Völlurinn fær ekki meir en 2 stjörnur að okkar mati. Svæðið í kring er mjög skemmtilegt, og góð aðstaða en völlurinn sjálfur ekki uppá marga fiska. Hægt væri að gera þarna frábæran völl því þetta er jú akkúrat það umhverfi sem á að vera í kringum strandblakvelli.
Mat á velli
Athugasemdir
Stjörnugjöf
Sandur grófleiki/fínleiki
Sandurinn er grófur, með stórum skeljum og frekar óspennandi,
hefur ekki verið jafnaður.
Net - súlur - línur
Súlur eru of lágar, ekki hægt að hækka netið.
Engar línur og netið sjálft annars flokks.
Öryggissvæði í kringum völl
Nóg pláss er við og í kringum völlinn, en hann mætti vera
afmarkaður frá öðru á svæðinu.
Fjöldi valla
1 völlur
Skjólsælt
Völlurinn er í hvos og því sæmilega skjólsæll.
Með því að smella á myndina geturðu séð staðsetningu vallarins.