Strandblak

Strandblakvöllurinn á Flúðum

Völlurinn sem er 4 stjörnu völlur að okkar mati, stendur í á tjaldsvæðinu á Flúðum Suðurlandi.
Frábær aðstaða í kringum svæðið þar sem þetta er tjaldsvæði með sturtu- og salernisaðstöðu. Einnig er tilvalið að skella sér í ána sem rennur meðfram völlunum eftir leik til að skola af sér sandinn, en áin er oft á tíðum volg.
Frábær viðbót við strandblakvelli landsins.

Strandblakvöllurinn á Flúðum / Beach Volley court

Mat á velli Athugasemdir Stjörnugjöf
Sandur grófleiki/fínleiki Sandurinn er alger snilld. Tekin úr fjörunni á Eyrarbakka, náttúrulega slípaður af sjónum. Virðist vera léttur viðkomu og mjúkur.
Net - súlur - línur Sérsmíðað af heimamönnum, mjög vel gert. Línurnar í léttara lagi og hefur minnsti vindur áhrif á þær, sakar þó ekki.
Öryggissvæði í kringum völl Mjög gott öryggissvæði meðfram völlunum
en má vera meira á milli vallanna í keppni. Vantar girðingu til að hindra það að boltarnir fari útí ána sem liggur meðfram völlunum.

Fjöldi valla 2 vellir, mjög góðir.
Skjólsælt Vellirnir eru í skjóli fyrir flestum áttum, en þó ekki fyrir þeirri átt sem mest er ríkjandi. Mætti bæta það, en annars allt gott.

 

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta

Hress heilsurækt

Kraum