Strandblak

Strandblakvöllurinn í Fagrilundi Kópavogi

Völlurinn sem er tæplega þriggja og hálfrar stjörnu völlur að okkar mati, en hann hefur misst eina stjörnu vegna lélegs viðhalds. Völlurinn stendur í Fossvogi við æfingasvæði HK í Fagralundi í Kópavogi.

Strandblakvellirnir Fagralundi / Beach Volley court

Mat á velli Athugasemdir Stjörnugjöf
Sandur grófleiki/fínleiki Skeljasandur sem má muna sinn fífil fegri. Mikið af því fínasta fokið úr sandinum og hann því orðin grófari fyrir vikið. Sumstaðar á vellinum er því of grunnt niður á grús.
Net - súlur - línur Sérhannaður útbúnaður að bestu gerð
Öryggissvæði í kringum völl Ágætis öryggissvæði 2m á hliðar 3m til enda. Vegna skorts á sandi þá er þetta ekki lengur eins gott og það gæti verið.

Fjöldi valla 2 vellir sem er mjög gott.
Skjólsælt Í Fossvoginum þar sem er mjög skjólsælt, gæti þó verið betra.

Með því að smella á myndina geturðu séð staðsetningu vallarins.
Strandblakvellirnir Fagralundi

Hægt er að panta tíma á vellina í Fagralundi með því að hringja í Fagralund í síma 554 1793
Hvert skipti (1 klst) kostar 2.000 kr en hægt er að fá 2 bolta að láni til að spila með.
Hér má sjá lausa tíma á vellinum Fagrilundur tímaplan

 

 


Polar púlsmælar

Kjörís

Under Armour

Fanta