir Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson Stjörnunni á móti þeim Einari Sigurðssyni og Brynjari Péturssyni úr HK.
Einar og Brynjar höfðu unnið titilinn 4 sinnum saman, og Brynjar einu sinni að auki fram að þessu móti, en Emil var í titilvörn síðan í fyrra en þá spilaði hann með Karli Sigurðssyni.

Svo fór eftir hörku leik, flottar varnir og góða skelli að "gömlu" meistararnir þeir Einar og Brynjar stóðu uppi sem sigurvegarar og eru því íslandsmeistarar 2010, en þeir unnu leikinn 2 - 1 (21-13 / 20-22 / 15-9). Þetta er því í 5. sinn á 7 árum sem þeir finna titilinn saman, frábært árangur hjá þeim félögum.

A-flokkur kvenna
A-flokkur kvenna var einnig spilaður á laugardag og voru þar til úrslita þær Fríða Sigurðardóttir og Birna Baldursdóttir úr HK á móti Ingibjörgu Gunnarsdóttur og Karen Björgu Gunnarsdóttur úr HK. Íslandsmeistararnir síðustu tveggja ára, þær Lilja Jónsdóttir og Laufey Björk Sigmundsdóttir úr HK töpuðu fyrir þeim Fríðu og Birnu, í mjög svo spennuþrungnum undanúrslitaleik 1-2 (15-21 / 21-19 / 9-15).

Úrslitaleikurinn var ekki síður spennandi en sveiflukenndur, þar sem liðin skiptust á að taka góða og slæma spretti. Flottir skellir, glæsilegar og skemmtilegar varnir sáust í leiknum sem var góð skemmtun fyrir áhorfendur.

Íslandsmót 2010 strandblak / Beach Volley IcelandSvo fór að lokum að þær Fríða og Birna uppskáru sigur og eru því íslandsmeistarar 2010, en þær sigruðu leikinn 2-1 (21-14 / 19-21 / 15-5).

Unglingaflokkar
Unglingaflokkur pilta og stúlkna var síðan spilaður í dag sunnudag í frekar kuldalegu veðri, þar sem vindurinn hafði áhrif á leikinn með góðum kviðum.

Íslandsmeistarar í stúlknaflokki 2010 urðu þær Hjördís Eiríksdóttir og Fjóla Rut Svavarsdóttir Stjarnan/Þróttur, en þær unnu alla sína leiki nokkuð auðveldlega í dag.

Íslandsmeistarar í piltaflokki urðu bræðurnir úr Hamri þeir Hafsteinn og Kristján Valdimarssynir, en þeir börðust um titilinn við HK-ingana Orra Þór Jónsson og Ólaf J Júlíusson. Svo fór að Hafsteinn og Kristján sigruðu og því íslandsmeistarar pilta 2010.

Hér má sjá röð þriggja efstu liða í öllum flokkum:

Kvennaflokkur
1. sæti - Fríða Sigurðardóttir og Birna Baldursdóttir HK
2. sæti - Karen Björg Gunnarsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir HK
3. sæti - Lilja Jónsdóttir og Laufey Björk Sigmundsdóttir HK
Verðlaunahafar 2010 kvennaflokkur
Frá vinstri: Íris Rún (Karenardóttir), Karen, Ingibjörg, Björgvin (Ingibjargarsonur), Birna, Fríða, Lilja og Laufey.
(Smellið á myndina til að sjá hana stærri)

Karlaflokkur
1. sæti - Einar Sigurðsson og Brynjar Pétursson HK
2. sæti - Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson Stjarnan
3. sæti - Karl Sigurðsson og Ólafur Heimir Guðmundsson HK
Verðlaunahafar 2010 karlaflokki
Frá vinstri: Eiríkur, Emil, Einar, Brynjar, Ólafur og Karl.
(Smellið á myndina til að sjá hana stærri.)

B-flokkur kvenna
1. sæti - Ásta Sigrún Gylfadóttir og Ásthildur Gunnarsdóttir HK
2. sæti - Þórey Einarsdóttir og Svala Guðmundsdóttir UMFA
3. sæti - Guðrún Sveinsdóttir og Susanne Freuler UMFA
Verðlaunahafa 2010 B-flokkur kvenna
Frá vinstri: Þórey, Svala, Ásthildur, Ásta, Susanne og Guðrún.
(Smellið á myndina til að sjá hana stærri)

Unglingaflokkur piltar
1. sæti - Hafsteinn Valdimarsson og Kristján Valdimarsson Hamri
2. sæti - Ólafur J Júlíusson og Orri Þór Jónsson HK
3. sæti - Lúðvík Már Matthíasson og Stefán Gunnar Þorsteinsson HK
Verðlaunahafar 2010 piltar
Frá vinstri: Ólafur, Orri, Hafsteinn, Kristján, Stefán og Lúðvík
(Smellið á myndina til að sjá hana stærri)

Unglingaflokkur stúlkur
1. sæti - Hjördís Eiríksdóttir og Fjóla Rut Svavarsdóttir Stjarnan/Þróttur
2. sæti - Elísabet Einarsdóttir og Berglind Gígja Jónsdóttir HK
3. sæti - Hrafnhildur Ólafsdóttir og Hugrún Óskarsdóttir HK
Verðlaunahafar 2010 stúlkur
Frá vinstri: Hjördís, Fjóla, Berglind og Elísabet. Á myndina vantar Hrafnhildi og Hugrúnu.
(Smellið á myndina til að sjá hana stærri)

Stigameistarar 2010
Eftir íslandmótið var orðið ljóst hverjir náðu sér í flest stig eftir sumarið, en keppt var í fjórum stigamótum á sumrinu, sem og íslandsmótinu sem einnig gaf stig.

Stigameistari 2010 í karlaflokki varð Emil Gunnarsson Stjörnunni, í kvennaflokki varð Birna Baldursdóttir HK stigameistari. Í unglingaflokki pilta var það Ólafur J Júlíusson HK sem varð stigameistari 2010, en í unglingaflokki stúlkna urðu 3 stúlkur jafnar að stigum og teljast því allar til stigameistara 2010, en það urðu þær Birta Björnsdóttir HK, Steinunn Björgólfsdóttir HK og Hjördís Eiríksdóttir Stjörnunni.
Stigameistarar 2010 karla og kvenna Stigameistari 2010 piltar Stigameistarar 2010 stúlkur
Mynd 1 - frá vinstri: Emil stigameistari karla, Birna stigameistari kvenna
Mynd 2 - Ólafur stigameistari pilta
Mynd 3 - frá vinstri: Hjördís og Birta. Á myndina vantar Steinunni
(Smellið á myndirnar til að sjá þær stærri)

Fantamótið var síðasta mót sumarsins á vegum BLÍ og vill strandblaknefndin þakka eftirtöldum aðilum fyrir veittan stuðning við mótið, en þessir aðilar gerðu umgjörð mótsins sem og keppendagjafir mjög veglegar.

Sigurlaunin fyrir 1. sætið í karla og kvennaflokki voru glæsileg. 1. sætið fékk forláta platta, sandblásinn með strandblak.is vörumerkinu, en hann var hannaður, smíðaður og gefin af Steinsmiðju Hafnafjarðar. Einnig fengu sigurvegararnir veglega inneign hjá Altis hf í Hafnarfirði, innflytjanda Under Armour. Inneign hjá líkamsræktarstöðinni Hress í Hafnarfirði og gjafabréf frá Hamborgarafabrikkunni.

Önnur fyrirtæki sem veittu okkur stuðning voru Bros, Opin kerfi, Útilíf, Ellingssen, VÍS, Örninn, Sambíóin, Toyota, Sporthúsið, Ikea, American Style, 66° North, Icepharma, Crossfit Reykjavík, World Class, Síminn, Hreyfing.


Íslandsmót unglinga Fantamótið - Leikjaplan

15.08.2010 kl 00:40
Í dag sunnudag verður haldið lokamót sumarsins í unglingaflokki, en það eru leikmenn fæddir 1989 eða síðar sem hafa þátttökurétt í það mót.

Mótið hefst kl 9:30 og eru keppendur beðnir um að mæta hálftíma fyrir leik.

Hér má sjá leikjaplanið hjá stúlkunum

Leikur hefst Lið A Lið B
09:30:00 Elísabet/Berglind  Hrafnhildur/Hugrún 
10:00:00 Hjördís/Fjóla Hulda/Nicole
10:30:00 Hulda/Nicole Elísabet/Berglind
11:00:00 Hjördís/Fjóla Hrafnhildur/Hugrún 
11:30:00 Hrafnhildur/Hugrún Hulda/Nicole
12:00:00 Elísabet/Berglind  Hjördís/Fjóla

Hér er svo leikjaplanið hjá piltunum

Leikur hefst Lið A Lið B
09:30:00 Óli J / Orri Kristján/Hafsteinn
10:00:00 Kristján/Hafsteinn Lúðvík / Stefán
10:30:00 Lúðvík / Stefán Óli J / Orri
11:00:00 Óli J / Orri Kristján/Hafsteinn
11:30:00 Kristján/Hafsteinn Lúðvík / Stefán
12:00:00 Lúðvík / Stefán Óli J / Orri

Spilað verður í Fagralundi í Kópavogi, félagssvæði HK.

Eftir mótið verða krýndir Íslandsmeistarar pilta og stúlkna, sem og stigameistar sumarsins 2010, en þau hljóta þeir unglingar sem flest stig hafa fengið samanlagt úr mótum sumarsins.


Undankeppni í B-Flokki lokið

13.08.2010
Nú á ellefta tímanum í kvöld lauk undankeppni í B-Flokki kvenna með tveim leikjum í undanúrslitum.

Margir leikir voru jafnir og spennandi og fór svo að lokum að skera þurfti úr með hrinuhlutfalli hvaða lið kæmust í undanúrslitaleikina, en 2 lið voru jöfn að stigum í 1. sæti í A-riðli, og 2 jöfn í 3. sæti.

Undanúrslitaleikina spiluðu annars vegar þær Þórey og Svala á móti Erúnu og Ute, sem endaði með 2 - 1 sigri Þóreyjar og Svölu. En i hinum undanúrslitaleiknum spiluðu þær Ásta og Ásthildur á móti Susanne og Guðrúnu, sem fór á þann veg að Ásta og Ásthildur sigruðu 2 - 1.

Það er því ljóst að úrslitaleikinn um 3. sætið spila þær Susanne og Guðrún á móti Eyrúnu og Ute, en ústlitaleikinn um 1. sæti spila þær Ásta og Ásthildur á móti Þóreyju og Svölu.

Úrslitaleikirnir spilast báðir á morgun laugardag kl 16:30.

Eftir úrslitaleikina í B-Flokki verða spilaðir úrslitaleikirnir í A-Flokki karla og þar á eftir í A-Flokki kvenna, en spilað verður í A-flokki beggja kynja allan morgundaginn, og hefst mótið kl 8:20 í fyrramálið.


Skemmtun og fjör á Fantamótinu á laugardaginn

12.08.2010
Í kvöld fimmtudag hefst Fantamótið í strandblaki með 4 leikjum í B-flokki kvenna, kl 19:00 og 19:35. Annað kvöld heldur B-flokkurinn síðan áfram að spila og verða allir leikir í flokknum kláraðir að undanskildum úrslitaleiknum sem spilaður er á laugardag.Fagrilundur Kópavogi

Spilað verður á strandblakvöllum HK í Fagralundi í Kópavogi. Besta leiðin að svæðinu er aka eins og verið sé að fara í Furugrund 71 í Kópavogi, en HK svæðið er þar fyrir neðan. Sjá kort.

A-flokkur karla og kvenna hefst kl 8:20 á laugardag og verður spilað allan daginn. Gert er ráð fyrir að úrslitaleikirnir hefjist kl 16:35.

Hoppikastali, Gullgrafaraleikur, Kjörís og Fanta fyrir áhorfendur.
Í kringum úrslitaleikina verður Fanta dreift á áhorfendur. Kjörísbíllinn verður á staðnum og verður dreift úr honum ís hægri vinstri. Hoppikastali verður á svæðinu fyrir þau yngstu en síðast en ekki síst verður hinn bráðskemmtilegi Gullgrafaraleikur fyrir alla fjölskylduna.
Leikurinn fellst í því að fjársóður verður grafinn í sandinn, og á vissum tímapunkti milli úrslitaleikja, fá allir áhorfendur að róta í sandinum eftir ýmsu dóti sem vert er að eiga. Þessi leikur vekur alltaf mikla kátínu, ekki síður hjá þeim eldri en yngri.

Það verður Fantafjör í Fagralundi um helgina - Láttu sjá þig.


Fantamótið, stærsta Íslandsmót til þessa verður haldið um helgina í Fagralundi Kópavogi

10.08.2010
Í fullorðinsflokk skráðu sig 26 lið eða um 52 keppendur. 17 kvennalið taka þátt í mótinu og keppa þau í 2 flokkum, A- og B-flokki. Karlaliðin eru 9 að þessu sinni og keppa í A-flokki.

Fantamótið 2010 / Beach VolleyÞau lið sem keppa í A-flokki eru eftirfarandi og er þeim raðað í stigaröð:
HK - Fríða og Birna, HK - Lilja og Laufey, Þróttur R - Valdís og Jóhanna, HK - Karen og Ingibjörg, HK - Heiða og Þórey, Stjarnan - Brynja og Hjördís, Þróttur R - Fjóla og Guðrún, HK - Birta og Steinunn.

Þau lið sem keppa í B-flokki eru eftirfarandi og í stigaröð:
UMFA - Þórey og Svala, HK - Elísabet og Berglind, Höfrungur - Eyrún og Ute, UMFA - Susanne og Guðrún, HK - Lilja M og Dögg, Stjarnan - Aðalheiður og Helga, HK - Ásta og Ásthildur, HK - Inga Rut og Dagný, HK - Hrafnhildur og Hugrún.

Í B-flokki verður keppt í 2 riðlum þar sem allir keppa við alla, og lýkur svo með krossi þar sem 2 efstu lið keppa um fyrstu sætin.

8 karlalið keppa í A-flokki ásamt einu gestaliði sem boðið var að taka þátt, en nöfn þeirra og stigaröð er eftirfarandi:
Stjarnan - Eiríkur og Emil, HK - Orri og Ivo, HK - Guðmundur og Birgir, HK - Karl og Ólafur Heimir, HK - Ólafur J og Reynir, HK - Valgeir Valgeirs og Róbert Karl, HK - Einar og Brynjar, HK - Þór Bæring og Valgeir B, Hamar - Kristján og Hafsteinn en þeir spila á mótinu sem gestalið.

B-flokkur kvenna verður spilaður að mestu á fimmtudags og föstudagskvöld, en A-flokkur karla og kvenna allur spilaður á laugardegi, ásamt úrslitaleikjum í B-flokki.

Spilað verður fimmtudagskvöldið 12. ágúst frá kl 19:00 - rúmlega 20:00.
Föstudagskvöldið 13. ágúst frá kl 18:00 - rúmlega 22:00.
Laugardaginn frá kl 8:20 - 19:00 (áætlað), en úrslitaleikirnir í B-flokki eru áætlaðir kl 16:35, í karlaflokki kl 17:30 en í A-flokki kvenna kl 18:15.

Tímasetningar leikja má finna hér á leikjasíðu mótsins.


Skráning í unglingaflokk lýkur á fimmtudagskvöld

10.08.2010
Ákveðið hefur verið að halda skráningu opinni fyrir unglingaflokk þar til fimmtudagskvöldið.

Allir sem fæddir eru 1989 eða síðar mega taka þátt í mótinu.

Skráningarsíðan er hér.


Skráning hafin í Íslandsmótið/Fantamótið í strandblaki

04.08.2010
Strandblaknefndin samdi á dögunum við Vífilfell um að Íslandsmótið í strandblaki heiti Fantamótið. Vífilfell mun sjá um að auglýsa upp mótið ásamt því að koma að því á annan hátt.

Fantamótið í strandblaki / Beach VolleyAð þessu sinni spila 8 stigahæstu liðin til úrslita í A-flokki, en önnur lið keppa til úrslita í B-flokki þar sem einnig verða veitt verðlaun fyrir 1., 2., og 3. sæti.
A-flokkur verður allur spilaður laugardaginn 14. ágúst ásamt úrslitaleikjum í B-flokki. B-flokkurinn verður að öllum líkindum spilaður á kvöldin frá miðvikudegi til föstudags, en það fer að sjálfsögðu eftir fjölda liða.
Unglingaflokkurinn verður spilaður sunnudaginn 15. ágúst.

Stig hvers liðs eru reiknuð útfrá 3 bestu mótum hvers einstaklings í sumar, og teljast samanlögð stig einstaklinganna inní mótið. Stigastöðu einstaklinga má finna á síðunni Stigastaða.

Þetta verður stærsta mót frá upphafi strandblaks á Íslandi og verður margt í boði bæði fyrir keppendur hvort sem þeir eru í A-, B- eða Unglingaflokki, sem og áhorfendur.

Skráning er nú hafin í Fantamótið (bæði fullorðins og unglinga) og fer hún fram á mótasíðunni.

Þátttökugjald í Fantamótið eru 5.000 kr pr/lið, en 3.000 kr pr/lið í unglingaflokk. Ath að þau unglingalið sem keppa einnig í fullorðinsflokki greiða eingöngu fyrir fullorðinsflokkinn, en skrá þarf liðin í báða flokka.
Greiðsla þátttökugjalda skal fara fram í síðasta lagi sunnudaginn 8. ágúst, en skráning liða sem ekki greiða fyrir tiltekin tíma dettur út.

Lokað verður fyrir skráningu sunnudaginn 8. ágúst kl 23:59, og dagskrá mótsins vonandi komin í loftið á mánudagskvöldi 9. ágúst.

Nú er um að gera að skrá liðin sem fyrst svo hægt sé að gefa út hvaða lið lenda í A-, og hvað lið í B-flokki.

Reikningsnúmer fyrir þátttökugjöld:
301 - 26 - 7571
kt. 450274-0629


Nýr strandblakvöllur í Keflavík

04.08.2010
Fimmtudaginn 22. júlí fóru þeir Einar og Kalli Sig suður með sjó til að setja upp enn einn strandblakvöllinn.

Strandblakvöllur í Keflavík / Beach Volley courtEkki er hægt að segja að strandblakvöllurinn sé á hefðbundnum stað fyrir strandblakvelli en hann var settur upp á einkalóð hjá veitingastaðnum Paddy's við Hafnargötu 38, Keflavík.

Hægt er að panta völlinn sér til skemmtunnar á staðnum.

Sandurinn í vellinum er úr Garðinum og telst mjög góður sandur, einnig eru súlur og net af bestu gerð.

Nú er um að gera að skella sér á rúntinn til Keflavíkur og prufa nýja völlinn.

Á meðfylgjandi mynd má sjá völlinn í uppsetningu. Smellið á myndina til að sjá hana stærri.


Myndagetraun - 2. hluti og sigurvegari 1. hluta

25.07.2010
Það er þegar komið í ljós að á ljósmyndinni í myndagetraun 1 var Orri Þór Jónsson, en það var hún Birna Baldursdóttir sem varð fyrst til að giska á rétt svar. Hún fékk að launum eftisóttan strandblakbol og óskum við henni til hamingju með það.

Hér að neðan má sjá myndina af Orra, bæði litla og stóra, sem og mynd af sigurvegara/giskara getraunarinnar, Birnu Baldursdóttur ánægða með bolinn.

Getraun 1Giskarinn BirnaOrri handareigandi

Myndagetraun 2

Getraun 2Nú er komið að Myndagetraun 2 og felst hún í því að þekkja þessa fætur sem svífa ofar sandi.

Farið inná spjallið og sjáið myndina í fullri stærð, og giskið eins og þið getið.

Úrslit verða gerð kunn fljótlega í næstu viku. Verðlaunin koma á óvart.

 


Úrslit á 4. stigamóti sumarsins

25.07.2010
Um helgina var spilað í Fagralundi í Kópavogi 4. stigamót BLÍ í sumar. Karlarnir spiluðu sína deild í góðum austanvindi á föstudagskvöldið, en konurnar í rjómablíðu og sól á laugardeginum.

6 karlalið skráðu sig til leiks og var spilað allir við alla. Spila átti fyrstu 4 umferðirnar á föstudagskvöldi og svo síðustu umferðina á laugardeginum, en þegar leið á kvöldið voru liðin í miklu stuði og héldu bara áfram og kláruðu mótið. Síðasta leik lauk rétt uppúr kl 23.00.

Meistararnir frá því um síðustu helgi, þeir Orri og Ivo náðu sér ekki á strik og enduðu í 5. sæti, en mikil og jöfn barátta var í flestum leikjum.

Svo fór að Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson stóðu uppi sem sigurvegarar.

Efstu þrjú sætin urðu eftirfarandi:
1. Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson (Stjarnan)
2. Birgir Már Vigfússon og Guðmundur P Guðmundsson (HK)
3. Karl Sigurðsson og Ólafur H Guðmundsson (HK)

Kvennadeildin hófs kl 9.00 á laugardagsmorgni og voru spilaðir 26 leikir yfir daginn. Þó fleiri sterk lið séu komin fram, og jafnari leikir, þá tókst konunum að spila þessa 26 leiki án þess að það yrðu fleiri en 3 oddahrinu leikir, og eiga þær þakkir fyrir. Þetta varð til þess að mótið kláraðist rúmum hálftíma fyrir áætlaðan tíma, en það er frekar sjaldgæft í strandblaki.

Efstu 3 liðin á stigamóti 4 / Beach VolleyEinhverjir keppendur nýttu sér það að vera komin með næg stig til að komast inní lokamótið og hvíldu því á þessu móti. Hinir keppendurnir sáu sér þá leik á borði og pöruðu sig saman með keppendum úr öðrum liðum til að mynda sem sterkustu liðin, og þar á meðal liðið sem vann mótið um helgina.

Bæði Fríða Sigurðardóttir sem spilað hefur með Birnu Baldursdóttur, og Laufey Sigmundsdóttir sem spilað hefur með Lilju Jónsdóttur hvíldu um helgina. Þetta nýttu meðspilarar þeirra, þær Birna og Lilja sér, og settu saman lið fyrir mótið. Úr varð sterkasta lið keppninnar og unnu þær úrslitaleikinn við þær stöllur Ingibjörgu Gunnarsdóttur og Karen Björgu Gunnarsdóttur á sannfærandi hátt 2 - 0.

Efstu þrjú sætin í kvennadeildinni urðu því þannig:
1. Lilja Jónsdóttir og Birna Baldursdóttir (HK)
2. Karen Björg Gunnarsdóttir og Ingibjörg Gunnarsdóttir (HK)
3. Birta Björnsdóttir og Hjördís Eiríksdóttir (HK/Stjarnan)

Á meðfylgjandi mynd eru frá vinstri:
Hjördís, Lilja, Birna, Karen og Ingibjörg.

Hér má sjá fleiri myndir frá mótinu


Smá breytingar

23.07.2010 kl 15:40
Búið er að bæta inní töfluna hjá stelpunum næstu leikjum svo öll lið séu sýnileg, en einnig voru tímasetningarnar á karlaleikjum laugardagsins færðar til.

20 lið skráð til leiks í 4. stigamóti sumarsins

23.07.2010
Það er greinilegt að topp liðin hafa skoðað stöðu sína og einhverjir leikmenn ákveðið að hvíla á þessu móti, þar sem þeir eru næsta öryggir inní lokamót sumarsins, eða meðal 8 efstu liðanna í stigakeppninni.

14 kvennalið og 6 karlalið skráðu sig til leiks í mótið. Karlarnir spila "allir við alla" og þá flesta leikina á föstudagskvöldi en konurnar spila eftir tvöföldu útsláttarkerfi og þá eingöngu á laugardegi.

Hér má sjá tímasetningar leikja í karladeildinni og síðan fyrstu leikina í kvennadeildinni á laugardaginn, en áætlað er að báðar deildir klárist milli kl 17:30 og 18:30 á laugardeginum.

Föstudagur - Karladeild Föstudagur - Karladeild
Leik Nr. Tími Lið 1 Lið 2 Leik Nr. Tími Lið 1 Lið 2
1 18:00 Gummi / Biggi Emil / Eiki 2 18:00 Orri / Ivo Óli / Ingó
3 18:35 Þór / Jón Kalli / Óli 4 18:35 Gummi / Biggi Orri / Ivo
5 19:10 Þór / Jón Emil / Eiki 6 19:10 Kalli / Óli Óli / Ingó
7 19:45 Gummi / Biggi Óli / Ingó 8 19:35 Emil / Eiki Kalli / Óli
9 20:20 Orri / Ivo Þór / Jón 10 20:20 Emil / Eiki Óli / Ingó
11 20:55 Gummi / Biggi Þór / Jón 12 20:55 Orri / Ivo Kalli / Óli
Laugardagur - Karladeild Laugardagur - Karladeild
13 16:00 Óli / Ingó Þór / Jón 14 15:25 Kalli / Óli Gummi / Biggi
15 16:35 Emil / Eiki Orri / Ivo        

 

Laugardagur - Kvennadeild Laugardagur - Kvennadeild
Leiknr. tími Lið 1 Lið 2 Leiknr. tími Lið 1 Lið 2
1 09:00 Heiða / Eyrún Olga / Lilja M 2 09:00 Ásta / Kolla Margaret / Renata
3 09:35 Ingibjörg / Karen Alissa / Heidi 4 09:35 Jóhanna / Valdís Andrea / Gyða
5 10:10 Berglind / Elísabet Suzana / Helga 6 10:10 Svala / Þórey Gunna S / Susanne
7 10:45 Lilja / Birna (Sigurlið leik 1) 8 10:45 (Sigurlið leik 2) (Sigurlið leik 3)
9 11:20 (Sigurlið leik 4) (Sigurlið leik 5) 10 11:20 (Sigurlið leik 6) Hjördís / Birta

Við viljum minna liðin á að ganga frá greiðslu í síðasta lagi fyrir hádegi föstudagsins 23. júlí, inná fyrrgreindan reikning.


Skráning hafin í Stigamót IV

Stigamót 4 / Beach Volley20.07.2010
Næstu helgi föstudaginn 23. og laugardaginn 24. júlí fer fram 4. stigamót sumarsins.
Mótið verður haldið í Fagralundi í Kópavogi, og ef fer sem horfir verður mjög góð þátttaka á mótinu, enda hvert mótið í sumar verið sprenging í þátttöku.

Skráning er hafin hér á vefnum og sem fyrr er þátttökugjaldið 1.500 kr pr/keppanda. Greiða skal inná reikning Blaksambandsins 301 - 26 - 7571 kt. 450274-0629. Greiða skal fyrir hádegið föstudagsins 23. júlí.

Farið inná Mótasíðuna til að skrá ykkur.

Skráningu lýkur fimmduagskvöldið 22. júlí kl 19.00


Getraun á Strandblak.is

20.07.2010
Nú ætlar Strandblak.is að bjóða uppá smá nýjung, en það er getraun í formi myndagetraunar.

Birt verður mynd af keppanda, eða hluta af keppanda og eiga þátttakendur í getrauninni að fara inná Netspjallið hér til vinstri á síðunni og giska á af hverjum myndin er.

Hver á höndina?Sá/sú sem fyrst kemur með rétt svar fær að launum einhver smávægileg verðlaun, en þetta er meira til gamans gert.

Í fyrstu getraun síðunnar er mynd sem tekin var á mótinu á Flúðum sem var síðastliðna helgi, og felst í því að giska á "Hver á höndina?"

Í verðlaun fyrir fyrstu getraun er Strandblak.is bolur.

Farið inná netspjallið og svarið getrauninni.


Lang stærsta strandblaksmótshelgi að baki

19.07.2010
Um helgina fór fram langstærsta strandblakmót sem haldið hefur verið hér á landi, frá því byrjað var að halda þessi mót fyrir sex árum síðan. Hér eru nokkrar tölur til gamans:

  • Orri Þór Jónsson / Beach VolleyFjöldi liða var 39, þar af 21 kvennalið, 9 karlalið, 6 lið i unglingaflokki stúlkna og 3 lið í unglingaflokki pilta.
  • Spilað var frá kl 18:00 - 22:56 á föstudegi, 8:30 - 23:25 á laugardegi og frá 9:00 - 13.54 á sunnudegi
  • Heildar spiltími var 41 klst og 13 mínútur (tími frá því leikur hefst þar til hann endar)
  • Meðaltími leikja var 35 mín í kvennadeild, 39 mín í karladeild, 26 mín í stúlkna flokki og 24 mín í pilta flokki
  • Spilaðir voru 77 leikir
  • Spilaðir voru 21 þriggja hrinu leikir, þar af 8 í karlaflokki, 13 í kvenna en engin í unglingaflokkum.
  • Spilaðar voru 173 hrinur
  • Tekin voru 26 leikhlé (sem er ekki nema 0,15 leikhlé á hrinu)
  • Alls voru skoruð 5717 stig
  • Mesta stigaskor í leik var 118 stig (24-22 / 20-22 / 15-13)
  • Hæsta stigaskor í hrinu var 26 - 24

Til allrar lukku var veðrið okkur hliðhollt en spilað var í vægast sagt brjálaðri blíðu og má búast við að stór hluti keppenda sé nú rauðari en vel þroskaður tómatur í dag, allavega má það segja um greinarhöfund.

Gaman var að sjá hve mörg unglingalið lögðu það á sig að fara austur. Einnig var gaman að sjá að yngri keppendur eru farnir að slá þeim eldri við í sandinum, en það er akkúrat það sem við viljum sjá gerast að þeir yngri þroskist og taki framförum, því þau eiga jú að taka við af hinum eldri.

Þess má geta að Altis ehf, innflytjanda Under Armour á Íslandi gaf öll verðlaun á mótinu.

Hér eru helstu úrslit en þau voru ekki alveg eftir bókinni, en þannig á það líka að vera.

Kvennaflokkur
1. sæti - Birna Baldursdóttir og Fríða Sigurðardóttir (HK)
2. sæti - þórey Haraldsdóttir og Laufey Björk Sigmundsdóttir (HK)
3. sæti - Fjóla Rut Svavarsdóttir og Birta Björnsdóttir (Þróttur/HK)

Karlaflokkur
1. sæti - Orri Þór Jónsson og Ivo Bartkevich (HK)
2. sæti - Einar Sigurðsson og Emil Gunnarsson (HK)
3. sæti - Ólafur J Júlíusson og Ingólfur Guðjónsson (HK)

Unglingaflokkur stúlkur
1. sæti - Birta Björnsdóttir og Steinunn Helga Björgólfsdóttir (HK)
2. sæti - Fjóla Rut Svavarsdóttir og Hjördís Eiríksdóttir (Þróttur/Stjarnan)
3. sæti - Auður Anna Jónsdóttir og Guðrún Margrét Jónsdóttir (KA)

Unglingaflokkur piltar
1. sæti - Ólafur J Júlíusson og Orri Þór Jónsson (HK)
2. sæti - Stefán Gunnar Þorsteinsson og Lúðvík Már Matthíasson (HK)
3. sæti - Gylfi Freyr Karlsson og Viktor Emile C Gauvrit (HK/UMFA)

Stigaskor verður fljótlega fært inn, sem og myndir settar á vefinn.

Athugið að hér til vinstri á síðunni er komið eitthvað sem heitir Net spjall, en það er hugsað fyrir keppendur sem og aðra til að koma á framfæri sínum skoðunum, hvort sem það viðkemur mótum, stigagjöf, leit að leikmanni eða hverju því sem tengist strandblakinu.

Hér á meðfylgjandi myndum má verðlaunahafa í unglingaflokkum.

Mynd 1, frá vinstri: Gylfi Freyr, Viktor, Óli J, Orri, Stefán og Lúðvík
Mynd 2, frá vinstri: Auður, Guðrún, Birta, Steinunn, Hjördís og Fjóla

Verðlaunahafa í piltaflokki / Beach VolleyVerðlaunahafa í stúlknaflokki / Beach Volley


Unglingamótið á sunnudag - Tímaplan

16.07.2010 kl 11:45
Munið að mæta ekki seinna en hálftíma fyrir leik. Tímasetningar leikja eru aðeins til viðmiðunar og geta breyst á mótinu sjálfu, og því ber að fylgjast vel með.

Sunnudagur - Völlur 1 Sunnudagur - Völlur 2
1 09:00 Birta/Steinunn Fjóla/Hjördís 2 09:00 Thelma/Viktor Auður/Guðrún
3 09:30 Fjóla/Hjördís Hrafnhildur/Hugrún 4 09:30 Auður/Guðrún Elísabet/Berglind
5 10:00 Hrafnhildur/Hugrún Birta/Steinunn 6 10:00 Thelma/Viktor Elísabet/Berglind
7 10:30 Birta/Steinunn Thelma/Viktor 8 10:30 Elísabet/Berglind Hrafnhildur/Hugrún
9 11:00 Fjóla/Hjördís Auður/Guðrún 1 11:00 Óli J / Orri Gylfi / Viktor
10 11:30 Auður/Guðrún Hrafnhildur/Hugrún 2 11:30 Gylfi / Viktor Lúðvík / Stefán
11 12:00 Thelma/Viktor Fjóla/Hjördís 3 12:00 Lúðvík / Stefán Óli J / Orri
12 12:30 Elísabet/Berglind Birta/Steinunn 4 12:30 Óli J / Orri Gylfi / Viktor
13 13:00 Hrafnhildur/Hugrún Thelma/Viktor 5 13:00 Gylfi / Viktor Lúðvík / Stefán
14 13:30 Fjóla/Hjördís Elísabet/Berglind 6 13:30 Lúðvík / Stefán Óli J / Orri
15 14:00 Birta/Steinunn Auður/Guðrún

Breyting

16.07.2010 kl 10:55
Ath. breyting á tímasetningu. Leikur nr. 2 verður kl 19:10 en leikur nr. 6 kl 18:00. Þetta er breyting frá því sem fyrst var sett á vefinn.

Enn einu sinni sláum við þátttökumet

16.07.2010
Það er greinilegt að strandblakið er á hraðri uppleið, en enn einu sinni sláum við þátttökumet á stigamóti.

Tæplega 80 manns taka þátt í móti helgarinnar. Þar af eru 21 kvennalið, 9 karlalið og 9 lið í unglingaflokki.
Leiknir verða því 77 leikir en það ætti að taka u.þ.b. 45 klst í stanslausu spili. Nú er bara spurningin hvort 2 vellir og ein helgi sé nóg fyrir svona stórt mót.

Við ætlum að reyna og með hjálp keppenda við að halda tímaplani, mæta ekki seinna en hálftíma fyrir leik, spila heiðarlega og fara í sem fæsta 3ja hrinu leiki... þá ætti það að hafast.

Keppnin hefst kl 18.00 föstudaginn 16. júlí í kvennadeildinni, og verður spilað fram eftir kvöldi. Mótið hefst svo aftur kl 8:30 á laugardagsmorgni. Karladeildin hefst ekki fyrr en kl 11:00 á laugardegi.

Búist er við því að úrslitaleikir í karla og kvennaflokki verði spilaðir um kl 20:30

Unglingaflokkur verður spilaður á sunnudegi og hefst mótið hjá stúlkunum kl 9:00, en drengjunum kl 10:30.

Ætlast er til að keppendur spili í eins búningum.

Vinsamlegast greiðið þátttökugjaldið fyrir hádegi föstudagsins, sendið staðfestingu á strandblak@strandblak.is, prentið svo út kvittun og takið með ykkur á mótið.
Þátttökugjald greiðist eins og áður segir, inná reikning 301-26-7571, kt. 450274-0629, og er það 1.500 kr pr/þátttakanda í fullorðinsflokki (3.000kr pr/lið), en 1.000 kr pr/þátttakanda í unglingaflokki. Unglingar sem keppa einnig í fullorðinsflokki greiða bara gjald fyrir fullorðinsflokkinn..

Hér má sjá leikjaniðurröðun á föstudagskvöldið og fyrstu 2 leikina á laugardeginum hjá konunum.

Föstudagur - Völlur 1 Föstudagur - Völlur 2
Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2 Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2
1 18:00 Aðalheiður / Helga Guðrún / Susanne 6 18:00 Ásta / Kolla Ingibjörg / Karen
3 18:35 Margaret / Suzana Guðrún / Thelma 4 18:35 Þórey / Svala Heidi / Lilja L
5 19:10 Eyrún / Ute Láretta / Guðrún Ó 2 19:10 Charlotta / Hjördís Hrafnhildur / Hugrún
7 19:45 Brynja / Hjördís Dögg / Lilja M 8 19:45 Elísabet / Berglind Hera / Oddný
9 20:20 (sigurlið leik 1) Birna / Friða 10 20:20 Fjóla / Birta (Sigurlið leik 2)
13 20:55 Þórey / Laufey (Sigurlið leik 5) 12 20:55 (Sigurlið leik 4) Jóhanna / Valdís
15 21:30 (Taplið leik 4) (Taplið leik 9) 16 21:30 (Taplið leik 5) (Taplið leik 7)
Laugardagur - Völlur 1 Laugardagur - Völlur 2
Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2 Leik nr. Tími Lið 1 Lið 2
11 08:30 Auður / Guðrún (Sigurlið leik 3) 14 08:30 (Taplið leik 3) (Taplið leik 6)

Nánari upplýsingar um unglingamótið koma hér upp síðar í dag.

Birt með fyrirvara um breytingar


Stigamót III næstu helgi - Skráning hafin

Stigamót 3 í strandblaki / Beach Volley12.07.2010
Næstu helgi fer fram þriðja stigamót sumarsins, en það verður haldið á Flúðum föstudaginn 16. - 17. júlí. Sunnudaginn 18. júlí fer svo fram annað stigamót unglinga.

Eins og staðan er í dag þá er ein besta aðstaða á landinu á Flúðum, og hafa flúðamenn verið stöðugt að bæta aðstöðuna síðan þeir settu upp vellina.

Skráningu í mótið lýkur fimmtudaginn 15. júlí kl 19.00.

Þátttökugjald er sem fyrr 3.000 kr pr/lið og skal það greiðast fyrir hádegi föstudagsins 16. júlí, inná reikning Blaksambandsins, 301 - 26 - 7571, Kt. 450274-0629.

Þátttökugjald í unglingamótið er 2.000 kr pr/lið, en þeir sem keppa einnig í fullorðinsflokki greiða eingöngu fullorðinsgjaldið.

Farið inná Mótasíðuna til að skrá liðin. Athugið að unglingar geta bæði keppt í unglinga og fullorðinsflokki.


Strandblakvöllur á Hellissandi / Beach Volley CourtEnn bætast við nýir vellir á landinu

11.07.2010
Frábærar fréttir bárust í gær frá Snæfellsbæ en þá var tekin í notkun glænýr strandblakvöllur, sá vestasti á landinu.

Völlurinn er staðsettur á íþróttasvæði Umf. Reynis Hellissandi þar sem fyrir er stór grasvöllur sem var gerður árið 94 til 96, stuttur gangur er frá tjaldstæði sem er verið að byggja inn á vallarsvæðið, þar sem hægt verður að fara í hinar ýmsu boltaíþróttir, og þar á meðal að sjálfsögðu STRANDBLAK.

Við óskum Reyni Hellissandi innilega til hamingju með völlinn og hlökkum til að fá upprennandi strandblakara að vestan í mótin.


Strandblak / Beach VolleyBlautasta strandblakmót frá upphafi

11.07.2010
Í gær laugardag var haldið eitt blautasta strandblakmót frá upphafi, en það rigndi frá því mótið byrjaði um hádegið og alveg til kl 18.00 þegar búið var að ganga frá.
Það er samt ekki hægt að segja annað en keppendur hafi haft mjög gaman af mótinu og skemmt sér vel þrátt fyrir bleytuna.

Þetta var sannkallað hraðmót því spilaðir voru um 50 leikir á fjórum klukkutímum, en hver leikur var keyrður í 10 mínútur.

Svo fór að í karladeildinni sigraði liðið 3 Amigos, í öðru sæti varð Under Armour og í því þriðja varð Blake.

Í kvennadeildinni sigraði Þróttur R, í öðru sæti varð Stjarnan og í því þriðja Tres Locos.

Myndir af mótinu má sjá hér

 


Tæplega 60 manns keppa á Trimmóti HK

10.07.2010
12 kvennalið og 6 karlalið skráðu sig til leiks á Trimmóti HK sem fram fer í dag í Fagralundi, félagssvæði HK.

Þetta verður sannkallað hraðmót þar sem hver leikur er spilaður í 10 mínútur, og það lið sem hefur flreiri stig eftir þann tíma vinnur leikinn. Ef lið enda með jafna stigatölu er spiluð ein uppgjöf til viðbótar.
Keppt verður í 3ja manna liðum og hefst mótið kl 12:00.

Til þess að liðin fengju að spila við sem flesta, og einnig til þess að reyna að halda mótinu innan þess tímaramma sem gefin var í upphafi þá eru frekar spilaðir styttri leikir og örari skiptingar.

Spilað verður eftir innireglum í blaki. Undantekningar frá því ef einhverjar eru verða kynntar á staðnum.

Greiðsla þátttökugjalda sem er 4.500 kr pr/lið skal fara fram á staðnum fyrir 1. leik liðs.

Tekið skal fram að allar tímasetningar eru eingöngu til viðmiðunar, og því ber að vera á staðnum tímanlega. Einnig þarf að athuga það að ef lið þarf að draga sig úr keppni, þá riðlast allt tímaplan og því þurfa allir að vera viðbúnir.

Hér má svo sjá uppröðun leikja:

Kvennadeild Karladeild
Kvennadeild
Karladeild

Skráning hafin í Trimmót HK

06.07.2010
Laugardaginn kemur, þann 10. júlí verður haldið Trimmót HK og hefst það kl 12:00, en það verður haldið í Fagralundi í Kópavogi.

Trimmót í Fagralundi á laugardaginn / Beach VolleyÞetta er mót með þriggja manna liðum og verður mótið keyrt á tíma, þ.e. að hver leikur verður í ákveðin tíma og keppast liðin við að skora sem mest á gefnum tíma. Ef lið eru jöfn þegar tímamörkin eru komin þá er leikin ein auka uppgjöf til að skera úr um sigurliðið. Reynt verður að hafa nóg af leikjum á hvert lið svo leikmenn fái sem mest út úr deginum.

Áætlað er að mótinu ljúki um kl 16.00, en það er þó ekki alveg á hreinu fyrr en þátttökufjöldi liða er ljós.

Nú er um að gera að skrá liðið sitt og taka þátt í mótinu, en svona þriggja manna trimmót hafa alltaf verið mikil skemmtun.

Þátttökugjald er 1.500 kr pr/keppanda. Leyfilegt er að vera með skiptimann, en hægt er að skipta milli hrina, eða bara þegar skipt er um vallarhelming.

Lokað verður fyrir skráningu föstudaginn 9. júlí kl 19:00.

Skráðu liðið þitt hér.


Trimmót HK verður haldið næsta laugardag

06.07.2010
Laugardaginn 10. júlí verður haldið trimmót í Fagralundi í Kópavogi. Keppt verður í 3ja manna liðum og allir velkomnir sem einhverntíma hafa farið í strandblak.

Skráning í mótið verður opnuð hér á vefnum seinna í dag.


Óvænt úrslit í kvennaflokki á öðru stigamóti sumarsins

04.07.2010
Annað stigamót sumarsins var spilað á laugardaginn við frábærar vallaraðstæður á strandblakvöllunum á Þingeyri.

20 lið mættu til leiks en aldrei hafa svo mörg lið tekið þátt í stigamóti sem haldið hefur verið utan höfuðborgarsvæðisins og því greinilegt að íþróttin er að dreifa sér hratt og örugglega um landið.

Í karlaflokki spiluðu 7 lið og var fyrirfram búist við því að Emil Gunnarsson og Eiríkur Eiríksson sigruðu þann flokk, sem þeir og gerðu eftir úrslitaleik við þá Birgi Má Vigfússon og Guðmund Guðmundsson.

Flestir bjuggust við að úrslitaleikur kvenna yrði leikur Laufeyjar Bjarkar Sigmundsdóttur og Lilju Jónsdóttur við þær landsliðsstöllur Fríðu Sigurðardóttur og Birnu Baldursdóttur, þar sem Þórey Haraldsdóttir sem spilað hefur með Heiðbjörtu Gylfadóttur, með góðum árangri undanfarin ár, spilaði að þessu sinni með "unglingnum" Birtu Björnsdóttur.

Þórey og Birta komu hinsvegar á óvart og slógu Fríðu og Birnu út í undanúrslitum, og ekki nóg með það heldur gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Laufeyju og Lilju í úrslitaleik 2 - 0.

Strandblak á Þingeyri 2010 / Beach VolleyÞað má segja að þær Fríða og Birna koma mjög sterkar inn í stigamótin þetta sumarið og greinilegt að þær ætla sér stóra hluti. Þær vantar þó ennþá þá æfingu og reynslu í sandinum sem hin liðin hafa, en þegar það smellur þá verða þær til alls líklegar.

Efstu þrjú sætin í kvennaflokki urðu því eftirfarandi:
1. sæti - Þórey Haraldsdóttir og Birta Björnsdóttir (HK)
2. sæti - Laufey Sigmundsdóttir og Lilja Jónsdóttir (HK)
3. sæti - Fríða Sigurðardóttir og Birna Baldursdóttir (HK)

Efstu þrú sætin í Karlaflokki urðu eftirfarandi:
1. sæti - Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
2. sæti - Birgir Már Vigfússon og Guðmundur P Guðmundsson (HK)
3. sæti - Ólafur J Júlíusson og Ingólfur Guðjónsson (HK)

Á meðfylgjandi mynd má sjá úrslitasætin í karlaflokki, frá vinstri: Guðmundu, Birgir, Emil, Eiríkur, Ingólfur og Ólafur.


20 lið keppa á Þingeyri á morgun og er það met

02.07.2010
Nú er skráningu lokið fyrir mótið á Þingeyri en alls skráðu sig 20 lið til leiks, en aldrei hafa svo mörg lið keppt á mótinu á Þingeyri fram að þessu.

13 lið spila í kvennadeildinni og 7 lið í karladeildinni. Hér að neðan má sjá fyrstu leiki morgundagsins. Kvennadeildin keppir á báðum völlum fram yfir hádegið, en þá hefja strákarnir einnig leik.

Munið að mæta í síðasta lagi hálftíma fyrir auglýstan leiktíma. Leikur getur byrjað fyrr en auglýst er ef mótið gengur hratt fyrir sig.

Hér eru fyrstu leikirnir, en restin kemur í ljós eftir því sem mótið er spilað.

Tími Völlur 1 Tími Völlur 2
09:30 kvk 1 Jóhanna/Valdís Sólveig/Jamie 09:30 kvk 2 Brynja/Hjördís E
10:00 kvk 3 Fjóla/Guðrún Hjördís G/Berglind S 10:00 kvk 4 Auður/Guðrún Ásdís/Harpa G
10:30 kvk 5 Berglind G/Elísabet Eyrún/Guðrún S 10:30 kvk 6 Þórey/Birta (sigurlið leik 1)
11:00 kvk 7 (Sigurlið leik 2) Fríða/Birna 11:00 kvk 8 (Sigurlið leik 3) (Sigurlið leik 4)
11:30 kvk 9 (Sigurlið leik 5) Laufey/Lilja 11:30 kvk 10
12:00 kvk 11 12:00 kvk 12
12:30 Leiðréttingartími 12:30 Leiðréttingartími
13:00 kvk 13 13:00 kk 1 Valli/Reynir Óli J/Ingó
13:30 kvk 14 13:30 kk 2 Biggi/Gummi Ari/Jón
14:00 kvk 15 14:00 kk 3 Orri/Ivo Bjarki/Daníel
14:30 kvk 16 14:30 kk 4 (Tap 2) (Tap 3)
15:00 kvk 17 15:00 kk 5 Emil/Eiki (Sigur 1)
15:30 kvk 18 15:30 kk 6
16:00 Leiðréttingartími 16:00 Leiðréttingartími
16:30 kvk 19 16:30 kk 7
17:00 kvk 20 17:00 kk 8
17:30 kvk 21 17:30 kk 9
18:00 kvk 22 18:00 kk 10
18:30 kvk 23 18:30 kk 11
19:00 Frítími meðan KK spila úrslitaleikinn 19:00 kk 12 ÚRSLITALEIKUR KK
19:30 kvk 24 ÚRSLITALEIKUR KVK 19:30

Stigamót II 3. - 4. júlí - Skráning hafin

Stigamót II á Þþingeyri / Beach Volley28.06.2010
Skráning er hafin í stigamót II sem fram fer um næstu helgi.

Mótið fer fram á frábærum völlum Þingeyringa en það er orðin hefð fyrir því að spila stigamót á Þingeyri á hverju sumri. Strandblakmótið fer nú fram á Dýrafjarðardögum sem er sannkölluð gleðihátíð Þingeyringa.

Frábært tjaldsvæði er á staðnum, góð sundlaug og skemmtilegt fólk. Heyrst hefur að allir strandblakarar ætli á Þingeyri.

Mótið hefst kl 9.30 á laugardags morgni og verður reynt að keyra það í gegn á einum degi, en sunnudagurinn er hafður til vara ef það ekki næst.

Þátttökugjaldið er 3.000 kr á lið og á aða greiða ekki seinna en á föstudag inná reikning 301 - 26 - 7571 kt. 450274-0629, setjið "nafn+stigamót 2" sem skýringu. Kvittun þarf einnig að prenta út og taka með sér á mótsstað.

Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudagskvöldið 1. júlí.

Smellið hér til að komast á skáningingarformið


Framtíðin er björt í strandblakinu

27.06.2010
Um helgina fór fram fyrsta stigmót af fjórum í sumar og má með sanni segja að framtíðin sé björt í strandblakinu, en frábær þátttaka var á unglingamótinu sem fór fram samhliða stigamótinu.

Stigamótið var spilað frá kl 18-22:30 á föstudag, og svo frá kl 9-21:40 á laugardag, og því sannkallað maraþon mót fyrir þá sem lengst þurftu að spila.

Veðrið setti smá strik í reikninginn þó svo engum leik hafi verið frestað vegna mikillar úrkomu á föstudag, en boltarnir eru greinilega ekki gerðir fyrir íslenska úrkomu og urðu mun þyngri en venjulega. Sandurinn var líka þungur og erfiður og leikurinn eftir því.
Strandblakarar létu það þó ekki á sig fá og spiluðu af hörku, og sáust flott tilþrif bæði í smassi og björgunum.

Á sunnudeginum var svo fyrsta unglingamótið af þremur í sumar, en þetta er jafnframt fyrsta unglingamótið sem haldið hefur verið. Það er greinilegt að þetta hitti í mark því 10 lið skráðu sig til leiks og skemmtu allir sér vel á mótinu. Það má því búast við að á næsta unglingamóti, sem haldið verður á Flúðum 18. júlí, verði fjöldi unglingaliða jafnvel tvöfalt meiri.

Úrslitin á mótinu urðu eftirfarandi:

Efstu sætin í unglingaflokki stúlkna / Beach VolleyStigamót I - kvenmenn
1. sæti - Laufey Björk Sigmundsdótti og Lilja Jónsdóttir (HK)
2. sæti - Heiðbjört Gylfadóttir og Þórey Haraldsdóttir (HK)
3. sæti - Birna Baldursdóttir og Fríða Sigurðardóttir (HK)

Stigamót I - karlmenn
1. sæti - Einar Sigurðsson og Karl Sigurðsson (HK)
2. sæti - Emil Gunnarsson og Eiríkur R Eiríksson (Stjarnan)
3. sæti - Orri Þór Jónsson og Ivo Bartkevics (HK)

Unglingamót I - stúlkur
1. sæti - Birta Björnsdóttir og Steinunn Helga Björgólfsdóttir (HK)
2. sæti - Auður Anna Jónsdóttir og Guðrún Margrét Jónsdóttir (KA)
3. sæti - Hjördís Eiríksdóttir og Rósa Dögg Ægisdóttir (Stjarnan)
(myndin til hægri sýnir efstu þrjú sætin í unglingaflokki kvenna, talið frá vinstri: Hjördís, Steinunn, Birta, Guðrún og Auður. Á myndina vantar Rósu.)

Unglingamót I - piltar
1. sæti - Ólafur J Júlíusson og Ingólfur Guðjónsson (HK)
2. sæti - Alexander Sævar Guðbjörnsson og Geomar M. Orbon (Stjarnan)
3. sæti - Magnús Ingvi Kristjánsson og Ólafur Arason (HK)

Efstu sætin í unglingaflokki pilta / Beach Volley
Á myndinni eru 3 efstu sætin í unglingaflokki pilta, talið frá vinstri:
Ólafur Arason, Magnús, Ingólfur, Ólafur J, Alexander og Geomar.

Endilega ef þið eigið einhverjar skemmtilegar myndir frá mótinu, sendið þær þá á strandblak@strandblak.is


Unglingamótið á sunnudaginn - Leikjaniðurröðun

26.06.2010 kl 11:00
6 stúlknalið og 4 piltalið skráðu sig til leiks í Unglingamótið, en það hefst kl 10:00 sunnudaginn 27. júní.

Keppt verður einföld umferð "allir við alla". Hér má sjá leikjaniðurröðun:
Mæting er 30 mín fyrir leik.

Kl Nr. Völlur 1   Kl Nr. Völlur 2  
10:00 1 Auður/Guðrún Fjóla/Jórunn 10:00 2 Hrafnhildur/Hugrún Birta/Steinunn
10:30 3 Fjóla/Jórunn Hjördís/Rósa 10:30 4 Birta/Steinunn Berglind/Elísabet
11:00 5 Hjördís/Rósa Auður/Guðrún 11:00 6 Hrafnhildur/Hugrún Berglind/Elísabet
11:30 7 Fjóla/Jórunn Birta/Steinunn 11:30 8 Berglind/Elísabet Hjördís/Rósa
12:00 9 Auður/Guðrún Hrafnhildur/Hugrún 12:00 1 Alexander/Geomar Maggi/Óli A
12:30 10 Birta/Steinunn Hjördís/Rósa 12:30 2 Óli J/Ingó Alexander/Guðmundur
13:00 11 Hrafnhildur/Hugrún Fjóla/Jórunn 13:00 3 Alexander/Geomar Óli J/Ingó
13:30 12 Berglind/Elísabet Auður/Guðrún 13:30 4 Maggi/Óli A Alexander/Guðmundur
14:00 13 Hjördís/Rósa Hrafnhildur/Hugrún 14:00 5 Alexander/Guðmundur Alexander/Geomar
14:30 14 Fjóla/Jórunn Berglind/Elísabet 14:30 6 Maggi/Óli A Óli J/Ingó
15:00 15 Auður/Guðrún Birta/Steinunn 15:00      

 


Blautur en flottur dagur að baki - Næstu leikir

26.06.2010 kl 01:00
Eftir frábæra daga undanfarið þurfti aðeins að vökva í Fagralundi, en það var gert svo um munaði í byrjun móts í dag. Keppendur létu votviðrið ekki á sig fá og spiluðu 16 leiki. Sem betur fer var blanka logn þó það rigndi aðeins svo þetta var bara ekki svo slæmt, þó svo boltarnir minntu meira á körfubolta vegna þyngdar í votviðrinu.

Mótið hefst kl 9:00 í fyrramálið og verður spilað í kvennadeildinni á báðum völlum til kl 12:30, þá hefst karladeildin og verður þá spilað í báðum deildum á sitthvorum vellinum.

Hér má sjá þá leiki sem þegar eru tímasettir:

Konur - Laugardagsleikir
 
Konur - Laugardagsleikir
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
09:00 (7) Heiða/Þórey Auður/Guðrún   09:00 (8) Lilja/Laufey Hera/Oddný
09:30 (9) Birta/Steinunn Ásta/Kolla   09:30 (10) Birna/Fríða Karen B/Inga Rut
10:00 (11) Olga/Lilja M (Sigurlið úr leik 7)   10:00 (12) Brynja/Hjördís Fjóla/Guðrún K
10:30 (13) Berglind/Elísabet (Taplið úr leik 7)   10:30 (14) Kristbjörg/Karen R Eva/Valdís
11:00 (15) Þórey/Svala (Taplið úr leik 10)        
Karlar - Laugardagsleikir
 
Karlar - Laugardagsleikir
12:30 (11) Þór/Valgeir Maggi/Óli A   13:00 (12) Ingó/Óli J Orri/Ivo
13:30 (13) Reynir/Valli Einar/Kalli   14:00 (14) Emil/Eiki Birgir/Gummi
Karlar - AUKALEIKIR
 
Karlar - AUKALEIKIR
17:00 (21) Halldór/Þór V Arnar/Hafsteinn   17:30 (22) Alexander/Geomar (sigurlið úr leik 21)

Athugið að aðrir leikir raðast eftir því sem mótinu fram gengur og ekki hægt að tímasetja næstu leiki. Eingöngu verður hægt að sjá það á staðnum á morgun.

Áætlað er þó að úrslitaleikirnir verða spilaðir á morgun. Karlaleikurinn á að hefjast kl 18:00 og kvennaleikurinn strax á eftir, eða 18:30.

Þeir sem ekki hafa enn greitt þátttökugjald eru beðnir að gera það fyrir þeirra leik á morgun. Best er að leggja inná reikninginn sem tekin er fram hér að neðan.



Yfir 70 strandblakleikir verða spilaðir um helgina

25.06.2010 kl 02:30
31 leikur verður spilaður í kvennadeildinni og 22 leikir hjá körlunum. 21 leikur verður spilaður í unglingaflokki sem fram fer á sunnudaginn. Þetta gera ca 37 klukkustundir í spili, en gert er ráð fyrir að meðal strandblakleikur sé um 30 mínútur.
Það segir sig því sjálft að ekki er lengur hægt að halda svona mót á þeim stöðum þar sem eingöngu er boðið uppá 1 strandblakvöll.

Kvenna- og karla deildirnar hefjast í kvöld kl 18:00 og verða spilaðir 6 leikir í kvennadeild en 10 leikir í karladeild.

Með smá púslispili tókst að raða mótinu þannig að liðin sem koma lengst að ættu að hafa nægan tíma til að jafna sig eftir langt ferðalag áður en þau spila, en 2 lið koma frá Akueyri og 2 lið frá Egilsstöðum, og fögnum við þeim innilega.

Mótið hefst sem fyrr segir kl 18.00 og spilað til rúmlega 22:00 (mæting 17:30 hjá fyrstu liðum). Mótið hefst svo aftur í fyrramálið kl 9:00 (mæting 8:30 hjá fyrstu liðum).

Þar sem tímasetning leikja er mjög þétt eru liðin beðin um að vera á staðnum ekki seinna en 30 mín fyrir auglýstan leiktíma. Einnig geta tímasetningar skorðast og er það á ábyrgð liða að fylgjast með, hvort sem um seinkanir er að ræða eða leikjum flýtt.

Greiðsla skal fara fram fyrir fyrsta leik liðs og er gjaldið 3.000 kr pr/lið. Bæði er hægt að greiða á staðnum með peningum, eða sem er betri kostur, að leggja inná reikning Blaksambandsins.
Reikningsnúmerið er: 301 - 26 - 7571 kt: 450274-0629.
Þá er ætlast til að liðin komi með útprentaða kvittun á staðinn til staðfestingar. Vinsamlegast setjið nafn + stigamót 1 sem skýringu.

Hér er svo uppröðun á fyrstu leikjum dagsins.

Konur - Föstudagsleikir
 
Karlar - Föstudagsleikir
Tími Lið A Lið B   Tími Lið A Lið B
18:00 (3) Ásta/Kolla Eva/Valdís   18:00 (1) Maggi/Óli A Alexander/Geomar
18:30 (1) Þórey/Svala Hera/Oddný   18:30 (2) Orri/Ivo Halldór/Þór V
19:00 (2) Birta/Steinunn Kristbjörg/Karen R   19:00 (3) Birgir/Gummi Arnar/Hafsteinn
19:30 (5) Fjóla/Guðrún K Karen B/Inga Rut   19:30 (4) Reynir/Valli Þór B/Valgeir
20:00 (6) Olga/Lilja M Berglind/Elísabet   20:00 (5) Einar/Kalli (Sigurlið úr leik 1)
20:30 (4) Birna/Fríða Brynja/Hjördís   20:30 (6) Emil/Eiki (Sigurlið úr leik 2)
        21:00 (7) Ingó/Óli J (Sigurlið úr leik 3)
Konur - Laugardagur
  21:00 (8) (Taplið úr leik 2) (Taplið úr leik 4)
09:00 Heiða/Þórey Auður/Guðrún   21:30 (9) (Taplið úr leik 3) (Taplið úr leik 5)
09:00 Lilja/Laufey (Sigurlið úr leik(1))   21:30 (10) (Taplið úr leik 1) (Taplið úr leik 6)

Karlarnir hefja ekki leik fyrr en um hádegið á laugardag en nánari upplýsingar um það verða gefnar á staðnum eftir leiki dagsins í kvöld, en þá kemur líka í ljós hvernig næstu leikir raðast.

Gert er ráð fyrir að mótinu ljúki með úrslitaleikjum kl 18:00 og 18:30 á laugardag. ATHUGIÐ að ef mikil seinkunn verður á mótinu, mun mótsstjórn taka ákvörðun um miðjan dag á laugardag hvort flytja þurfi úrslitaleiki til sunnudags.

Tímasetning unglingamóts verður gefin út á föstudagskvöld.


Met skráning í strandblakmót

24.06.2010 kl 15:00
Nýtt met hefur verið slegið í þátttökufjölda liða á strandblakmóti, en 26 lið hafa skráð sig í mótið sem hefst annað kvöld. 15 kvennalið og 11 karlalið mæta til leiks.
Einnig eru 8 lið skráð í unglingaflokki, þar af 3 pilta og 5 stúlkna, en unglingaflokkurinn verður spilaður á sunnudag.

Við biðjum keppendur að fylgjast vel með vefsíðunni en tímasetningar fyrstu leikja verða settir hér inná síðuna í kvöld.

Búast má við að keppnin komi til með að dragast á langinn og má vel búast við því að úrslitaleikir verði jafnvel spilaðir á sunnudegi, en reynt verður eftir fremsta megni að klára mótið á laugardag, þó seint verði.


Frábær skráning í fyrsta stigamótið

24.06.2010 kl 1:43
Strandblak / Beach VolleyÞegar þetta er skrifað hafa 18 lið skráð sig til leiks, þar af 11 kvennalið og 7 karlalið, en skráningu lýkur á hádegi í dag.

Það er næsta víst að einhverjir leikir verða spilaðir á föstudagskvöldið til að létta aðeins á álagi laugardagsins, en stefnt er að því að spila úrslitaleikina um kl 16.00 á laugardaginn. Eins og áður verða úrslitaleikir karla og kvenna ekki settir á á sama tíma, heldur spilaðir eftir hvorum öðrum.

Fingurslag verður leyft í sumar og má lesa nánar um þá reglu undir síðunni Strandblakreglur hér til hliðar, en samt sem áður verður tekið mjög strangt á fingurslagi.

Strandblakráð kom saman og ákvað að 8 stigahæstu liðin eftir þau fjögur stigamót sem verða í sumar, komist inná lokamótið/Íslandsmótið sem haldið er í ágúst. Athugið að einstaklingar fá stig á hverju móti og þarf sama lið ekki að spila saman allt sumarið, heldur er samtala þeirra leikmanna sem spila saman tekin inní útreikninginn.

Einnig var ákveðið að 3 bestu mót af 4 gildi þegar reiknuð eru út stig liða/einstaklinga. Þetta þýðir í raun að ef lið kemst ekki í 1 mót, þá á það samt möguleika á að komast í lokamótið, þar sem stig 3ja móta eru eingöngu talin.

Spilað verður eftir svokölluðu tvöföldu útsláttarfyrirkomulagi. Þó er ein nýjung sem verður kynnt, en það er að öllum liðum verða tryggðir 3 leikir í mótinu, í stað tveggja áður.

Annað kvöld verður svo komin upp tímasetning fyrstu leikja hér á vefinn.



Enn fjölgar strandblakvöllunum á landinu og Trimmót á nýjum velli um helgina

24.06.2010
Strandblakvöllur Garðinum / Beach Volley courtÞað má með sanni segja að strandblakíþróttin dreifi sér hratt um landið, en nýjasti völlur landsins leit dagsins ljós í gær þegar Einar og Kalli tóku land undir fót til að aðstoða heimamenn við uppsetningu.

Það voru snillingarnir í Garðinum á Reykjanesinu sem ákváðu fyrir 2 vikum að það gæti verið skemmtilegt að hafa strandblak á Sólstöðuhátíðinni hjá sér sem fram fer 24. - 27. júní. Á innan við tveim vikum frá ákvörðun var komin upp þessi líka flotti strandblakvöllur á glæsilegum stað, rétt við Garðskagavita. Það er ekki ólíklegt að þetta sé Íslandsmet í uppsetningu því ef skoðaður er tíminn sem tekur að setja upp svona völl á höfuðborgarsvæðinu, þá er meðaltíminn líklega 2 ár og það bara vegna skrifræðis hjá þeim sem stjórna.

Að tilefni uppsetningu þessa vallar og Sólstöðuhátíðar ætla Garðbúar að slá til trimmóts í strandblaki, þar sem keppt er í 3ja manna liðum. Þeir sem ætla að taka þátt eiga að senda póst á netfangið gardur@svgardur.is. Ekkert þátttökugjald er í mótið.

Við óskum Garðbúum innilega til hamingju með þennan frábæra völl og hlökkum til að sjá strandblakara framtíðarinnar koma frá Garðinum.

Hér má sjá myndir af vellinum.


Skráning hafin á Stigamót I sem verður helgina 25. - 27. júní

21.06.2010
Næstu helgi verður fyrsta stigamót sumarsins haldið í Fagralundi í Kópavogi.

Skráning er hafin hér á vefnum en að þessu sinni verður bæði keppt í fullorðins og svo í fyrsta skipti í unglingaflokki.

Unglingaflokkur miðast við fæðingarárið 1989 eða seinna. Unglingar geta skráð sig í bæði mótin en þurfa þá eingöngu að greiða fyrir eldri flokkinn.

Nánari upplýsingar koma á vefinn í kvöld. Smelltu hér á Mótasíðuna til að skrá þig.

Skráningu lýkur á hádegi fimmtudaginn 24. júní


Snilldarmóti á Flúðum lokið

21.06.2010
Strandblak / Beach VolleyÁ laugardaginn var haldið Gröfutæknimót Hrunamanna á strandblakvöllunum á Flúðum.

Skráð til leiks voru 8 kvennalið og 4 karlalið í keppni 2ja manna liða, og svo 3 karla- og 5 kvennalið í keppni 3ja manna liða.

Dagurinn hófst í smá úða en svo stytti upp uppúr hádegi og sólin þerraði alla á staðnum og gerði daginn eftirminnilegan.

Svo fór að í kvennaflokki 2ja manna sigraði HK (Heiða og Þórey) og í karlaflokki sigraði einnig HK (Einar og Kalli).

Í flokki 3ja manna liða sigraði lið Þróttar en í karlaflokki liðið Blake.

Eftir móti var að sjálfsögðu skellt sér í ána eins og árið áður þó hitastigið hafi verið nokkrum gráðum minna en þá.

Skemmtilegt mót að baki og eiga Hrunamenn þakkir fyrir.

Hér má sjá myndir frá mótinu.


Gröfutæknimót Hrunamanna næstu helgi - Skráning

15.06.2010
Næstu helgi, nánar tiltekið laugardaginn 19. júní fer fram Gröfutæknimót Hrunamanna í strandblaki. Mótið verður haldið á einum af bestu strandblakvöllum landsins á Flúðum.

Mynd tekin á mótinu 2009Keppt verður í 2 manna og 3 manna mótum, bæði í karla og kvennadeildum.

Mótið hefst kl 10.00 í keppni 2 manna liða. Keppt verður eftir strandblakreglum að því undanskildu að hver leikur er í ákveðin tíma, í staðin fyrir ákveðin skor. Það lið vinnur sem skorar flest stig þegar tími er útrunnin. Ef lið eru jöfn að tíma liðnum skal taka eina uppgjöf til viðbótar til að skera úr um sigurvegara.
Áætlað er að 2 manna mótinu ljúki kl 14:00

3 manna mótið hefst svo kl 14:00 en það er með léttara sniði og ekki eftir ströngustu reglum, meira hugsað til skemmtunar þó svo búast megi við harðri keppni eins og alltaf. Einnig er keppt á tíma í þessu móti. Nethæðin er lægri í þessu móti.

Leyfilegt er að taka þátt bæði í 2ja og 3ja manna mótunum, en þá verður að skrá sig í bæði mót. Eingöngu þarf þó að greiða þátttökugjald einu sinni.
Þátttökugjaldið er 1.500 kr pr/þátttakanda og greiðist það á staðnum fyrir fyrsta leik.

Vinningar eru fyrir sigurvegara í báðum keppnunum og eru þeir ekki af verri endanum, gistingar á hótelum, medalíur o.fl.

Þátttakendur á mótinu fá gistingu á tjaldsvæðinu um helgina á 50% afslætti fyrir sig og maka, frítt er fyrir 12 ára og yngri.

Skráning í mótin fara fram hér á vefnum, en einnig verður hægt að skrá sig á staðnum, en það verður þá að gerast klukkutíma áður en mótið hefst.


Ísland með Ítalíu í riðli

14.06.2010
Síðastliðin laugardag þann 12. júní var dregið í riðla fyrir undankeppni Ólympíuleikanna 2012, en Ísland sendir 2 karla- og 2 kvennalið til þessarar undankeppni.

Liðadrátturinn fór þannig að með Íslandi í riðli verða Spánn, Ítalía og Svíþjóð, en riðlarnir urðu eftirfarandi:
A: Sviss, Bretland, Danmörk, Malta (keppt á Möltu)
B: Þýskaland, Noregur, Slóvenía, Portúgal (keppt í Slóveníu)
C: Spánn, Ítalía, Svíþjóð, Ísland (keppt á Spáni/Kanaríeyjum)
D: Holland, Frakkland, Serbía, Liechtenstein/Ísrael (keppt í Frakklandi)
E: Tékkland, Pólland, Úkrína, Króatía (keppt í Úkraínu)
F: Rússland, Latvía, Búlgaría, Litháen (keppt í Rússlandi)
G: Eistland, Grikkland, Kýpur, Rúmenía (keppt í Grikklandi)
H: Austurríki, Slóvakía, Finnland, Tyrkland (keppt í Tyrklandi)

Á vefsíðu alþóða blaksambandsins kemur fram að ekki er búið að fastsetja dagsetningar, en líklega verði riðillinn sem Ísland leikur í, spilaður 10. - 12. september í Las Palmas á Kanaríeyjum.

Nánar á vefsíðu alþjóða blaksambandsins.


Frábæru námskeiði lokið

Peter Lyø Þjálfari06.06.2010
Nú um helgina var haldið námskeið með landsliðsþjálfara Danmerkur Peter Lyø. Alls mættu 30 manns á fyrirlestur sem hann hélt á föstudagskvöldið og svo 16 manns á námskeiðið sjálft sem keyrt var í þéttri dagskrá á laugardeginum, en eingöngu voru 16 sæti í boði.

Peter fór yfir reglur leiksins, sýndi tækni í slögum, fór yfir leikkerfi, taktik, varnar og sóknarleiki í bland við skemmtilega leiki sem hægt er að gera í sandinum. Einnig sagði hann frá nýjum reglum sem verið er að taka upp, en þar á meðal má nefna smá slökun á fingurslagsreglum í strandblaki.

Mikið var farið í fingurslagsæfingar því það er jú erfiðasta tæknin í leiknum og þarf að æfa mjög vel til að fullkomna Í framhaldi af því má geta þess að á mótum sumarsins hér heima verður fingurslag leyft að nýju, en þar sem reglurnar hafa verið svo strangar hingað til þá hafa þær sér reglur gilt hér á landi að fingurslag hefur ekki verið leyft.

Frábæru námskeiði hjá frábærum þjálfara lokið, og miðað við aðsókn, ánægju og jákvæð viðbrögn þátttakenda, þá verður þetta án efa endurtekið. Einnig kom upp hugmynd um að fara í hópferð í maí á næsta ári í strandblakskóla sem er rekin af Peter, en sá skóli er rekin bæði í Tyrklandi og á Majorca. Á vefsíðu skólans http://lyobeachcamp.dk/ má fá nánari upplýsingar um skólann, tímasetningar og verð.

Þó nokkrir nýir strandblakarar litu dagsins ljós á námskeiðinu og miðað við viðbrögð annarra og áhuga, þá má bóka Æfingahópurinnað þetta sumar verður sprengja í þátttöku móta.

Á myndinn hér að ofan má sjá Peter í íslenskri landsliðstreyju sem hann fékk þegar hann keppti hér á landi með landsliði Danmerkur árið 1986.

Myndin hér til hliðar er af hluta hópsins sem var á fyrirlestrinum á föstudag.

Fleiri myndir af námskeiðinu má sjá hér.


Breyting á tímaplani námskeiðsins með Peter Lyø

03.06.2010 - 18:20
Þar sem Iceland Express felldi niður hádegisflug til Danmerkur á sunnudeginum þarf að gera breytingar á dagskrá námskeiðsins sem hér segir:

  • Föstudagur 20:00 - 22:00 (Styttra námskeið/fyrirlestur) (óbreytt)
  • Laugardagur 11:00 - 13:00 (óbreytt)
  • Laugardagur 16:30 - 18:30 (óbreytt)
  • Laugardagur 19:00 - 21:00 BREYTING

Í staðin fyrir morguntímann á sunnudegi verður kvöld æfing á laugardegi.

Sendur hefur verið póstur til allra þátttakenda á lengra námskeiðinu.


4 lið frá Íslandi á leiðinni í undankeppni Ólympíuleikanna

FIVB30.05.20
Ísland er skráð með fjögur lið, 2 karla- og 2 kvennalið, sem koma til með að keppa í FIVB Beach Volleyball World Cup, en það er hluti af undankeppninni fyrir Ólympíuleikana sem fram fara í London 2012.
Ekki er komin nákvæm tímasetning á þessari undankeppni en leikið verður í sumar (júní - ágúst).

Ekki er búið að velja landslið sem fara út enda sumarið rétt að fara af stað hér hjá okkur, en samkvæmt þeirri reglu sem farið hefur verið eftir hingað til þá eru þær stöllur Lilja og Laufey með rétt til að fara út sem annað af kvennaliðunum þar sem þær eru núverandi Íslandsmeistarar í greininni.

Nánar má lesa um þessa keppni hér.

Hér er svo listi yfir þátttökuþjóðir
Karlar
Konur


Tímasetningar á námskeiðinu hjá Peter

30.05.2010
Þar sem landsliðsæfingar verða í fullum gangi næstu helgi höfum við ákveðið að sníða tímann á námskeiðinu í kringum æfingarnar, þannig að landsliðfólkið okkar hafi færi á að mæta á námskeiðið.

Námskeiðið fer því fram á þessum tímum í Fagralundi Kópavogi:

  • Föstudagur 20:00 - 22:00 (Styttra námskeið/fyrirlestur)
  • Laugardagur 11:00 - 13:00
  • Laugardagur 16:30 - 18:30
  • Sunnudagur 09:00 - 10:00

Vinsamlegast sendið fyrirspurnir á strandblak@strandblak.is ef einhverjar eru.


Skráning á námskeiðið hjá Peter Lyø, landsliðsþjálfara Dana

26.05.2010
Eins og fram hefur komið verður Peter með námskeið fyrir íslenska strandblakara helgina 4. - 6. júní.
Námskeiðið verður haldið í Fagralundi Kópavogi og verður það tvískipt.

  • Lengra námskeið - Verklegt:
    6 klst. verklegt námskeið + 2 klst fyrirlestur, þar sem farið er yfir tækni, boltameðferð, leikskipulag og fleira sem nýtist keppendum.
    Kennt verður í 2 x 2 klst. laugard. 5. júní og svo 2 klst sunnud. 6. júní.
    Ath að innifalið í lengra námskeiði er einnig 2 klst. fyrirlestur/námskeið sem haldið er á föstudagskvöldið.
    Takmarkaður fjöldi kemst á þetta námskeið eða aðeins 16 manns. Því fyrr sem þú skráir þig því meiri möguleika hefurðu á að komast að.
    Verð 15.000 kr

  • Styttra námskeið/fyrirlestur:
    2 klst. námskeið/fyrirlestur.
    Haldið í fyrirlestrar/kennsluformi að kvöldi föstudagsins 4. júní
    Byrjað er á fyrirlestri inní Fagralundi og síðan farið út á strandblakvöll þar sem farið er yfir leikinn sjálfan, helstu reglur, boltatækni sýnd og fleira. Nauðsynlegt fyrir alla sem hafa áhuga á að vita meira um leikinn og vilja komast á næsta stig.
    Verð 3.000 kr

Nú er bara að skrá sig sem allra fyrst til að eiga möguleika á að komast að.
Athugið að þeir sem skrá sig fá fljótlega tölvupóst til staðfestingar á hvort námskeiðið þeir komast á.

Skráðu þig hér: SKRÁNING


Landsliðsþjálfari Dana með námskeið í byrjun júní

12.05.2010
Stórviðburður verður í strandblaki á Íslandi helgina 4. - 6. júní, en þá kemur hingað til lands Peter Lyø en hann er landsliðsþjálfari Dana í strandblaki.

Takmarkað pláss verður á námskeiðið. Nánari upplýsingar og skráning verða hér á vefnum innan skamms, fylgist með.


Sumarið er komið - Allir í strandblakBreyting á dagskrá sumarsins

09.05.2010
þar sem kvennalandslið Íslands verður að spila á Möltu helgina 11. - 13. júní hefur verið ákvðið að færa fyrsta stigamót sumarsins til 25. - 26. júní, og fyrsta unglingamótið til 27. júní.

 


Stærsta strandblaksumar frá upphafi að hefjast

02.05.2010
Nú er strandblaknefnd Blaksambandsins á fullu að undirbúa sumarið, eitt stærsta strandblaksumar frá upphafi.

Hér er smá upptalning á því sem verður í gangi:

  • Fjöldi stigamóta verður á sumrinu
  • Íslandsmót unglinga
  • Parakeppnir
  • Trimmmót (3ja manna)
  • Fleiri landslið verða send erlendis en áður
  • Unglingalandslið verða að öllum líkindum send út í æfingabúðir og mót
  • Landsliðsþjálfari Dana kemur í heimsókn í byrjun júní til að kenna okkur undirstöðuatriðin í strandblaki
  • Hugmynd er að fá hingað alþjóðlegan strandblakdómara til að kenna okkur meira í reglum íþróttarinnar
  • Fleiri vellir eru í smíðum um allt land og allt að gerast

Hér gefur að líta fyrsta uppkast af mótum sumarsins: (athugið að þetta er ekki allt staðfest. Fylgist með á vefnum ef breytingar verða.)

  • 25. - 26. júní - Stigamót I í Fagralundi Kópavogi (Ath breyting)
  • 27. júní - Unglingamót í Fagralundi Kópavogi (Ath breyting)
  • 19. - 20. júní - Gröfutæknimót Hrunamanna á Flúðum (Trimmót 3ja manna)
  • 26. júní - Parakeppni (karl/kona) í Fagralundi Kópavogi
  • 3. - 4. júlí - Stigamót II á Þingeyri
  • 10. júlí - Trimmót HK í Fagralundi (3ja manna)
  • 16. - 17. júlí - Stigamót III á Flúðum
  • 18. júlí - Unglingamót á Flúðum
  • 23. - 24. júlí - Stigamót IIII í Fagralundi Kópavogi
  • 31. júlí - 1. ágúst - Trimmót um Verslunarmannahelgina í Neskaupsstað
  • 13. - 14. ágúst - Íslandsmótið í Fagralundi Kópavogi
  • 15. ágúst - Íslandsmót unglinga í Fagralundi Kópavogi

Nú er um að gera að setja sig í gírinn, koma upp netunum, taka fram strandblaksokkana, pumpa í strandblakboltann og byrja að æfa.


Eldri fréttir >>>
 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta

Hress heilsurækt

Kraum